Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Íslenskur fréttamiðill birtir falsfrétt frá gervigreind

Fals­frétt um Paul McCartney, Elton John og Phil Collins hefur fengið mikla dreif­ingu

Íslenskur fréttamiðill birtir falsfrétt frá gervigreind
Gervi­greind­ar­mynd af Paul McCartney, Phil Collins og Elton John Frétta­tím­inn birti fals­frétt fram­leidda af gervi­greind. Mynd: Facbook

Í gær birti íslenski fjöl­mið­ill­inn Frétta­tím­inn grein um að Paul McCartney og Elton John hefði sungið „Let it be“ fyrir Phil Collins á sjúkra­húsi. Með frétt­inni fylgdi mynd af tón­list­ar­mönn­unum þremur grát­andi og í faðm­lögum. Í lok frétt­ar­innar var mynd­band af Paul McCartney spila „Let it be“ á tón­leikum í New York. Við nán­ari athugun kemur í ljós að fréttin sjálf er algjör­lega ósönn og mynd­irnar eru gerðar af gervi­greind.

Sannleikurinn

Í fyrsta lagi er Phil Collins ekki að kljást við nein alvar­leg veik­indi á sjúkra­húsi. Í lok júlí greindi People magazine frá því að tón­list­ar­mað­ur­inn væri að jafna sig eftir hnéað­gerð en ekki kom fram hvort að hann þyrfti inn­lögn á spít­ala vegna hennar. Ljóst er að mynd­irnar sem fylgja frétt­inni eru gerðar af gervi­greind. Meðal ann­ars má sjá að tón­list­ar­menn­irnir þrír hafa allir nákvæm­lega sama grát­svip­inn sem ein­kennir myndir gerðar af gervi­greind. Á mynd í frétt­inni sjálfri sést Paul McCartney spila á gítar með hægri hendi en hann er þekktur fyrir að vera örv­hentur og spila á örv­henta gít­ara. Þar má einnig sjá að gít­ar­inn á mynd­inni hefur aðeins fjóra strengi, þegar hefð­bundnir gít­arar hafa sex.

Gervi­greind­ar­myndPaul McCartney er örv­hentur en spilar rétt­hent á mynd­inni og 2 strengi vantar á gít­ar­inn

Uppruni frétt­ar­innar

Grein Frétta­tím­ans er bein­þýdd en sjá má nákvæm­lega sömu frá­sögn hjá Facebook-síð­unni Rock Metal Society. Sú síða deilir mörgum svip­uðum fréttum á dag, allar færslur hafa frægan tón­list­ar­mann og hjart­næmar sögur um heim­sókn á spít­ala eða jarð­ar­för. Með öllum færsl­unum fylgja myndir sem eru greini­lega fram­leiddar af gervi­greind. Í fyrr­nefndri færslu Rock Metal Society er not­endum bent á að lesa frétt­ina á vef­síðu Rock Metal Society en hlekk­ur­inn tengir á aðra frétt sem keim­lík en einnig ósönn. Sú frétt lýsir hvernig Paul McCartney hafi sungið „Hey Jude“ fyrir hjart­veika Phil Collins á sjúkra­húsi.

Und­an­farna viku hefur seinni fréttin kom­ist í mikla dreif­ingu. Fréttin inni­heldur dramat­íska frá­sögn að Paul McCartney hafi gengið inn, ekki sagt orð, heldur aðeins spilað „Hey Jude“ fyrir vin sinn Phil Collins sem glímir við hjarta­vanda­mál. Margar Facebook- og blogg síður deildu sög­unni og frétta­veitur kepp­ast nú við að leið­rétta fals­frétt­ina.

Frétt Frétta­tím­ans.

Framtíðin í gervigreind

Vænta má að af þessu tagi muni ein­ungis fær­ast í auk­ana á kom­andi árum. Efnið er unnið af gervi­greind svo lítil vinna fer í fram­leiðslu og eng­inn tími fer í að sann­reyna efni eða afla upp­lýs­inga. Frá­sagn­irnar lýsa hjart­næmum eða sorg­legum atburðum um frægt fólk sem flestir kann­ast og tengja við. Fyr­ir­sagn­irnar ein­kenn­ast oft af smelli­brellum til þess að fá sem flesta not­endur til að lesa frétt­ina. Til­gangur þess­ara Facebook síðna er að vísa not­endum á vef­síður sem hægt er að græða aug­lýs­inga­tekjur af.

Fréttatíminn endurreistur

Frétta­tím­inn var gef­inn út sem prentað frétta­blað árin 2010 til 2017. Eftir að félagið fór í þrot undir rit­stjórn Gunnars Smára Egils­sonar, sem síðar stofn­aði Sós­í­alista­flokk Íslands, voru eignir þrota­bús­ins seldar Guð­laugi Her­manns­syni fisk­út­flytj­enda.

Eigandi og fyr­ir­svars­maður Frétta­tím­ans í dag er Magnús Ingi Guð­munds­son. Frétta­tím­inn er skráður hjá Fjöl­miðla­nefnd og er rit­stjórn­ar­stefna hans sögð vera: „Almennar fréttir og afþrey­ing­ar­efni, eins og tíðkast hjá öðrum vef­miðlum á inter­net­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina