Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Það er að ein­hverju leyti þetta fína fólk sem er í þess­um hefðbundnu hægri­flokk­um“

Hannes Hólm­steinn er afar ánægður með upp­gang hægri­s­inn­aðra popúlísta­flokka í Evrópu og segir þá með putt­ann á púls­inum

„Það er að ein­hverju leyti þetta fína fólk sem er í þess­um hefðbundnu hægri­flokk­um“
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son Segir að fólk frá öðrum menn­ing­ar­heimi sé fjand­sam­leg­ur vest­ræn­um gild­um Mynd: Mannlíf

Hann­es Hólm­steinn Giss­ur­ar­son seg­ir það mjög skrýtið að hefð­bundn­ir borg­ara­leg­ir hægri­flokk­ar í Evr­ópu hafi enn ekki gripið til mun harð­ari aðgerða í út­lend­inga­mál­um en þeir hafi gert hingað til.

Að mati Hannesar Hólm­steins er al­menn­ing­ur afar ósáttur við þetta aðgerð­ar­leysi í þess­um mála­flokki; og mögu­lega skýrir það meðal ann­ars upp­gang po­púlí­skra hægri­flokka í Evr­ópu.

Hannes Hólm­stein seg­ir inn­flytj­end­ur alls ekki vera vanda­mál - held­ur sé vanda­málið það að fólk frá öðrum menn­ing­ar­heimi, sem Hannes Hólm­steinn telur vera fjand­sam­leg­t vest­ræn­um gild­um, flykk­ist nú í meira mæli en áður til Evr­ópu, en þetta og ýmis­legt annað í við­tal­inu kem­ur fram í þætti Dag­mála.

Ef marka má ný­leg­ar skoð­ana­kann­anir eru stjórn­mála­flokk­ar er marg­ir skil­greina sem po­púl­íska í far­ar­broddi á Englandi, Þýska­landi, Frakk­landi sem og Ítal­íu.

Spurður um þessa þróun seg­ir Hann­es að venju­legir hægri­flokk­ar séu orðnir fjar­læg­ir al­menn­ingi:

„Það er að ein­hverju leyti þetta fína fólk sem er í þess­um hefð­bundnu hægri­flokk­um. Það er menntað um all­an heim, fer á fyrsta far­rými til Brus­sel, kann skil á rauð­vín­s­teg­und­um og lif­ir í dá­lítið öðrum heimi held­ur en venju­leg alþýða. Við vilj­um ekki að það komi inn and­stæð­ing­ar vest­rænn­ar menn­ing­ar og taki yfir okk­ar þjóðfé­lög, fyr­ir utan að lifa á bót­um frá okk­ur, stunda glæpi og kúga kon­ur,“ seg­ir Hann­es Hólm­steinn sem legg­ur ríka áherslu á að hann sé algjör­lega hlynnt­ur inn­flytj­end­um; talar sér­stak­lega um Lit­háa og Pól­verja, sem að hans mati hafa lagt mikið af mörk­um til ís­lenska hag­kerf­is­ins.

Hins veg­ar seg­ist Hannes Hólm­steinn hafa miklar áhyggj­ur af miklum fjölda fólks er flykk­ist nú til Evr­ópu frá menn­ing­ar­heim­um sem standi í and­stöðu við vest­ræn gildi:

„Það sem er að ger­ast er að fólk er að flykkj­ast til Evr­ópu frá menn­ing­ar­heimi sem er fjand­sam­leg­ur vest­ræn­um gild­um, þar sem of­beld­is­menn­ing, kúg­un kvenna og til­raun til að kom­ast hjá vinnu er tal­in góð og gild. Það er þetta sem er vanda­málið.“

Að hans mati hafa borg­ara­leg­ir flokk­ar alls ekki áttað sig á því að al­menn­ing­ur sé veru­lega and­snú­inn inn­flutn­ingi á fólki er berj­ist gegn vest­rænni menn­ingu og af þeim sök­um hafi po­púl­ista­flokk­ar sett þessi mál­ á odd­inn og náð góðri fót­festu.

„Við vilj­um ekki að það komi inn and­stæð­ing­ar vest­rænn­ar menn­ing­ar og taki yfir okk­ar þjóðfé­lög, fyr­ir utan að lifa á bót­um frá okk­ur, stunda glæpi og kúga kon­ur,“ seg­ir Hannes Hólm­steinn sem seg­ir eðli­legt að al­menn­ing­ur leiti til po­púlí­skra flokka þegar venju­legir flokk­ar bregð­ist fólki og bend­ir hann á að á Norður­lönd­um hafi nýlegir hægri­flokk­ar verið tekn­ir inn í stjórn­ar­sam­starf og sjón­ar­mið þeirra algjör­lega viður­kennd.

„Þannig að þetta sjón­ar­mið er núna viður­kennt á Norður­lönd­um. En ég er hrædd­ur um að svo sé ekki í Bret­landi, og þá mun al­menn­ing­ur rísa upp,“ sagði Hannes Hólm­steinn að end­ingu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við