Matvælastofnun varar við neyslu á lúpínu án réttra notkunarleiðbeininga en greint er frá þessu í tilkynningu frá MAST.
Blóm í eggi - heilsuvörur hafa innkallað lúpínu í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vegna skorts á leiðbeiningum. Lúpína inniheldur af náttúrunnar hendi alkalóíða sem geta valdið eitrunareinkennum ef hún er ekki matreidd á réttan hátt. Nauðsynlegt er því að umbúðir séu merktar með skýrum notkunarleiðbeiningum.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum Evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF.
Viðskiptavinum er bent á að neyta ekki vörunnar heldur farga henni. Einnig er hægt að skila henni í verslun Blóms í eggi – heilsuvara.
































Athugasemdir