Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rannsaka dularfullan súludauða á Vopnafirði

Fuglaflensa mögu­leg skýr­ing

Rannsaka dularfullan súludauða á Vopnafirði
Vopna­fjörður Um 30 súlur hafa fund­ist dauðar á Vopna­firði und­an­farna daga Mynd: east.is

Mat­væla­stofnun (MAST) rann­sakar nú hvað olli dauða rúm­lega 30 súlna sem fund­ist hafa á und­an­förnum dögum á Vopna­firði. Ein helsta til­gátan er að fugl­arnir hafi verið með fuglaflensu, en ekki er þó úti­lokað að aðrar ástæður liggi að baki.

Brigitte Brugger, fugla­sér­fræð­ingur hjá MAST, segir í sam­tali við Aust­ur­frétt, fjöld­ann á til­tölu­lega litlu svæði gefa til kynna að skæður vírus gæti verið um að ræða. Hún vill þó bíða nið­ur­stöðu sýna­töku áður en hægt verði að full­yrða nokkuð. Brugger bendir á að síð­sumar og haust sé sér­stak­lega við­kvæmt tíma­bil, þar sem margir ung­fuglar eru á ferð­inni, þeir séu almennt mun ber­skjald­aðri gagn­vart sýk­ingum en eldri fuglar.

„Það er búið að taka sýni og koma til rann­sókn­ar­stofu til að ganga úr skugga um hvað þarna sé á ferð­inni. Ég á von á að við fáum skýr svör um orsak­irnar síðar í þess­ari viku eða snemma í þeirri næstu. Þó fuglaflensu hafi ekki orðið vart nú um nokk­urt skeið er þessi tími mik­il­vægur sökum ung­fugl­anna sem flögra um en þeir eru mun við­kvæm­ari fyrir hvers kyns sjúk­dómum. Þess vegna erum við sér­stak­lega á varð­bergi á þessum tíma og ég vil endi­lega biðja fólk um að hafa sam­band við okkur ef vart verður við dauða fugla um þessar mundir.“

Síðast barst MAST til­kynn­ing um óvenju­legan fugla­dauða fyrir rúmum mán­uði, þegar fjöldi dúfna fannst dauður í Vest­manna­eyjum. Þar reynd­ist þó ekki um fuglaflensu að ræða.

Þrátt fyrir það er fuglaflensan enn útbreidd víða í Evrópu. Frá Noregi til Spánar hafa verið gefnar út við­var­anir vegna þess­arar hættu­legu pestar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil