Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björn gagnrýnir stefnu Miðflokksins harðlega

„Hvers konar mús­ar­holu og mol­búa hugs­un­ar­háttur er þetta eig­in­lega?“

Björn gagnrýnir stefnu Miðflokksins harðlega
Snorri Másson Björn gagn­rýnir Snorra harð­lega Mynd: Víkingur

Sam­fé­lags­rýn­inn Björn Birg­is­son frá Grinda­vík gagn­rýnir nýtt slag­orð Ungra Mið­flokks­manna harð­lega í færslu á Facebook, þar sem hann segir slag­orðið end­ur­spegla þröng­sýna og úti­lok­andi heims­mynd.

Björn Birg­is­sonBjörn er ekki hrif­inn af stefnu Mið­flokks­ins

Björn vísar til þess að ungt fólk innan Mið­flokks­ins hafi tekið upp slag­orðið „Ísland fyrst, svo allt hitt“ í aðdrag­anda lands­fundar flokks­ins um helg­ina og bendir á að það sé „sótt í smiðju öfga­sinn­aðra hægri­flokka bæði aust­an­hafs og vestan.“

Í færslu sinni nefnir hann að „Snorri Másson, nýkjör­inn vara­for­maður Mið­flokks­ins, er á þess­ari línu“, og hafi í þing­ræðu talið upp nokkur verk­efni sem Ísland styður erlendis, en tekið skýrt fram að „fyrst ætti að hlúa að okkar fólki sem væri í vand­ræðum.“

Björn gagn­rýnir þá afstöðu að Ísland eigi ekki að leggja sitt af mörkum í alþjóð­legu hjálp­ar­starfi. Hann skrifar að Snorri „vilji ekki að við hjálpum fólki á Gaza. Ekki í Úkraínu heldur. Ekki í Afríku.“

„Íslend­ingar eigi að nota alla þá pen­inga sem rata í rík­is­kass­ann hér inn­an­lands og verk­efnin séu næg,“ skrifar Björn og bætir við að þessi hugsun veki upp spurn­ingar:

„Ef skoð­ana­bræður Mið­flokks­ins leggðu undir sig heim­inn yrði þá klippt á allt hjálp­ar­starf á milli landa og heims­álfa?“

Hann spyr jafn­framt hvort Ísland mætti búast við að engar þjóðir kæmu til aðstoðar ef landið lenti í erf­ið­leikum, líkt og á fjár­mála­hrunsár­unum.

„Hvers konar mús­ar­holu og mol­búa hugs­un­ar­háttur er þetta eig­in­lega?“ spyr Björn og heldur áfram:

„Hvers vegna þarf endi­lega að tak­marka aðstoð við fólk í algjörri neyð og lífs­hættu við ein­hver landa­mæri?“

Björn segir að um sé að ræða „efna­hags­lega Apartheid stefnu“ sem bitni harka­lega á fólki í mestri neyð og hörm­ungum.

Í færsl­unni dregur hann einnig upp mynd af því hvernig þessi hugs­un­ar­háttur gæti komið fram inn­an­lands:

„Ef snjó­flóð, eld­gos, eða skriðu­föll eyði­leggja allar ver­ald­legar eigur og taka manns­líf við ein­hverjar til­teknar götur í bæj­ar­fé­lagi, eigum við þá ein­göngu að aðstoða fólkið sem er með íslenska kenni­tölu?“

Björn endar færslu sína á því að for­dæma stefnu flokks­ins í þessum málum:

„Kæru vinir. Ykkur finnst kannski fast eða harka­lega að orði kom­ist, en mér finnst stefna Mið­flokks­ins í þessum málum algjör mús­ar­holu- og mol­búa­stefna. Huglægur kær­leik­ur­inn er settur á aðra vog­ar­skál­ina og fjár­munir á hina og þar sigra þeir alltaf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum