Aðföng, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum ostana Duc de Loire og Royal Faucon Camembert en greint er frá þessu í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Ástæða innköllunar
Grunur er um að ostarnir séu mengaðir af bakteríunni Listeria monocytogenes.
Hver er hættan?
Listeria monocytogenes getur valdið alvarlegum matarbornum sjúkdómi (svokallað listeriosis), sérstaklega hjá öldruðum, barnshafandi konum, nýfæddum börnum og einstaklingum með skert ónæmiskerfi.
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru
Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.
Dreifing
Verslanir Hagkaupa um land allt.































Athugasemdir