Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Lögum samkvæmt er fiskveiðiauðlindin sameign þjóðarinnar“

Jón Baldvin Hanni­bals­son spyr ein­faldrar spurn­ingar, „hverjir eiga Ís­land?“ og svarið við þeirri spurn­ingu er mögu­lega að finna í orðum hans sjálfs.

„Lögum samkvæmt er fiskveiðiauðlindin sameign þjóðarinnar“
Jón Baldvin Hanni­bals­son fyrr­ver­andi ráð­herra Spyr hverjir eigi Ísland í raun og veru

Jón Baldvin Hanni­bals­son fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra spyr ein­faldrar spurn­ingar, „hverjir eiga Ís­land?“ og mögu­lega er svarið við þeirri spurn­ingu að finna í orðum Jóns Baldvins sjálfs.

Hann ræðir RÚV og hann ræðir fréttir tengdar veiði­gjald­inu:

„Af fréttum RÚV og frétta­tengdu efni um veiði­leyfa­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar má ráða, að mátt­ar­stólpar þjóð­fé­lags­ins – okkar nýríku millj­arða­mær­ingar – sæti ómak­legum ofsóknum af hálfu stjórn­ar­flokk­anna. Rík­is­stjórnin sé á góðri leið með að „slátra mjólk­ur­kúnni“, sem hingað til hafi fært okkur björg í bú.“

Hræðslu­á­róður stund­aður í Efsta­leiti

Jón Baldvin segir að RÚV flytji „okkur þennan hræðslu­á­róður kvölds og morgna, án þess að reyna að bjóða uppá gagn­rýnar frétta­skýr­ingar, byggðar á stað­reyndum“ og segir einnig að „við vitum ekki, hvort þessi dap­ur­lega van­ræksla stjórn­ast fremur af hræðslu­gæðum eða van­getu.“

Hann segir varla þurfa að ræða „mogg­ann“ því hann er „bein­línis gerður út af millj­arða­mær­ing­unum. Þeir borga árlegan halla­rekstur blaðs­ins með glöðu geði, enda munar þá ekk­ert um slíkt smá­ræði. Öðruvísi mér áður brá, þegar Matthías og Styrmir réðu húsum í Hádeg­is­móum.“

Fisk­veiði­auð­lindin er sam­eign þjóð­ar­innar

Og Jón Baldvin er klár á því að „lögum sam­kvæmt er fisk­veiði­auð­lindin sam­eign þjóð­ar­innar. Lögum sam­kvæmt má ekk­ert ein­stakt útgerð­ar­fyr­ir­tæki hafa for­ræði yfir meira en 12% veiði­leyfa. Lögum sam­kvæmt byggja veiði­leyfin – gríð­ar­lega fémæt sem þau eru – á tíma­bundnum nýt­ing­ar­rétti; þau mynda hvorki lögvar­inn eigna­rétt né bóta­rétt á ríkið, ef þau eru aft­ur­kölluð. Þetta segja lögin.“

Hann færir í tal að „allar eru þessar grund­vall­ar­reglur lög­gjaf­ar­innar einskis virtar í fram­kvæmd“ og „fyr­ir­tækja­sam­steypur skyldra aðila meira en tvö­falda veiði­heim­ildir sínar í reynd.“

Alþingi lætur eins og það viti ekki af þessu

Þá nefnir fyrr­ver­andi ráð­herra að rúm­lega 10 fyr­ir­tækja­sam­steypur ráði yfir 2/3 hlutum allra afla­heim­ilda og að hand­hafar veiði­heim­ilda leigji, selji, kaupi, erfi, veð­setji og arf­leiði veiði­heim­ildir, eins og um þeirra eigin eign sé að ræða:

„Þeim er skipt bróð­ur­lega“ eins og við „hjóna­skiln­aði.“

Hann segir einnig að „Alþingi hefur, hingað til, látið eins og það viti ekki af þessu. Öfugmæli Eigandi veiði­heim­ild­anna að nafn­inu til – þjóðin – sem leigir út afnota­rétt­inn, hefur hingað til ekki fengið neinar leigu­tekjur umfram kostnað þjóð­ar­innar af þjón­ustu við sjáv­ar­út­veg­inn. Veiði­leyfa­mill­unum, sem hafa m.a. fjár­fest í leigu­blokkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þætti þetta lélegur „business“. Að kalla leigu fyrir einka­af­not af þjóð­ar­auð­lind­inni – sem gerði þessa menn ofur­ríka – „lands­byggð­ar­skatt“, er einum of langt gengið. Það er nefni­lega öfug­mæli. Það er einmitt lands­byggðin, sem mun sér í lagi njóta góðs af raun­veru­legum leigu­tekjum af veiði­leyfum, í formi inn­viða­upp­bygg­ingar í sam­göngum og heil­brigð­is­þjón­ustu, svo eitt­hvað sé nefnt.“

Spáðu hruni nytja­stofna

Jón Baldvin segir að þar nemi „van­ræksla fyrri rík­is­stjórna hund­ruðum millj­arða. Lítil fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki í sjáv­ar­plássum geta notið stig­hækk­andi frí­tekju­marks, ef þörf krefur. Í þessu sam­hengi er ástæða til að rifja upp, að núver­andi fisk­veiði­stjórn­ar­kerfi er til­komið sem neyð­ar­ráð­stöfun, til þess að bregð­ast við neyð­ar­á­standi. Svartar skýrslur vís­inda­manna spáðu yfir­vof­andi hruni nytja­stofna vegna ofveiði.“

Hann segir að stjórn­völd hafi séð sig „nauð­beygða til að tak­marka sókn með vald­boði og að nið­ur­staðan hafi orðið úthlutun veiði­heim­ilda til útgerð­ar­manna, sem gerðu út á árunum 1979-82. Miðað við veiði­reynslu. Ókeypis. Hvers vegna ókeypis?“

Hann svarar sjálfum sér og segir að ástæðan hafi fyrst og síð­ast komið til „vegna þess að sjáv­ar­út­veg­ur­inn var þá - á sein­ustu ára­tugum lið­innar aldar - sokk­inn í skuldir. Flotinn var alltof stór og „eftir hömlu­laust fjár­fest­inga­fyll­erí í nýjum skipum, til að veiða sein­asta þorskinn. Kostn­að­ur­inn var alltof mik­ill.“

Ástandið kall­aði á rót­tækar breyt­ingar

„Allt var rekið með tapi“ segir Jón Baldvin og bætir því við að engar var­an­legar lausnir hafi fund­ist „nema síend­ur­teknar geng­is­fell­ingar. Verð­bólga og kjara­skerð­ing. Ella atvinnu­leysi. Ástandið kall­aði á rót­tækar breyt­ingar. Skulda­skil. Uppgjör og gjald­þrot fyr­ir­tækja. Úreld­ing­ar­sjóð til að hraða fækkun skipa. Tak­mörkun sóknar. Afla­marks – eða - kvóta­kerfi. Veiði­leyfi er eins­konar einka­leyfi. Sá sem fær veiði­leyfi fyrir 1000 tonnum af þorski, þarf ekki að ótt­ast að keppi­nautur á nýju skipi verði fyrri til að hirða afl­ann.“

Árang­ur­inn lét ekki á sér standa

Jón Baldvin vill að hugað sé betur að sjálf­bærni veið­anna og tryggja „arð­sem­ina“ og Þar með yrði komið í veg fyrir „ofveiði of stórs flota, sem ógn­aði afrakstri helstu nytja­stofna. Þetta átti að stuðla að sam­keppn­is­hæfni grein­ar­innar á alþjóða­mörk­uðum. En það tók tíma að snúa tapi í hagnað. Það var von­laust að rukka veiði­leyfa­gjald fyrr en tapi hafði verið snúið í hagnað. Það tók nokkur ár á sein­asta ára­tug lið­innar aldar. Hundrað millj­arðar á ári Árang­ur­inn lét ekki á sér standa.“

Hann segir að skipum, sjó­mönnum og útgerð­ar­mönnum hafi fækkað, til­kostn­aður við útgerð minnkað, þótt afla­aukn­ing, sem boðuð var, léti á sér standa.

„Frá og með alda­mót­unum 2000 mátti íslenskur sjáv­ar­út­vegur - veiðar og vinnsla - telj­ast sjálf­bær“ því afkoman fór „síbatn­andi og sam­kvæmt opin­berum upp­lýs­ingum frá Hag­stof­unni hefur „hagn­aður af veiðum og vinnslu numið 90 – 100 millj­örðum króna á ári á und­an­förnum árum. Þar af hefur auð­lind­arentan, hagn­aður umfram allan rekstr­ar­kostnað, numið 50 – 60 millj­örðum króna. Þótt við miðum við lægri töl­una, gerir það 500 millj­arða á ára­tug. Það munar um minna.“

Jón Baldvin segir auð­lind­arent­una vera til­komna fyrir atbeina rík­is­ins:

Leigu­tekjur rík­is­ins af þjóð­ar­auð­lind­inni

„Hún verður til við það að ríkið – fyrir hönd eig­and­ans, þjóð­ar­innar, tak­markar sókn­ina. Þar með er komið í veg fyrir að kostn­aður við veið­arnar éti upp allan hagnað, eins og tíðk­að­ist áður fyrr. Við vorum að tala um, hvernig greiða eigi fyrir mörg hund­ruð millj­arða inn­viða­halla á lands­byggð­inni, sem safn­ast hefur upp á und­an­förnum árum. Partur af svar­inu felst í leigu­tekjum rík­is­ins af þjóð­ar­auð­lind­inni. Hinn part­ur­inn felst í því að loka aug­ljósum götum í núver­andi skatt­kerfi, sem ekki aðeins leyfa – heldur bein­línis hvetja til – skatt­und­an­dráttar stór­efna­manna.“

Eign­ar­haldið yfir­leitt vistað í eigna­harlds­fé­lögum

„Samkvæmt nýlegum upp­lýs­ingum frá SFS hefur útgreiddur arður til eig­enda í fyr­ir­tækja­sam­steypum leyf­is­hafa numið um 30% af hagn­aði að jafn­aði“ og hinn hlut­inn situr inni í „fyr­ir­tækj­unum og eykur verð­mæti þeirra. Eign­ar­haldið er yfir­leitt vistað í eigna­harlds­fé­lögum“ og að „arðs­tekjur þeirra og sölu­hagn­aður af hlutum er skatt­frjáls.“

Hann segir að „skúffu­fé­lög af þessu tagi“ séu sum hver „skráð erlendis, þar sem erfitt er að rekja slóð eig­end­anna.“

Jón Baldvin segir að sum aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins, eins og til dæmis „Kýpur, Malta og Liechtenstein, sér­hæfa sig í þess­ari þjón­ustu“ og að sama máli gegni um „milli­liði sem selja óunn­inn fisk beint til smá­sala á erlendum mörk­uðum, fyrir mun hærra verð en fæst við löndun á Íslandi.“

Hann spyr því:

„Hafa stétta­fé­lög sjó­manna ekk­ert við þetta að athuga? Hverjir eiga Ísland?“

Gríð­ar­legur hagn­aður

Segir einnig að „Stefán Ólafsson, pró­fessor, hefur nýlega upp­lýst, að hagn­aður fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi er mun meiri en í öðrum atvinnu­vegum á Íslandi. Það kemur einnig fram í frum­varps­drög­unum. Það hefur verið svo býsna lengi. Það þýðir að fjár­fest­ingar í grein­inni eru með mesta móti í nýjum skipum og vinnslu­tækni, í gervi­greind og sjálf­virkni.“

Jón Baldvin er á því að „íslenskur sjáv­ar­út­vegur er í fremstu röð að þessu leyti í heim­inum“ og að „sjálf­virkni sem leiðir af tækni­bylt­ingu bætir sam­keppn­is­hæfn­ina og fækkar líka starfs­fólk­inu.“

Hann telur vera fróð­legt að fá upp­lýs­ingar um það frá SFS hvernig starfs­fólki hefur fækkað á und­an­förnum árum og hve stór hluti þess er erlent vinnu­afl:

Nýr fjár­mála­að­all

„Það hefur ekki farið fram hjá almenn­ingi, að margir stærstu hand­hafar veiði­leyfa í sjáv­ar­út­vegi hafa verið atkvæða­miklir fjár­festar í óskyldum greinum á und­an­förnum árum“ og þannig hefur orðið til „ný „corporate elite“ - fjár­mála­að­all – með ráð­andi ítök á mörgum sviðum atvinnu­lífs og stjórn­mála.“

Hann segir að „við erum að tala um fjár­fest­ingar í skipa­fé­lögum, trygg­inga­fé­lögum, bönkum og fjár­mála­stofn­unum, ólíu­fé­lögum, ferða­þjón­ustu, hót­elum og veit­inga­stöðum, verk­taka­fyr­ir­tækjum og fast­eignum – ekki síst á leigu­mark­aði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar hefur leigu­verðið reyndar farið síhækk­andi, öfugt við veiði­leyfagjöldin. Þar vefst það ekki fyrir eig­endum að gera grein­ar­mun á sköttum og leigu!“

Jón Baldvin er á því að það sé fyrir löngu kom­inn „tími til að binda endi á póli­tískt bak­tjalda­makk og skrum­skældar áróð­urs­her­ferðir veiði­leyf­is­hafa, þegar kemur að ákvörðun afnota­gjalda að fisk­veiði­auð­lind­inni.“

Lög um veiði­leyfagjöld þurfa að vera skýr

Segir að útgerð­ar­menn, sjó­menn, vinnslu­stöðvar, sveit­ar­fé­lög og aðrir sem „málið varða, þurfa á að halda vissu um rekstr­ar­um­hverfi sitt og starfs­kjör. Það heitir „fyr­ir­sjá­an­leiki“ nútil­dags. Lög og reglur um veiði­leyfagjöld þurfa að vera skýr og skil­merki­leg fram í tím­ann, þannig að stjórn­sýslan geti reiknað út leigu­gjaldið á hverju fisk­veiði­ári.“

Og að mati Jóns Baldvins, varð­andi verð­mat, ber að „miða við mark­aðs­verð heima og erlendis. Annar mæli­kvarði er ein­fald­lega ekki mark­tækur.“

Hann spyr einnig hvort ekki sé kom­inn tími til að end­ur­reisa Þjóð­hags­stofnun:

„Auð­lind­arentan er grund­vall­ar­hug­tak. Hún er sá huti, sem eftir stendur af hagn­aði fyr­ir­tækis, þegar allur rekstr­ar­kostn­aður, þar með tal­inn kostn­aður við að fjár­magna við­hald og end­ur­nýjun skipa og bún­aðar, hefur verið dreg­inn frá. Auð­lind­arenta verður til vegna þess að rík­is­valdið, í umboði þjóð­ar­innar, tak­markar sókn í auð­lind­ina. Ella yrði hún engin. Hún til­heyrir því eig­anda auð­lind­ar­innar, þjóð­inni.“

Frumvarp stjórn­ar­innar hóf­legt skref í rétta átt

Hann bendir á að það eina sem er „samn­ings­at­riði er, hvort eig­and­inn vill gefa afslátt af auð­lind­arent­unni. En er það ekki mis­skilin góð­gerð­ar­starf­semi að skilja hana alla eftir hjá fáeinum fjöl­skyldum, sem upp­haf­lega fengu veiði­leyfin ókeypis? Það var ekki mein­ingin í upp­hafi“ segir Jón Baldvin og bætir því við að „frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar er hóf­legt skref í rétta átt. Næsta verk­efni er að móta okkur auð­linda­stefnu til fram­búðar. Það varðar ekki bara fiski­miðin og þær auð­lindir, sem kunna að leyn­ast undir hafs­botn­inum. Auð­linda­stefna, að nor­rænni fyr­ir­mynd, tekur til lands­ins alls, þar með talið til eign­ar­halds á bújörðum. Hún varðar okkar ferska neyslu­vatn, ork­una í iðrum jarðar og í fall­vötnum og ósnortna nátt­úru Íslands í öllu sínu veldi“ og þar eigum við að leita í smiðju „frænda okkar Norð­manna, sem eru öllum heim­inum fyr­ir­mynd á þessu sviði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina