Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Var 12 ára þegar hún byrjaði að drekka daglega

Elísabet Long hefur verið edrú í 30 ár og er nú ráð­gjafi fyrir fólk að glíma við fíkn

Var 12 ára þegar hún byrjaði að drekka daglega
Elísabet Long Í hlað­varp­inu Sterk saman segir Elísabet frá sögu sinni Mynd: Facebook/ Sterk saman

Elísabet Long er með­ferð­ar­ráð­gjafi sem hefur verið edrú í 30 ár. Hún er nýjasti gestur í hlað­varpi Tinnu Guðrúnar Bark­ar­dóttir, Sterk saman, og segir þar frá sög­unni sinni.

Elísabet ólst upp á Borðeyri í Hrúta­firði áður en hún flutti í borg­ina 10 ára gömul. „Æskan mín var frá­bær að ein­hverju leyti, mér fannst þetta rosa­lega skemmti­legt og lif­andi að hanga á Borðeyri og finna sér eitt­hvað að gera,“ segir Elísabet en bætir við „en svo var líka fullt mjög erfitt.“

Hún lýsir hvernig van­ræksla for­eldra hennar hafði mikil áhrif á hana. Þau voru sjálf alka­hólistar og sinntu for­eldra­hlut­verk­inu ekki mikið. Elísabet lýsir því að henni leið svo illa að 12 eða 13 ára gömul var hún farin að drekka ein inn í her­bergi. „Það fyrsta sem ég geri þegar ég kem heim úr skól­anum er að fá mér alltaf nokkra sopa,“ segir Elísabet. Hún lýsir því hvernig drykkjan hafi sprottið upp ein­ungis til þess að deyfa til­finn­ing­arnar. 12 ára gömul hafi hún tekið með sér áfeng­is­pela í skól­ann og drukkið inn á kló­setti til að lifa dag­ana af.

Hún seg­ist hafa verið erf­iður ung­lingur á þessum tíma og var send á mörg ung­linga­heim­ili og í nokkra mán­uði á barna- og ung­linga geð­deild land­spít­al­ans (BUGL). Elísabet lýsir miklum létti að hitta aðra ung­linga í svip­aðri stöðu og hún því áður hafði henni alltaf liðið einni í upp­lifun sinni. Ung­linga­heim­ilin voru þó engin para­dís, und­an­farin ár hefur komið upp í sam­fé­lags­um­ræð­una mörg dæmi um van­rækslu og Elísabet seg­ist alveg kann­ast við það. Hún rifjar upp að hafa verið sett í fimm daga ein­angrun fyrir að vilja ekki borða hakk og borða bara spa­get­tíið í kvöld­mat. Hún hafði þá verið græn­metisæta í nokkur ár.

Á meðan hún var á ung­linga­heim­il­unum reyndi hún að fara heim um helgar til að geta djammað og neytt vímu­efna. Á end­anum var Elísa­betu hent út af heim­il­inu sínu, hún varð heim­il­is­laus og þurfti að sofa í skúrum, yfir­gefnum hjól­hýsum eða hjá rónum þegar hún var ekki á ung­linga­heim­ilum. Hún var einnig oft send á með­ferð­ar­heim­ili fyrir ung­linga sem hét Tindar en var sífellt að nota fíkni­efni á meðan hún var þar eða strjúka. „Lífið án deyf­ingar var bara ömur­legt,“ segir Elísabet.

Dropinn sem fyllti mælinn

„Eftir eitt strokið mitt frá Tindum lendi ég í þriðja over­dos­einu mínu það árið,“ segir Elísabet. Hún vildi gera eitt­hvað heil­brigt sem venju­legt fólk myndi gera og ákvað því að fara með vin­konu sinni í Kringl­una. Hins vegar fékk hún svo slæm frá­hvörf að á göt­unni fyrir utan Kringl­una hneig hún niður í krampakasti. Vinkona hennar náði að stöðva öku­mann sem keyrði þær á bráða­mót­tök­una. „Ég hugsa oft um þennan mann en ég þekki hann ekki neitt,“ segir Elísabet en henni finnst magnað að mað­ur­inn hafi viljað taka tvo „ung­lings ruglu­dalla“ í bíl­inn sinn.

Á spít­al­anum þurfti fimm heil­brigð­is­starfs­menn til að halda Elísa­betu niðri því hún kippt­ist svo til af krömpum. Það tók langan tíma að ná henni til baka. Hún fékk að vita að ef hún hefði ekki komið á bráða­mót­tök­una um leið hefði hún dáið meðal ann­ars því að tungan hennar var svo bólgin að hún náði ekki and­anum. Elísabet seg­ist muna eftir lækni segja „hvað ertu að gera við lífið þitt stelpa?“ og þrátt fyrir að vera varla við með­vit­und náði hún að taka það inn.

Í kjöl­farið fór Elísabet á Tind í sein­asta sinn. Hún seg­ist fyrst ekki hafa verið sér­lega mót­tæki­leg fyrir með­ferð­inni þrátt fyrir reynsl­una á spít­al­anum. Hún var með stæla og var mjög óheið­ar­leg. Þá tók starfs­maður Tinds hana á tal sem hafði mikil áhrif á hana. Starfs­mað­ur­inn hafði séð hana koma og fara án þess að reyna heið­ar­lega að verða edrú. „Þú ræður hvernig þú gerir þetta, en það er eitt sem þú hefur ekki prófað og það er að vera heið­ar­leg,“ sagði hann við Elísa­betu. Þessi orð náðu til hennar og urðu til þess að í hún reyndi í fyrsta sinn heils hugar að verða edrú.

„Ég hélst edrú á ótt­anum einum sér,“ segir Elísabet en hún var ekki orðin 16 ára þegar hún hætti allri fíkni­efna­neyslu. Hún seg­ist upp­runa­lega ekki hafa ætlað að verða edrú að eilífu, hún hafi hins vegar alltaf frestað að nota fíkni­efni við hræðslu að missa stjórn aftur.

Frá edrúmennsku í ráðgjafa

Í dag eru um 30 ár síðan Elísabet varð edrú og hún hefur gjör­breytt líf­inu sínu. Hún segir sjálfs­vinn­una hafa verið mjög mik­il­væga. „Þarf ég ekki eitt­hvað að vinna í mér? Er ég ekki að missa af ein­hverju? Að þetta gengur út á að vera bara á fundum og tala á fundum?“ segir Elísabet en á þeim tíma hafi með­ferð­ar­úr­lausnir ein­ungis ein­blínt á fundi. Það breytti miklu fyrir hana að kynn­ast 12 spora kerf­inu sem ein­blínir á sjálfs­vinnu til að vinna úr fíkni­vanda.

Elísabet fékk kassettur um 12 spora kerfið frá banda­rískum her­mönnum sem komu á fund­ina í Reykja­vík. Reynslu­sög­urnar hjálp­uðu henni gríð­ar­lega. Í sam­vinnu við þáver­andi kærasta sinn brenndi Elísabet kassett­urnar yfir á geisla­diska og dreifði þeim til þeirra sem þurftu.

Elísabet kom að skipu­lagn­ingu fyrstu 12 spora ráð­stefn­unni á Íslandi. Ráð­stefnan var haldin á Grand Hotel og sló í gegn með um 350 gestum. Hún stýrði bóka­klúbbum um 12 spora kerfið og hélt fyr­ir­lestra um allt land. Elísabet var einn af stofn­að­ilum Alanó klúbbs­ins en það er félag með það mark­mið að styrkja 12 spora starf í land­inu og hýsa ýmis konar starf­semi fyrir fólk að glíma við fíkni­vanda.

Eftir að starfa sem grunn­skóla­kenn­ari í nokkur ár, ákvað Elísabet að mennta sig sem ráð­gjafi. „Fag­kennslan var fyrir mér af því að ég var svo mikið að ein­beita mér á að grípa börnin til­finn­inga­lega sem þurftu á því að halda,“ segir Elísabet.

Í dag rekur Elísabet sitt eigið ráð­gjafa­fyr­ir­tæki og með­ferða­stofu sem heitir Long ráð­gjöf. Þar ein­blínir hún á almenna ein­stak­lings- og para­ráð­gjöf fyrir áfengis- og fíkni­vandi, sjálf­styrk­ingu og jákvætt hug­ar­far.

Hlað­varps­þátt­inn frá Sterk saman má hlusta á í fullri lengd á Spotify og öðrum streim­isveitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una