Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda gagnvart helförinni á Gaza vera „fyrirlitlegt“

Þjóðar­morð, fálm­andi mjálm eða að­gerðir? spyr Viðar Hreins­son um hel­för­ina sem nú fer fram í boði Ísra­els­manna á Gaza og allur heim­ur­inn horfir aðgerð­ar­laus á

Segir aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda gagnvart helförinni á Gaza vera „fyrirlitlegt“
Viðar Hreins­son bók­mennta­fræð­ingur og mann­vinur Segir að Vest­ur­lönd stæri sig af hug­myndum um jöfnuð, jafn­ræði, lýð­ræði og mann­rétt­indi sem hampað er á tylli­dögum Mynd: Aðsend

Þjóðar­morð, fálm­andi mjálm eða að­gerðir? spyr bók­mennta­fræð­ing­ur­inn og mann­vin­ur­inn Viðar Hreins­son í grein um hel­för­ina sem nú fer fram í boði Ísra­els­manna á Gaza þar sem fólk; konur, menn og börn, eru myrt dag­lega af ógn­ar­sterkum her þótt fólkið sé með öllu vopn­laust og hafi engan kraft til að berj­ast vegna hung­urs og vos­búðar.

Viðar segir að Vest­ur­lönd stæri sig af hug­myndum um jöfnuð, jafn­ræði, lýð­ræði og mann­rétt­indi sem hampað er á tylli­dögum og mynda kjarn­ann í starfi fjölda alþjóða­stofn­ana sem virka ein­fald­lega ekki.

Hann segir að „þessar hug­myndir þró­uð­ust með­fram kap­ít­al­isma og nýlendu­stefnu sem byggj­ast á ofbeldi gagn­vart umhverfi jafnt sem mann­legu sam­fé­lagi“ og bætir því við að oft hafi „þessar göf­ugu hug­mynd­irnar verið not­aðar til að rétt­læta eða breiða yfir ofbeldið, enda hafa lög­mál við­skipta og kap­ít­als lengi verið æðri öllum siða­boðum í praxis.“

Viðar segir að þetta „mis­ræmi boð­unar og gjörða“ hafi lengi verið „him­in­hróp­andi en und­an­farin tvö ár hefur það keyrt um þver­bak“ og segir Viðar hrein­lega að nú sé svo komið „að sið­ferð­legt og hug­mynda­legt skip­brot Vest­ur­landa er algjört og birt­ist í póli­tísku van­mætti.“

Viðar bendir rétti­lega á að almenn­ingur víða um heim mót­mæli hel­för­inni ísra­elsku á Gaza kröft­ug­lega „en það kemur fyrir ekki, því vest­ræn stjórn­völd aðhaf­ast ekk­ert, en hafa uppi fögur orð að vanda.“

Hann nefnir að morð­æðið, hel­förin, hjá Ísra­els­mönnum sé „hrein­ræktað afkvæmi vest­rænnar þjóð­ernis- og nýlendu­stefnu og af þeim sökum á ábyrgð þeirra. Hvort eitt­hvað er meint með ótal fögrum orðum, álykt­unum og yfir­lýs­ingum, á borð við fálm­andi mjálm uta­rík­is­ráð­herra í kvöld­fréttum sjón­varps, skiptir ekki minnsta máli. Orð ráð­herr­ans væru hlægi­leg ef málið væri ekki jafn alvar­legt og raun ber vitni.“

Að mati Viðars dugar ekk­ert til að stöðva blóð­baðið á Gaza „nema beinar aðgerðir: við­skipta- og vopna­sölu­bann, snið­ganga - sem aðgerða­sinnar standa fyrir af dugn­aði - bann við komu Ísra­el­skra ferða­manna, slit á stjórn­mála­sam­bandi, úti­lokun frá alþjóða­sam­starfi, ekki síst á sviði menn­ingar og íþrótta, brott­rekstur úr Sam­ein­uðu þjóð­unum og stuðn­ingur við kæru til Alþjða­glæpa­dóm­stóls­ins.“

Viðar segir aðgerða­leysi íslenskra og ann­arra vest­rænna stjórn­valda sé hrein­lega „fyr­ir­lit­legt“ og segir einnig að „Ísland“ hafi ekki einu sinni gengið „í lið með Haag hópnum svo­kall­aða sem reynir þó að grípa til aðgerða.“

Viðar telur að hin svo­kall­aða „tveggja ríkja lausn“ sé ekk­ert annað en hrein klisja „sem hver étur upp eftir öðrum með slefi og öllu“ og segir einu lausn­ina á hryll­ingnum sem nú stendur yfir á Gaza sé „eitt lýð­ræð­is­ríki þar sem allir hafa jafnan rétt, Palest­ínu­menn og Gyðingar af öllum trú­ar­brögðum en til þess þyrfti að binda endi á þann ban­væna og rasíska síon­isma með til­heyr­andi aðskiln­að­ar­stefnu sem ríkt hefur.“

Að mati Viðars er það er hlá­legt að þessi hug­mynd sé „nátt­úr­lega í góðu sam­ræmi við þær lýð­ræð­is­hug­myndir sem Vest­ur­lönd stæra sig af en fram­kvæma ekki nema eftir hent­ug­leikum.“

Hann segir sið­ferði­legt og menn­ing­ar­legt skip­brot „Vest­ur­landa er skelfi­legt“ og að það sýni ekki „aðeins djúp­stætt van­mætti gagn­vart hrein­rækt­uðu þjóð­ar­morði og þjóð­ern­is­hreinsun, botn­lausri grimmd, afmennskun og kvala­losta; það sýnir svart á hvítu að und­ir­stöð­urnar sem við teljum sam­fé­lag okkar og menn­ingu byggj­ast á eru að bresta. Það er engin leið til baka, en það er enn hægt að stöðva þennan hryll­ing.“

Hann ljær máls á því að „ef svo heldur fram sem horfir ótt­ast ég að engin fær leið sé fram á við heldur, önnur en í átt að frekara ofbeldi og afmennskun“ og telur hann ástandið vera svo „alvar­legt að göf­ugar áhyggjur af svoköll­uðu akademísku frelsi verða hlægi­legar.“

Viðar segir einnig að „frels­is­hug­myndir mega sín lít­ils gagn­vart afmennsk­andi ofbeldi sem fær að vaða uppi óáreitt. Því óáreitt er það enn af stjórn­völdum sem mjálma fálm­andi og raddir menn­ingar- og mennta­geirans eru strjálli og lág­vær­ari en hægt er að sætta sig við.“

Og Viðar telur að fái „ofbeldið að halda áfram“ að vera jafn­óá­reitt og það er verði það „ein­fald­lega smátt og smátt við­ur­kennt, enda praktíserað af æ fleiri svköll­uðum þjóð­höfð­ingjum. Og þá gleyma æ fleiri aka­demíkerar lík­lega frels­is­hug­sjón­unum og fara að ein­beita sér að því að þókn­ast þeim sem ráða.“

Hann spyr síðan hvað það sé svo sem Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra „sam­þykkja ásamt öðru framá­fólki Vest­ur­landa með aðgerða­leys­inu?“

Í hryll­ingnum á Gaza eru nú rúm­lega 62.000 mann­dráp stað­fest og „talið er að tugir þús­unda séu grafin undir rústum og af þessum 62.000 eru hátt í 19.000 börn og nærri 10.000 konur.“ Og sam­kvæmt „nýj­ustu upp­ljóstr­unum upp úr opin­berum gögnum í Ísrael eru um 83% fall­inna óbreyttir borg­arar þótt þar­lend stjórn­völd reyni stöðugt að ljúga öðru.“ Hann bendir einnig á að „hátt í 160 þús­und manns eru lim­lest, og ekki þarf að fletta fjöl­miðlum lengi til að rekast á myndir og frá­sagnir af hræði­lega lim­lestum og bækluðum börnum.“ Hann bendir einnig á að um það bil „1600 heil­brigð­is­starfs­menn hafa verið myrtir og vel á þriðja hund­rað blaða­manna eða fjöl­miðla­fólks og löngu orðið ljóst að þetta fólk er mark­visst haft að skot­marki.“

Viðar segir einnig að ekk­ert lát sé á vopna­sölu „Vest­ur­landa til Ísraels“ til þess að hægt sé að „halda uppi fjör­inu.“

Hann bendir með sterkum hætti á afleið­ing­arnar í nær­mynd á bak við töl­urnar:

„Litla stúlkan með vatns­brús­ann sem sprengd var upp, sund­ur­skotin lík á sjúkra­húsi, fljúg­andi lík og útlimir, hung­ur­morða börn, svelt­andi fólk með tóm mat­ar­í­lát, hrunin hús, skot­göt á tjöldum, fólk á flótta undan spreng­ingum, grát­andi fólk með barns­lík í fang­inu, fólk grafið látið og lif­andi úr rústum, skurð­að­gerðir á sjúkra­hús­gólfi, jafn­vel án deyf­ingar – við lítum undan í hryll­ingi en megum það samt ekki, því við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stöðva þetta, en á meðan malar síoníska áróð­urs­vélin“

Viðar segir að það verði „að liggja milli hluta hvort stjórn­völd skilja sam­hengið eða hvort þau vilja það ekki. Við hvers­dags­fólkið getum ekki litið undan lengur. Almenn­ingur verður að þrýsta á þau af öllum lífs og sálar kröftum“ og hann bendir á að með aðgerða­leys­inu“ séu „vest­ræn stjórn­völd og við­skipta­líf sam­sek“ og telur hann „ómögu­legt að vita hvað fram­tíðin ber í skauti um rétt­ar­höld, annað hvort alþjóða­dóm­stóla eða sög­unnar.“

Hann telur klár­lega að meg­in­straums­fjöl­miðlar, „jafn­vel þeir virt­ustu, eru undir sömu sök yfir­hylm­ingar felldir, þótt þar sé að verða ein­hver breyt­ing á. Síoníska áróð­urs­vélin hefur mallað lengi og verið óhugn­an­lega skil­virk“ og telur Viðar að það sé hægt að bregð­ast við með ýmsum hætti:

„Fjölda­þátt­taka í mót­mælum er mik­il­væg og nota þarf allar hugs­an­legar leiðir sem hver og einn hefur til að koma skila­boðum áleiðis til stjórn­valda. Beinn stuðn­ingur í gegnum sam­fé­lags­miðla og söfn­un­ar­síður við nauð­statt fólk á Gaza er önnur leið sem orðin er nokkuð áber­andi. Það er smátt í stóra sam­heng­inu, Íslend­ingar eru fáir og við erum ekki mjög mörg sem erum virk í þess­ari hjálp en vildum gjarnan að fólki í slíkum hjálp­ar­að­gerðum fjölg­aði stór­lega.“

Viðar leggur áherslu á það „að hvert manns­líf er dýr­mætt, og sam­bandið sem kom­ist hefur á við tölu­verðan fjölda fólks, einkum barna­fólks, er líka verð­mætt. Það stækkar heim okkar, við öðl­umst dýpri inn­sýn í þetta hörm­ung­ar­á­stand þegar við kynn­umst fólki á Gaza per­sónu­lega, sorgum þess og jafn­vel gleði, meira að segja draumum þess sem eru alltaf að bresta.“

Segir Viðar að aug­ljós­asta leiðin sé „hjálp­ar­sam­tökin Vonarbrú, sem safnar fé í sjálf­boða­vinnu og kemur því eftir öruggum leiðum til nauð­staddra en það er auð­velt að kynna sér fleiri hliðar hjálp­ar­starfs­ins á net­inu og Facebook.“

Hann segir að þeir sem vilja hjálpa fólki sem býr í einum hrylli­leg­asta „heimi“ allra hrylli­legra heima séu líka meira en „fús til að fræða og leið­beina. Og ekki má gleyma Reykja­vík­ur­mara­þoni, fjöldi fólks hleypur fyrir Vonarbrú, sem hægt erð að kynna sér á heima­síð­unni.“

„Per­sónu­lega er sú djúp­stæða vin­átta sem mynd­ast dýr­mæt. Að setja sig inn í kjör fólks og aðstæður, og upp­skera ein­lægt þakk­læti fyrir við­leitn­ina. Það er ekki auð­velt, að fylgj­ast með hjart­fólgnum vinum veikj­ast og nán­ast vesl­ast upp af nær­ing­ar­skorti, lýsa börnum sínum grát­andi af sulti, segja frá stöð­ugum spreng­ingum, skotárásum og mann­falli í nán­asta umhverfi“ og nefnir líka að „áhyggj­urnar geta líka verið nag­andi þegar maður veit af spreng­ingum og skotárásum allt í kring um hjart­kæra vini, jafn­vel næt­ur­langt.“

Viðar er, eins og áður hefur komið fram, í sam­bandi við fólk sem nú upp­lifir hel­för­ina á Gaza:

„Ég vona að öll ill öfl í heim­inum hrynji“ segir ein vin­kona í þessum skrif­uðum orðum. „Mig langar til að geta sofið laus við flug­véla­dyn og sprengjugný“ segir önnur, þar sem enn einn brott­flutn­ing­ur­inn vofir yfir.“

Þótt rödd Íslands sé kannski ekki „sterk á alþjóða­vett­vangi“ segir hann að „aðgerðir gætu vakið athygli sem hefði áhrif. Hjálp­ar­starf ein­stak­linga og lít­illa sam­taka telur kannski ekki mikið á stóra svið­inu. En það þarf ekki stórar stein­völur til að koma af stað stækk­andi skriðum.“

Hann segir að lokum að „ef til vill geta kær­leiks­verkin með tím­anum gætt opin­bert líf og stjórn­málin nýju inn­taki. En á meðan engin stjórn­völd gera neitt er bara haldið áfram að myrða börnin, mæð­urnar, feð­urna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við