Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Landlæknir styður hinsegin fólk

Þegar mann­rétt­indi hinsegin fólks eru ekki virt getur það haft alvar­leg áhrif á heilsu segir Land­læknir

Landlæknir styður hinsegin fólk
María Heim­is­dóttir lands­læknir Tekur afstöðu með trans fólki. Mynd: Embætti Landlæknis/Olga Björt Þórðardóttir

Í pistli sem emb­ætti Land­læknis hefur birt á sam­fé­lags­miðlum tekur emb­ættið afstöðu með hinsegin fólki en miklar umræður hafa skap­ast á sam­fé­lags­miðlum um hinsegin fólk og þá sér­stak­lega trans fólk eftir ummæli Snorra Mássonar, þing­manns Mið­flokks­ins, í Kast­ljósi í gær þar sem rætt var um stöðu trans fólks á Íslandi og í heim­inum.

„Meg­in­hlut­verk emb­ættis land­læknis er að stuðla að heil­brigði lands­manna - allra lands­manna,“ stendur í til­kynn­ingu emb­ætt­is­ins. „Heilsa mót­ast m.a. af sam­fé­lags­legum aðstæðum, við­horfum og aðgengi að þjón­ustu og ein grund­vall­ar­for­senda góðrar heilsu er að njóta mann­rétt­inda. Þegar mann­rétt­indi hinsegin fólks eru ekki virt getur það haft alvar­leg áhrif á heilsu. Þung­lyndi, kvíði, sjálfs­vígs­hugs­anir og lík­am­leg van­líðan eru algeng­ari meðal þeirra sem verða fyrir félags­legri útskúfun eða ofbeldi. Þetta er ekki vegna þess að hinsegin fólk sé veik­ara, síður en svo – heldur vegna þess að sam­fé­lagið hefur oft brugð­ist þeim.“

Þá segir í pistl­inum að mann­rétt­indi sé þannig ekki aðeins sið­ferði­leg krafa heldur lífs­nauð­syn­leg for­senda heilsu. Í þessu felist réttur til að lifa líf­inu án þess að þurfa að vera í felum með kyn­vit­und og kyn­hneigð, án ótta við mis­munun, ofbeldi eða úti­lokun. Þá segir einnig að öll eigi rétt á við­eig­andi heil­brigð­is­þjón­ustu og að ginsegin fólk geti þurft sér­hæfða þjón­ustu, t.d. í tengslum við kyn­stað­festandi með­ferð, HIV-for­varnir eða geð­heil­brigði. Mann­rétt­indi tryggja að slík þjón­usta sé veitt af virð­ingu, fag­mennsku og án for­dóma. Og við eigum öll rétt á vernd gegn mis­munun - því miður eru of mörg dæmi þar sem hinsegin ein­stak­lingar upp­lifa for­dóma, sem getur leitt til van­trausts og þess að fólk forð­ist að leita sér heil­brigð­is­þjón­ustu. Að þessu þurfum við að hyggja.

Embætti telur að lausnin liggi í virð­ingu.

Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­insHefur verið gagn­rýndur fyrir ummæli sín í Kast­ljósi

„Að tryggja mann­rétt­indi hinsegin fólks er ekki aðeins rétt­læt­is­mál – það er heil­brigð­is­mál. Þegar fólk fær að vera það sjálft, lifa í öryggi og fá þjón­ustu sem tekur mið af þeirra þörfum, þá fær það tæki­færi til að njóta bestu heilsu.“

Þá segir emb­ættið að mann­rétt­indi séu ekki lúxus heldur líf og fyrir hinsegin fólk eru þau lyk­ill­inn að lífi í heil­brigði, mann­legri reisn og von. „Embætti land­læknis hvetur alla lands­menn til að tryggja mann­rétt­indi fyrir okkur öll sem hér búum, þannig byggjum við sterkara og betra sam­fé­lag. Mann­rétt­indi fyrir öll eiga að vera sjálf­gefin, þú þarft ekki að skilja, þú þarft bara að virða,“ stendur að lokum í pistl­inum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina