Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ég taldi mig þekkja vandann en er samt í sjokki

Steindór Þór­ar­ins­son skrifar opinn pist­ill til heil­brigð­is­ráð­herra, land­læknis og for­ystu heil­brigð­is­kerf­is­ins

Ég taldi mig þekkja vandann en er samt í sjokki
Steindór Þór­ar­ins­son Spyr góðra spurn­inga og von­andi verður svar eða svör á borð­inu innan tíðar Mynd: Aðsend

Ég fékk nýlega þær þung­bæru fréttir að Bríet Irma, ung kona sem ég þekkti, hefði tekið eigið líf.

Ég setti stuttan minn­ing­ar­sta­tus.

Svo fór að rigna inn sögum.

Fjörutíu og ein ítar­leg frá­sögn um bið og loknar dyr. Yfir hund­rað skila­boð frá fólki sem þorir ekki að leita sér hjálpar af ótta við for­dóma hjá sama kerfi og það þarf á að halda.

Ég taldi mig þekkja vand­ann.

Ég er samt í sjokki.

Þetta snýst ekki um tölur. Þetta snýst um fólk með drauma og fjöl­skyldur. Foreldra sem halda heim­ili saman. Ungmenni sem leita leiðar. Aðstand­endur sem standa vakt­ina og brenna út.

Á bak við hverja línu í töflu er mann­eskja með nafn.

Nú spyr ég ykkur sem mann­eskjur áður en þið eruð ráð­herrar, stjórn­endur eða sér­fræð­ingar.

Finnst ykkur þetta í lagi?

Fordómar kosta líf og traust og fólk skrifar mér að það þori ekki að biðja um hjálp. Ótti við stimpil. Ótti við að verða merkt sem vanda­mál. Á meðan bíður lífið.

Finnst ykkur þetta í lagi?

Snemmtæk þjón­usta sparar líf og sparar fé. Færri bráðar inn­lagnir. Minni tími á bráða­mót­töku. Færri útköll. Færri fang­els­is­daga. Minna fram­leiðnitap. Minni byrði á aðstand­endum.

Þetta er ekki slag­orð heldur skyn­semi.

Finnst ykkur í lagi að bíða eftir skað­anum í stað þess að grípa inn fyrr?

Fimm svör sem ég óska eftir:

Hver er raun­bið í dag eftir fyrstu þjón­ustu hjá heilsu­gæslu og sér­hæfðri geð­þjón­ustu og hvernig er hún mæld.

Hvað tekur langan tíma að kom­ast í grein­ingu og fyrstu með­ferð ef við­kom­andi hefur engin fjár­ráð og hvar er lif­andi leið inn?

Hver ber fram­kvæmd­ará­byrgð á því að stytta bráða bið næstu þrjá­tíu daga hjá börnum og full­orðnum með nafni og síma­núm­eri?

Hvaða þrjár aðgerðir fara í gang strax í dag til að koma í veg fyrir end­ur­teknar bráða­komur án eft­ir­fylgdar?

Hvenær og hvernig birt­ist reglu­leg, opin­ber upp­færsla á bið­tíma, úrræðum og árangri á einum stað sem allir skilja?

Ef kerfið er í lagi má svara þessu strax. Ef kerfið er ekki í lagi þarf að segja það hreint út og laga það núna.

Hvað þarf að ger­ast strax í dag?

Opna sam­fellda bráða leið í þjón­ustu sem virkar utan skrif­stofu­tíma og tryggja tíma­bundna fag­þjón­ustu án greiðslu fyrir fólk með litla eða enga greiðslu­getu.

Setja stutt, mark­viss stuðn­ings­við­töl með skýrri eft­ir­fylgd í heilsu­gæslu.

Bjóða skjót ráð­gjafa­sam­töl fyrir aðstand­endur með skýra leið inn í kerfið.

Virkja sam­starf við félaga­sam­tök sem geta mætt fólki strax.

Ég skrifa sem mann­eskja með ADHD og reynslu af kerf­inu en ég fékk grein­ingu seint og greiddi sjálfur fyrir mat. Ég á fólk sem styður mig. Ekki allir hafa þann stuðn­ing. Þess vegna þarf þjón­ustu sem tekur á móti án stimpl­unar.

Ég er að stofna Strax í dag. Grasrót sem krefst virkrar þjón­ustu, gagn­sæis og sam­ráðs. Ég aug­lýsi kynn­ing­ar­fund fljót­lega.

En aðal­at­riðið er að fá svör og sjá aðgerðir.

Til ykkar sem haldið um stjórn­völ­inn:

Tölum saman. Sýnum hug­rekki. Setjum fólkið á undan ferl­inu. Finnst ykkur þetta í lagi eins og staðan er í dag?

Til þeirra sem eiga erfitt.

Píeta er í síma 552 2218 og á vefnum pieta.is. og Neyð­ar­línan er opin allan sól­ar­hring­inn alla daga.

Það er í lagi að leita hjálpar. Það er styrkur. Þú ert ekki ein eða einn. Ég gefst ekki upp. Við getum lagað þetta. En það þarf svör, sam­kennd og aðgerðir sem byrja strax í dag.

Höfundur er með ADHD og PTSD, og er við­ur­kenndur mark­þjálfi og stofn­andi STRAX Í DAG.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina