Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hjördís lýsir hættulegu atviki á mótmælunum á föstudaginn

„Stig­mögnun í sam­fé­lag­inu þegar kemur að afmennskun mót­mæl­enda“

Hjördís lýsir hættulegu atviki á mótmælunum á föstudaginn
Hjördís Eyþórs­dóttir Hjördís segir atvikið hafa verið hættu­legt Mynd: Aðsend

Ung kona, Hjördís Eyþórs­dóttir, sem tók þátt í aðgerðum fyrir framan Stjórn­ar­ráðið um helg­ina lýsir því í sam­tali við Mannlíf, hvernig kona hafi keyrt á hana þrisvar sinnum á meðan mót­mælin stóðu yfir. Hún segir atvikið hafa verið bæði „bein­línis hættu­legt og í víð­ara sam­hengi stór­hættu­legt“.

Í sam­tal­inu útskýrir Hjördís að mót­mælin hafi upp­haf­lega átt að fara fram á Hverf­is­götu klukkan 08:45, en að þau hafi verið flutt yfir að Utan­rík­is­ráðu­neyt­inu eftir að ljóst varð að eng­inn fundur yrði hjá rík­is­stjórn­inni. „Ég gekk þangað með lít­inn hóp og annar aðili varð eftir á Hverf­is­götu til að beina fólki á Utan­rík­is­ráðu­neytið,“ segir hún og bætir við að stemn­ingin hafi verið „góð, sterk og mjög kröftug“.

Hópurinn hafi gengið í kringum ráðu­neytið og síðan yfir á Lækj­ar­götu og að Stjórn­ar­ráð­inu. „Við göngum ská­halt yfir Lækja­göt­una öll saman sem hópur og ætli það hafi ekki komið í veg fyrir einn hring af grænu ljósi en fólk var almennt í góðu skapi og leyfði okkur að ganga yfir með fán­ana og tromm­urnar,“ segir hún.

Þegar hóp­ur­inn kom að Stjórn­ar­ráð­inu hafi hún sjálf „fundið fyrir ákveð­inni ábyrgð­ar­til­finn­ingu“ og því haldið sig aftar til að fylgj­ast með. „Ég var með trommu um háls­inn og var bara að horfa yfir hóp­inn og hugsa hvað ég ætti að gera næst.“

Þá hafi Hjördís tekið eftir ómerktum lög­reglu­bíl sem lagði „í fremsta ráð­herra­stæðið“ og fylgd­ist með umferð­inni. „Ég stóð aðeins út á götu og fylgd­ist með ómerkta lög­reglu­bílnum ... þetta voru örfáir bílar, það var engin umferð enda klukkan að ganga 10,“ segir hún í sam­tali við Mannlíf.

Þegar hún stóð þannig hafi kona ekið upp að henni. „Ég er með bakið í göt­una og finn fyrir nær­veru bíls, sem svo keyrir á mig í fyrsta sinn, ég sný mér við og sé téða konu, ég brosi til hennar og stend á sama stað og hún kallar eitt­hvað á mig úr bílnum sem ég heyri ekki og svo keyrir hún á mig í annað sinn, miklu harka­legar og mjög ein­beitt, ég man ég öskr­aði og sprakk úr hlátri, enda var ég í smá sjokki yfir að þetta væri raun­veru­lega að ger­ast, þegar maður er inni í svona aðstæðum þá er tím­inn afstæður, þetta voru í heild­ina kannski um 5-7 sek­úndur og í raun bara allt í einni biðu. "Höggin" frá bílnum komu í þremur skömmtum og það síð­asta var lengst og svona gerði það að verkum að maður varð að gef­ast upp og reyna að bjarga sér frá slösun með því að halla sér að bílnum og ég er í raun bara í svona fyrstu við­brögðum mínum þegar hún svo keyrir á mig í þriðja sinnið.“ Tekur hún fram að hún hafi vissu­lega staðið aðeins úti á götu en að nóg pláss hafi verið fyrir kon­una að kom­ast fram­hjá henni.

Hún segir að á þeirri stundu hafi ljós­mynd verið tekin af atvik­inu. „Ég er í raun öskr­andi, ekki beint hlæj­andi, en gef frá mér svona öskur og aðstæð­urnar eru kómískar ... en atvikið samt sem áður alvar­legt.“

Hjördís segir að það sé „með ólík­indum hvernig fólki tekst að rétt­læta það að keyra á gang­andi veg­far­endur“ og bendir á að um sé að ræða „stig­mögnun í sam­fé­lag­inu þegar kemur að afmennskun mót­mæl­enda“. Sjálf bendir hún á að hún sé bara ung kona úr Reykja­vík, sem er á vinnu­mark­aði, verslar í mat­inn, kyssir dóttur sína góða nótt og finnst gaman þegar það er gott veður. „Það virð­ist gleym­ast að við erum mann­eskjur, segir Hjördís og hlær.

„Við höfum núna séð lög­regl­una beita fólki óhóf­legu valdi með táragasi og hand­tökum á börnum, bíl­stjóra sem taka með­vit­aða ákvörðun um að keyra á fólk ... og nýlegt dæmi þar sem tveir ein­stak­lingar réð­ust á konu sem var að líma snið­göngu­lím­miða,“ segir Hjördís enn­fremur og bætir við að sama við­horf sjá­ist í „við­bjóðnum sem er í gangi í sam­bandi við ofbeldi á Gretu Thunberg um helg­ina“.

„Þetta hafa verið furðu­legir dagar og hræði­legt að lesa þessi komment þar sem fólki finnst í lagi að beita mót­mæl­endur ofbeldi, hlæja að holda­fari og nið­ur­lægja mót­mæl­endur í kommenta­kerf­inu.“

Að lokum segir Hjördís: „Ég get bara tala fyrir mig en það er svo merki­legt að öll atvik í líf­inu neyða mann í end­ur­skoðun ... ég stend með mann­rétt­indum fyrst og fremst, rétt­læti og minn stuðn­ingur fyrir Frjálsri Palest­ínu er í raun óhagg­andi.“

Hjördís líkur sam­tal­inu á þessum orðum:

„Þrátt fyrir nið­ur­læg­ing­una um helg­ina þá hef ég í raun aldrei verið betri. Við Íslend­ingar erum upp til hópa mjög léleg í gagn­rýn­inni hugsun og for­gangs­röðun ... réttur mið­aldra konu til að kom­ast leiðar sinnar trufl­un­ar­laust er ekki, því miður, næstum því sá sami og réttur gang­andi mann­eskju til öryggis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi