Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Segir alveg öruggt „að samfélagsmiðlarnir magna haturstjáningu“

Hatur er nýr íslenskur heim­ild­ar­þáttur er fjallar um upp­gang hat­urs­orð­ræðu á Íslandi og bakslagið sem orðið hefur í bar­áttu ýmissa minni­hluta­hópa á síð­ustu miss­erum

Segir alveg öruggt „að samfélagsmiðlarnir magna haturstjáningu“
Bergur Ebbi Fjöl­hæfur og fynd­inn með afbrigðum. Klár. Mynd: Aðsend

Hatur er nýr íslenskur heim­ild­ar­þáttur er fjallar um upp­gang hat­urs­orð­ræðu á Íslandi og bakslagið sem orðið hefur í bar­áttu ýmissa minni­hluta­hópa á síð­ustu miss­erum. Leitast er við að svara spurn­ing­unni um hvernig bakslagið fór af stað, hvaðan hat­rið stafar og hvaða leið er út úr þess­ari stöðu.

Í nýjasta þætt­inum ræðir þátta­stjórn­and­inn, Ingileif Frið­riks­dóttir, við Berg Ebba rit­höf­und og uppi­stand­ara sem tjáir sig mikið um hætt­urnar er fylgja sam­fé­lags­miðlum:

Bakslag

„Annars vegar er alveg öruggt að sam­fé­lags­miðl­arnir magna hvers konar tján­ingu, þar á meðal hat­ur­stján­ingu, en áhrifin eru líka þau að þau afhjúpa hugs­anir sem hefðu ann­ars kannski grass­er­ast undir niðri,“ segir Bergur Ebbi og bætir þessu við:

„Við sjáum þau brjál­æð­is­legu áhrif sem sam­fé­lags­miðlar hafa haft á hvers konar sam­skipti, miðl­un­ar­leiðir, tján­ingu og í raun hvernig við upp­lifum sann­leik­ann, hvað er rétt og hvað er rangt.“.

Hatur er nýr íslenskur heim­ild­ar­þáttur um upp­gang hat­urs­orð­ræðu á Íslandi og bakslagið sem orðið hefur í bar­áttu ýmissa minni­hluta­hópa á síð­ustu miss­erum.

Þar er rætt við sér­fræð­inga, stjórn­mála­fólk og þau sem hafa orðið fyrir hat­urs­orð­ræðu, en auk þess er ljósi varpað á aukið aðgengi ungs fólks að hatri í gegnum sam­fé­lags­miðla og Bergur Ebbi rekur sögu lýð­ræðis á Vest­ur­löndum:

„Við erum búin að vera að malla með þetta lýð­ræð­is­konsept sem grunn­hug­mynd að okkar þjóð­skipu­lagi, alla­vega á Vest­ur­löndum, frá tíma frönsku stjórn­ar­bylt­ing­ar­innar. Við vitum að fyrir 200 árum síðan var kosn­inga­réttur ekki almennur og lýð­ræðið bara grunn­hug­mynd sem við höfum verið að malla með sem sósu, alltaf að henda nýjum inni­halds­efnum inn. Á ein­hverjum tíma­punkti komu elem­ent eins og kosn­inga­réttur kvenna og almenn­ari og víð­tæk­ari leiðir til að veita stofn­unum þjóð­fé­lags­ins aðhald.“

Sósan er að þykkna

Svo bæt­ist tæknin við og upp­lýs­inga­miðlun eykst og það verða miklar vend­ingar að mati Bergs Ebba er sam­fé­lags­miðl­arnir koma til sög­unnar:

„Á 20. öld kemur útvarp og sjón­varp sem urðu kannski með réttri eld­un­ar­að­ferð að góðum við­bótum við lýð­ræð­is­sós­una sem við vorum að búa til. Þó að tækninýj­ungar og þjóð­fé­lags­breyt­ingar feli í sér áskor­anir gagn­vart lýð­ræði hefur okkur tek­ist að blanda þessu inn í þetta þjóð­skipu­lag okkar. En svo urðu miklar vend­ingar. Fyrir tíu fimmtán árum koma snjall­tækin og sam­fé­lag­miðl­arnir inn. Við erum ekki að malla sömu sós­una lengur.“

Sam­fé­lags­miðl­arnir hafa valdið straum­hvörfum í upp­lýs­inga­veitu hjá fólki en einnig óreiðu; það varð þó ekki ljóst hve mikil áhrifin yrðu fyrr en löngu síðar.

„Í fyrstu held ég að við höfum hugsað þessa hluti sem hverja aðra við­bót við þetta þjóð­skipu­lag okkar og að við gætum hent þessu inn í sós­una sem við erum að malla en þegar lið­inn er þessi tími og við sjáum þau brjál­æð­is­legu áhrif sem sam­fé­lags­miðlar hafa haft á hvers konar sam­skipti, miðl­un­ar­leiðir, tján­ingu og í raun hvernig við upp­lifum sann­leik­ann, hvað er rétt og hvað er rangt.“

Sam­fé­lags­miðlar breyttu heim­inum

Segir Bergur Ebbi það vera ljóst að heim­ur­inn breytt­ist við til­komu sam­fé­lags­miðla og þar með sósan sem mallað hefur lengi í hinum litaglaða og risa­stóra potti alheims­ins og allra er honum tengj­ast að ein­hverju leyti, litlu leyti eða að miklu leyti:

„Þá held ég hrein­lega að við getum verið að nálg­ast þá nið­ur­stöðu að þetta sé eitt stærsta nýja inni­halds­efnið sem við höfum fengið í okkar þjóð­skipu­lag síðan við fórum að malla í þess­ari sósu. Ég held hrein­lega að það gæti verið heið­ar­legra að við­ur­kenna að við erum ekki að malla með sömu sós­una lengur.“

Einum fimmtán árum eftir til­komu Facebook erum við sem sam­fé­lag byrjuð að gera okkur grein fyrir alvar­leika máls­ins segir Bergur Ebbi og bætir þessu við:

„Annars vegar er alveg öruggt að sam­fé­lags­miðl­arnir magna hvers konar tján­ingu, þar á meðal hat­ur­stján­ingu, en áhrifin eru líka þau að þeir afhjúpa hugs­anir sem hefðu ann­ars kannski grass­er­ast undir niðri. Það er erfitt að svara í eitt skipti fyrir öll hvort þessi tækni hafi bein áhrif á hat­urs­hugs­anir sem slíkar en það er alveg öruggt að þær eru meira áber­andi og meira uppi á yfir­borð­inu.“

Hat­urs­orð­ræða er valda­tól

Hatrið sem kemur upp á yfir­borðið er notað sem valda­tæki ákveð­inna afla, sem ýta undir það til að styrkja mál­stað sinn og stöðu.

„Hat­urs­orð­ræða hefur verið valda­tól afla sem vilja berja niður raddir minni­hluta­hópa og brot­hættra hópa. Í gegnum tíð­ina hefur það verið aðferða­fræði sem er notuð til að ná völdum,“ segir hann.

Og fyrir slíka hat­urs­orð­ræðu eru sam­fé­lags­miðl­arnir áhrifa­mik­ill vett­vangur.

„Það hefur oft verið það fyrsta sem ákveðnir hópar gera til að ná völdum, að þagga niður í ákveðnum hópum. Þeir hafa haft ýmis tól til þess en nú eru komin sterk­ari tól til að gera það.“

Með þess­ari staf­rænu þróun mynd­ist líka ugg­væn­legt rof á milli kyn­slóða sam­kvæmt Bergi.

„Það sem við töpum við að fara of geyst í þessu er þetta sam­tal á milli kyn­slóða. Ef við sitjum ekki öll við sama borð, ef eldri kyn­slóðir eru skildar eftir, getum við ekki miðlað af okkar reynslu og þekk­ingu til ann­arra kyn­slóða og öfugt. Og yngri kyn­slóðir geta ekki tjáð okkur hvað þær eru að upp­lifa í sínum veru­leika.“

En Bergur trúir því ekki að fólk sé illt í grunn­inn.

„Ég held það sé ekk­ert of barna­legt að ganga út frá þeirri grunn­for­sendu að fólk sé almennt gott og sé ekki í grunn­inn hatur í hug. En það er margt í okkar sam­fé­lagi sem byrgir okkur sýn og jafn­vel dregur mennsk­una burt út okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina