Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég var ekkert eðlilega leiðinleg við hann fyrst”

Hann beil­aði á fyrsta deit­inu og það tók hann marga mán­uði að laga það

„Ég var ekkert eðlilega leiðinleg við hann fyrst”
Gurrý með maka sínum Gurrý opnar sig í nýjasta hlað­varps­við­tali Sölva Tryggva. Mynd: Instagram-skjáskot

Gurrý Torfa­dóttir einka­þjálf­ari seg­ist inni­lega þakk­lát fyrir þann stað sem hún er á í dag eftir að hafa farið í gegnum mjög erfið ár í kjöl­far skiln­aðar og fyr­ir­tækja­rekst­urs í Covid. Gurrý, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist hafa verið á þeirri veg­ferð að þroskast og heil­ast á und­an­förnum árum. Það geti verið erfitt á köflum, en verð­launin séu mikil:

„Mér líður mjög vel og ég er á frá­bærum stað núna. Það er auð­velt að tala um lífs­reynslu og deila af henni þegar manni líður vel. En síð­ustu 10 árin eru alveg búin að vera erfið á löngum köflum. En ég hef verið mjög dug­leg og alltaf haldið áfram á erf­ið­ustu köfl­unum. Jóga hefur verið mikið hald­reipi fyrir mig. En ég er í raun búin að vera á þeirri veg­ferð að þroskast og heil­ast. Og ég er svo inni­lega þakk­lát fyrir fólkið í kringum mig. Á á svo brjál­æð­is­lega góðar vin­konur, sem eru bæði skiln­ings­ríkar og þroskaðar og hafa hjálpað mér rosa­lega. En auð­vitað á maður eitt­hvað sjálfur í því að raða réttu fólki í kringum sig,” segir Gurrý, sem talar í þætt­inum opin­skátt um þá kafla sem hafa reynst henni erf­ið­astir:

„Það var mjög erfitt þegar ég hætti í Reebook fit­ness, en kannski erf­ið­asta tíma­bilið var þegar Covid skall á. Ég var að skilja eftir langt sam­band, var nýbúin að opna lík­ams­rækt­ar­stöð og ég hrein­lega sá bara ekki út. Ég er í eðli mínu hörð við sjálfa mig, þannig að ég leyfði mér ekk­ert að sleppa úr vinnu eða hætta öllu, alveg sama hvað dag­arnir voru erf­iðir. En það sem hélt mér gang­andi á erf­ið­ustu dög­unum var fólkið í kringum mig og geta alltaf tekið sím­talið þegar ég var á erf­iðum stað og muna að þessi dagur líður alltaf og á morgun verður betri dagur. En á allra erf­ið­ustu dög­unum á þessu tíma­bili þurfti ég oft að hugsa bara 15-30 mín­útur fram í tím­ann og hvíla mig þegar ég gat ekki meira. Það að fara í gegnum skilnað er ekk­ert grín og þegar ég heyri af fólki sem er að ganga í gegnum skilnað sé ég núna hvað það getur verið erfitt ferli. Það skiptir engu máli hver biður um skiln­að­inn. Svo þegar mér fór að líða aðeins betur var það hreyf­ingin sem skipti sköpum og svo að fá aðstoð frá ráð­gjafa og tala við ein­hvern og svo jóga og önd­unaræf­ingar. Ég var allan tím­ann ákveðin í að kom­ast út úr þessu og það tókst. Þegar maður horfir í bak­sýn­is­speg­il­inn sé ég hvað þetta tíma­bil þroskaði mig mikið og hvað ég lærði mikið þarna.”

Gurrý seg­ist vilja senda þau skila­boð til fólks sem er að ganga í gegnum erfið tíma­bil að það sé alltaf ljós við end­ann ef fólk heldur áfram:

„Og kannski verður lífið bara miklu betra en það var áður en þú fórst í gegnum erf­ið­leik­ana. Þannig er það hjá mér. Ég hefði ekki trúað því að ég myndi segja það, en það er bara staðan. Og það hefur ekk­ert með fyrr­ver­andi maka minn að gera, heldur bara þá vinnu sem ég hef lagt í sjálfa mig. Þegar fólk fer í gegnum sárs­auka­full og erfið ferli verður maður að muna að þetta verður betra. Og líka ná að njóta fal­legu augna­blikanna inni í þessum tíma­bilum, af því að þau eru alltaf þarna líka,” segir Gurrý sem er í ást­ar­sam­bandi í dag sem hún seg­ist mjög ham­ingju­söm í og segir það hafa komið til sín þegar hún átti síst von á því.

„Það kom tíma­bil þar sem ég var að bíða eftir því að finna ein­hvern geggj­aðan mann. Ég hélt að einu ári eftir skiln­að­inn myndi ég finna þann eina rétta, en svo gerð­ist það bara ekk­ert. Svo þegar ég var alveg búin að sleppa tök­unum af því, þá gerð­ist það. Ég var ekk­ert eðli­lega leið­in­leg við mann­inn sem ég er með í dag fyrst um sinn, af því að ég var bara búin að ákveða að ég gæti alveg verið ein. Hann beil­aði á fyrsta deit­inu og það tók hann nokkra mán­uði að ná að laga það. En allt er eins og það á að vera og maður er alltaf að sjá það betur.”

Gurrý hefur á und­an­förnum árum ein­beitt sér að því að vinna með konum þegar kemur að heilsu og hún hefur áhyggjur af þeim hraða sem er í sam­fé­lag­inu og þeirri pressu sem konur setja á sig, í stað þess að setja á sama tíma athygl­ina á það sem vel er gert:

„Ég vinn mikið með konum og ég hef áhyggjur af þessarri brjál­uðu keyrslu og pressu sem virð­ist vera gegn­um­gang­andi heilt yfir. Ég er kannski með konur sem eru að standa sig frá­bær­lega vel og gera góða hluti í vinnu og sem mæður, en aðal­at­riðið eru ein­hver tvö aukakíló sem þær setja alla athygl­ina á. Aðal­at­riðið er að okkur líði vel, að við séum í jafn­vægi og að taka eftir góðu og jákvæðu hlut­unum, en ekki að rífa okkur niður fyrir eitt­hvað sem í stóra sam­heng­inu er í raun algjört auka­at­riði.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una