Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Þrír af hverjum fjórum sem Ísraelsher hefur drepið eru konur og börn“

„Vonir um vopna­hlé“ eru „eins og hálm­strá“ segir Sveinn Rúnar Hauksson mann­vin­ur­inn, læknir og heið­urs­borg­ari í Palest­ínuum um ástandið á Gaza

„Þrír af hverjum fjórum sem Ísraelsher hefur drepið eru konur og börn“
Sveinn Rúnar Hauksson læknir og mann­vinur Segir stöð­una á Gaza verða æ skelfi­legri Mynd: Aðsend

„Vonir um vopna­hlé“ eru „eins og hálm­strá“ segir lækn­ir­inn og mann­vin­ur­inn Sveinn Rúnar Hauksson og bætir því við að í dag, þann „7.7.2025, ferð­ast stríðs­glæpafor­ing­inn Net­anyahu til Washington að heim­sækja helsta stuðn­ings­mann sinn, Donald Trump í Hvíta hús­inu.“

Giskar Sveinn Rúnar á það að „Net­anyahu“ verði „áreið­an­lega ekki hand­tek­inn við kom­una, þrátt fyrir að vera eft­ir­lýstur af Alþjóða stríðs­glæpa­dóm­stólnum“ enda eru „Banda­ríkin ekki með í þeirri mik­il­vægu stofnun.“

Sveinn Rúnar færir í tal að „enn einu sinni vekja fjöl­miðlar vonir um vopna­hlé á Gaza, en fremur ósenni­legt er það henti Net­anyahu, að hætta fjöldamorðum og ger­eyð­ingu palest­ínskra byggða“ en segir þó að ekki sé loku „fyrir það skotið að Bibi [Benjamin Net­anyahu, inn­skot blm] geri það sem vin­ar­greiða við besta vin sinn að gera dálítið hlé á tor­tím­ing­unni, og hleypa inn svolitlu af vatni, mat og lyfjum til tveggja millj­óna svelt­andi íbúa. Bara smá hlé. Það gæti litið út einsog rós í hnappa­gatið á vin­inum. Trump er mikið fyrir svo­leiðis.“

Hann segir að „við sem í 21 mán­uði höfum sofnað á hverju kvöldi út frá hryll­ingnum sem á sér stað í Palest­ínu af völdum Ísraels, Banda­ríkj­anna og helstu banda­lags­þjóða þeirra í NATO og vöknum upp við sama hryll­ing að morgni, við grípum í hvaða hálm­strá sem er“ og nefnir að „við þurfum að trúa því og geta vonað að ein­hvern tíma muni þessu linna. Og sem allra allra fyrst, helst í gær.“

Sveinn Rúnar talar tæpitung­laust og segir ein­fald­lega:

„Þjóð­ar­morð heitir það og þjóð­ar­morð er það. Nú þegar hafa nærri 60 þús­und manns verið myrt af Ísra­els­her og tvö­faldur sá fjöldi örkumla og rúm­lega það af völdum árásanna. Þá eru ekki talin þær þús­undir sem liggja undir rúst­unum.“

Sveinn Rúnar segir aðheim­ili fólks, sjúkra­hús og skólar“ hafi verið sér­stök „skot­mörk Ísra­els­hers og í engu stríði hafa jafn margir læknar, hjúkr­un­ar­fólk, sjúkra­flutn­inga­menn og annað heil­brigð­is­starfs­fólk verið myrt. Það sama á við um blaða­menn og frétta­fólk.“

Að mati Sveins Rúnars hafa átökin á Gaza verið stríð gegn börnum og konum:

„Um það bil þrír af hverjum fjórum sem Ísra­els­her hefur drepið eru konur og börn“ og þetta er ekki á neinn hátt „venju­legt stríð, heldur útrým­ing­ar­her­ferð“ en bætir því svo við að það sé „varla hægt að tala um stríð í þessu sam­bandi. Það á við þegar tvo ríki eða fleiri og tveir herir eða fleiri takast á, einsog til dæmis í Úkraínu. En í Palest­ínu er eng­inn her sem verst inn­rásum, her­námi og linnu­lausum árásum Ísra­els­hers, eins best útbúna og öfug­asta hers í heimi. Svo ekki sé talað um leyni­þjón­ustu og njósn­a­net sem gerir hryðju­verka­hernum kleift að fylgj­ast með hverjum einum íbúa, ekki síst leið­togum fólks­ins og taka þá af lífi, gjarnan í faðmi fjöl­skyld­unnar sem er þá myrt í heilu lagi. Nei, hér er einn her að verki, Ísra­els­her, og verk­efni hans á Gaza og í vax­andi mæli einnig á Vest­ur­bakk­anum, er útrým­ing­ar­her­ferð.“

Sveinn Rúnar færir í tal að her­ferðin muni halda áfram af „sívax­andi grimmd“ og að „mót­mæli skipta máli“ en að þau dugi því miður ekki ekki til.

Hann segir að „sjaldan hafa sést önnur eins mót­mæli og eiga sér stað um allan heim. Þjóð­ar­leið­togar þeirra ríkja sem eru sam­sek í þjóð­ar­morð­inu í Palest­ínu eru farnir að gera sér grein fyrir því að þeir lenda öfugu megin í mann­kyn­sög­unni. Frá þeim eru farin að heyr­ast mót­mæli við fram­ferði Ísra­els­ríkis“ en segir einnig að því miður hafi ekk­ert þó ekk­ert breyst og enn „er haldið áfram að senda vopn til Ísraels, ekki bara frá Banda­ríkj­unum, líka frá Bret­landi og fleirum.“

Sveinn Rúnar segir að „Net­anyahu fyr­ir­gefur þessu stuðn­ings­liði sínu stöku harð­orðar yfir­lýs­ingar á meðan stefnan og stuðn­ing­ur­inn heldur áfram. Yfir­lýs­ingar hafa einnig komið frá okkar stjórn­völdum og jafn­vel talað um þjóð­ar­morð“ en Sveinn Rúnar segir þó að þessu hafi „ekki verið fylgt eftir með aðgerðum, sem fundið er fyrir. Það þarf snið­göngu, við­skipta­bann og stjórn­mála­slit.“

Hann segir að end­ingu að „við viljum ekki þurfa að standa reikn­ings­skil á því, hvers vegna við gerðum ekki allt sem við gátum til að stöðva þjóð­ar­morð í Palest­ínu. Þetta má ekki halda svona áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina