Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Ég kynntist fólki sem hafði mátt reyna að tilvist þess var dregin í efa“

Fyrr­ver­andi pró­fessor í íslenskri mál­fræði tjáir sig um stöðu sam­kyn­hneigðra eftir raf­magnað við­tal á RÚV í gær­kvöld

„Ég kynntist fólki sem hafði mátt reyna að tilvist þess var dregin í efa“
Eiríkur Rögn­valds­son Segir að við­horfs­breyt­ing hafi átt sér stað hjá honum árið 2015 Mynd: Árnastofnun

Eiríkur Rögn­valds­son, fyrr­ver­andi pró­fessor í íslenskri mál­fræði við Háskóla Íslands, tjáir sig á Facebook um stöðu sam­kyn­hneigðra eftir raf­magnað við­tal á RÚV í gær­kvöld þar sem þing­mað­ur­inn Snorri Másson ræddi mál­efni hinsegin fólks við Þor­björgu Þor­valds­dóttur, sem er verk­efna­stýri Sam­tak­anna ’78.

„Ég er orð­inn sjö­tugur og alinn upp í sam­fé­lagi sem vissi varla, og við­ur­kenndi alls ekki, að sam­kyn­hneigð væri til – og að því marki sem það var vitað var hún talin óeðli, enda kölluð „kyn­villa“ og „iðk­endur“ hennar „kyn­vill­ingar“.

Þetta var eitt­hvað sem maður las bara um í blöðum – ég held að ég hafi verið kom­inn vel á þrí­tugs­aldur þegar ég frétti fyrst af nafn­greindu fólki á Íslandi sem væri sam­kyn­hneigt og lík­lega kom­inn yfir þrí­tugt þegar ég kynnt­ist fyrst fólki úr þeim hópi.“

Eiríkur nefnir að „eftir á hefur svo komið í ljós að ýmis skóla­systk­ini mín á ýmsum tímum – og jafn­vel kenn­arar – voru og eru sam­kyn­hneigð en ekk­ert þeirra var komið út úr skápnum á átt­unda ára­tugnum og þetta hvarfl­aði ekki að manni á þeim tíma – það var eitt­hvað svo fjar­lægt.“

Eiríkur segir að við­horf hans til sam­kyn­hneigðar og sam­kyn­hneigðra hafi á þessum tíma verið svipuð og algeng­ast var í minni kyn­slóð, kannski ekki bein­línis and­styggð en hálf­gerð óbeit samt.

„En á sein­ustu ára­tugum síð­ustu aldar breytt­ust við­horf mín til þess­ara mála smátt og smátt, svona í takt við þró­un­ina í þjóð­fé­lag­inu, og sem betur fer var ég búinn að losa mig alveg við for­dómana – fannst mér sjálfum a.m.k. – þegar náfrænka mín kom út úr skápnum nokkru eftir alda­mótin.“

Segir Eiríkur að þá fyrst hafi hann farið að sýna í verki stuðn­ing við bar­áttu sam­kyn­hneigðra; með því að taka þátt í gleði­göngum - ganga í Samtökin ´78, og ganga úr Þjóð­kirkj­unni í mót­mæla­skyni við afstöðu hennar til hjóna­bands sam­kyn­hneigðra.

„Samt var ég enn fastur í ýmsum gömlum hug­myndum. En það urðu hvörf í við­horfum mínum fyrir réttum tíu árum, haustið 2015, þegar fyrr­ver­andi nem­andi minn, Þorbjörg Þor­valds­dóttir, fékk mig til þess að setj­ast í dóm­nefnd fyrstu nýyrða­sam­keppni Sam­tak­anna ´78 með ýmsu góðu fólki – þar á meðal var Ugla Stefanía.“

Eiríkur seg­ist vera ævin­lega þakk­látur fyrir þetta og í umræðum og starfi í nefnd­inni átt­aði hann sig á því að kyn, kyn­vit­und, kyn­gervi, kyn­hneigð og kyntján­ing fólks getur verið marg­falt fjöl­breytt­ari en hann sjálfur hafði haft hug­mynd um.

„Og það sem meira var – ég kynnt­ist fólki sem hafði mátt reyna á eigin skinni að til­vist þess var dregin í efa og það sem fyrir þeim var ískaldur raun­veru­leiki þeirra sjálfra var kallað óeðli, mis­skiln­ingur, sýni­þörf, tikt­úrur – eða hug­mynda­fræði.“

Haustið 2015 hélt Mímir, sem er félag íslensku­nema, sam­komu í Árna­garði í til­efni af degi íslenskrar tungu þar sem Alda Villi­ljós og María Helga Guð­munds­dóttir töl­uðu um hinsegin fólk og íslensk­una.“

„Það var ekki síður opin­berun fyrir mig sem mál­fræð­ing, sem fram að því hafði gefið lítið fyrir tal um meinta karllægni tungu­máls­ins og fund­ist til­raunir til að draga úr henni byggðar á mis­skiln­ingi – og for­nafnið „hán“ óþarft og ljótt. En þarna átt­aði ég mig á því hvað það er sárt að finn­ast sér vera úthýst úr sínu eigin móð­ur­máli – hvað það skiptir miklu máli fyrir hinsegin og kynsegin fólk – eins og auð­vitað okkur hin – að þau sjálf og ást­vinir þeirra geti talað um þau á þann hátt og með þeim orðum sem þau sjálf kjósa.“

Eiríkur færir í tal að honum finn­ist „að þetta tvennt fyrir tíu árum hafi breytt mér – gert mig víð­sýnni og umburð­ar­lynd­ari gagn­vart hvers kyns fjöl­breyti­leika mann­lífs­ins. Þess vegna finnst mér ömur­legt, og í raun þyngra en tárum taki, að heyra unga menn í for­rétt­inda­hópi halda því fram að raun­veru­leiki fólks sé bara hug­mynda­fræði. Því fylgja ómældir erf­ið­leikar af ýmsu tagi að koma út sem trans og fárán­legt að halda – eða halda því fram – að fólk geri það að gamni sínu, bara si svona.“

Að end­ingu segir Eiríkur að þótt hann þekki ekki „margt trans fólk þekki ég ýmsa sem eiga trans börn á ýmsum aldri og veit að þau eru skelf­ingu lostin yfir þró­un­inni og hafa miklar áhyggjur af fram­tíð barna sinna. Reynum bara að vera almenni­legar mann­eskjur og leyfa fólki að vera eins og það er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina