Icepharma hf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum MUNA Döðlur steinlausar en varan getur verið byrjuð að gerjast og er því óhæf til neyslu.
Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig geta þeir skilað henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Dreifing:
Verslanir Krónunnar; Nettó Hafnarfirði, Ísafirði, Borgarnesi, Húsavík, Mjódd, Akureyri, Salavegi, Hrísalundi, Höfn í Hornafirði, Eyrarvegi, Selfossi, Sunnukrika, Krossmóa, Egilsstöðum, Granda, Glæsibæ, Lágmúla, Selhellu; Kjörbúðin Blönduósi, Skagaströnd, Þórshöfn, Grundarfirði, Seyðisfirði, Neskaupstað; Krambúðin Búðardal, Laugalæk; 10-11 Laugavegi; Iceland Hafnarfirði; Fjarðarkaup; Kaupfélag V-Húnvetninga; Hlíðarkaup.































Athugasemdir