Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Trylltust út af teikningu

Starfs­menn skop­tíma­rits hafa verið hand­teknir. Erdogan for­seti segir að Múhammeð hafi verið á teikn­ing­unni.

Trylltust út af teikningu
Reiðir mót­mæl­endur Íslamskir mót­mæl­endur lentu í átökum við tyrk­neska óeirða­lög­reglu þegar þeir komu saman til að mót­mæla háðsá­deilu­tíma­rit­inu LeMan í Istanbúl í gær­kvöldi. Átök brut­ust út þegar lög­regla beitti gúmmí­kúlum og táragasi til að leysa upp æstan mann­fjölda. Mynd: AFP

Uppnám hefur verið í Tyrk­landi, banda­lags­ríki Íslands, í gær­kvöldi og í dag, vegna reiði ísla­mista og for­seta lands­ins yfir teikn­ingu af því sem þeir segja vera spá­mað­ur­inn Múhammeð í háðs­legu sam­hengi.

Recep Tayyip Erdoğan Tyrk­lands­for­seti for­dæmdi í dag háðsá­deilu­tíma­rit eftir ásak­anir um að það hefði birt teikn­ingu af spá­mann­inum Múhameð, og kall­aði það „við­bjóðs­lega ögrun“.

„Þetta er aug­ljós ögrun dul­búin sem húmor, við­bjóðs­leg ögrun,“ sagði hann reiði­lega og for­dæmdi það einnig sem „hat­urs­glæp“.

„Þeir sem sýna spá­mann­inum okkar og öðrum spá­mönnum van­virð­ingu munu sæta ábyrgð fyrir lögum.“

Um 300 mót­mæl­endur öskr­uðu skammar­yrði gegn tíma­rit­inu og hróp­uðu: „Gleymið ekki Charlie Hebdo“, í til­vísun til árás­ar­innar í París árið 2015 þegar íslamskir byssu­menn drápu 12 manns eftir að tíma­ritið hafði birt skop­myndir af spá­mann­inum Múhameð.

„Niður með ver­ald­ar­hyggju, upp með sharía! Jihad, jihad, písl­ar­vætti!“ hróp­uðu þeir í átökum við lög­reglu sem beitti táragasi og gúmmí­kúlum.

Reiðir yfir teikn­inguTyrk­neskir karl­menn hrópa and­mæli sín í garð starfs­fólks skop­tíma­rits. Atvikið átti sér stað eftir að yfir­sak­sókn­ari Istanbúl gaf út hand­töku­skipun á hendur rit­stjórum LeMan-tíma­rits­ins, með þeim rökum að það hefði birt teikn­ingu sem „opin­ber­lega móðg­aði trú­ar­leg gildi“.

LeMan, viku­legt háðs­tíma­rit, hefur alfarið hafnað ásök­un­unum. Rit­stjóri þess sagði við AFP að myndin hefði „ekk­ert með spá­mann­inn Múhameð að gera“.

„Í þessu verki er nafni múslima, sem féll í loft­árásum Ísraels, gefið hið skáld­aða nafn Múhameð. Meira en 200 millj­ónir manna í íslamska heim­inum bera nafnið Múhameð,“ sagði hann.

Teikn­ingin sem vakið hefur deilur sýnir tvær per­sónur svífa yfir borg sem er undir loft­árásum.

„Salam aleikum, ég heiti Múhameð,“ segir annar og réttir fram hönd. Hinn svarar: „Aleikum salam, ég heiti Musa.“

Erdoğan sagði yfir­völd hafa lagt hald á öll ein­tök útgáf­unnar sem í hlut átti og gripið til lög­reglu­að­gerða gegn tíma­rit­inu – aðeins nokkrum klukku­stundum eftir að fjórir hátt­settir starfs­menn þess voru hand­teknir og hand­töku­skipun gefin út á hendur nokkrum til við­bótar.

Í nótt birti inn­an­rík­is­ráð­herr­ann Ali Yerlikaya myndir af hand­töku teikn­ar­ans, graf­ísks hönn­uðar tíma­rits­ins, útgef­anda og ann­ars starfs­manns þar sem þeir voru teknir af hörku – sem leiddi til gagn­rýni frá tyrk­nesku mann­rétt­inda­sam­tök­unum MLSA.

„Að hand­taka teikn­ara og beita þá harð­ræði vegna meintrar ‘móðg­unar á trú­ar­legum gildum’ vegna teikn­ingar er ólög­mætt,“ skrif­aði einn stjórn­enda sam­tak­anna, Veysel Ok, á X.

„Jafnvel þótt mynd eða yfir­lýs­ing sem er án ofbeldis særi eða ögri stórum hluta sam­fé­lags­ins, er hún samt varin af tján­ing­ar­frels­inu.“

LeMan var stofnað árið 1991 og er þekkt fyrir póli­tískar háðsá­deilur sínar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco