Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hengdu upp myndir af brottvísuðum tvíburum við skrifstofu Viðreisnar

Samtökin No Borders Iceland krefj­ast þess að brott­vísun rúss­nesku fjöl­skyld­unnar verði dregin til baka og henni veittur rík­is­borg­ara­réttur

Hengdu upp myndir af brottvísuðum tvíburum við skrifstofu Viðreisnar
Mynd­irnar Við skrif­stofu Við­reisnar í morgun Mynd: Aðsend

Ljósmynd af nýfæddu tví­burunum sem var brott­vísað á dög­unum frá Íslandi, var hengd upp við skrif­stofu Við­reisnar á Suð­ur­lands­braut, í morgun, ásamt mynd af Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur dóms­mála­ráð­herra. Á þeirri mynd var búið að skrifa Þorbjörg þrjótur, mann­rétt­inda­brjótur.

Mót­mæla­myndinMyndin var hengd upp við skrif­stofu Við­reisnar

Samtökin No Borders Iceland stóðu fyrir mót­mælum fyrir utan dóms­mála­ráðu­neytið í morgun, þar sem brott­vísun rúss­neskrar fjöl­skyldu var mót­mælt. Um er að ræða hjón og þrjú ung börn þeirra, þar af nýfædda tví­bura. Konan er heilsu­tæp og hefur not­ast við hjóla­stól að und­an­förnu. Þá sætti eig­in­mað­ur­inn pynt­ingum og ofsóknum yfir­valda í Rúss­landi en hann var stjórn­ar­and­stæð­ingur. Var fjöl­skyldan vísað til Króatíu, sem hefur verið gagn­rýnt fyrir að gefa fáum Rússum alþjóð­lega vernd og er ótt­ast að fjöl­skyldan verði send aftur til Rúss­lands.

Rúss­nesku tví­burarnirFyrstu vikur tví­bu­r­anna hafa ekki verið auð­veldar
Stóri bróðirLjósmynd af stóra bróður tví­bu­r­anna var einnig hengd upp

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs fóru mót­mælin frið­sam­lega fram en um 30 manns mætti á þau. Diana Burkot með­limur Pussy Riot var með ræðu á mót­mæl­unum, sem og Valur Gunn­ars­son sagn­fræð­ingur og Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, lög­maður og fyrr­ver­andi þing­maður.

Þá var Jakobi Birg­is­syni, aðstoð­ar­manni dóms­mála­ráð­herra afhent mappa með eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu og kröfum mót­mæl­enda:

Gadzhi Gadzhiev og Mariiam Taimova, hjón frá Rúss­landi, komu hingað til Íslands ásamt tveggja ára syni sínum eftir að hafa flúið póli­tískar ofsóknir af hálfu rúss­neskra yfir­valda en Gadzhi var fang­els­aður fyrir að and­mæla stjórn­völdum. Eftir áhættu­með­göngu og alvar­lega heilsu­farskvilla Mariiam eign­uð­ust þau hjónin tví­bura sem fæddir voru með keis­ara­skurði. Engu að síður var fjöl­skyldan hand­tekin tveimur vikum síðar og brott­vísað frá Íslandi til Króatíu, fyrsta Schengen-rík­is­ins sem þau höfðu við­komu í. 

Nánasta fjöl­skylda Gadzhi Gadziev – móðir, systir og bróðir – hefur fengið var­an­legt dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli einmitt þeirra sömu póli­tísku ofsókna og hann sætir sjálfur. Þrátt fyrir það ákváðu íslensk yfir­völd að vísa honum úr landi og skilja fjöl­skyld­una og bak­land þeirra að.

Króatísk stjórn­völd hafa verið harð­lega gagn­rýnt af mann­rétt­inda­sam­tökum á borð við Amnesty International fyrir að end­ur­senda umsækj­endur um alþjóð­lega vernd til Rúss­lands. Árið 2023 sam­þykkti Króatía ein­ungis 0,3% umsókna um alþjóð­lega vernd frá Rússum, sam­kvæmt gagna­grunni AIDA.

Með þessu hafa íslensk stjórn­völd komið því í kring að fjöl­skyldan stendur frammi fyrir raun­veru­legri hættu á fang­elsun, pynt­ingum og ofbeldi.

Í við­tali á Vísi segir Víðir Reyn­is­son, for­maður alls­herj­ar­nefndar Alþingis að Útlend­inga­stofnun og Rík­is­lög­reglu­stjóri hafi ein­göngu verið að vinna eftir sínu verk­lagi. 

„Það eru lögin sem við setjum sem þau eru að vinna eftir og við verðum að vera til­búin að end­ur­skoða það þegar svona ger­ist hvort regl­urnar okkar séu nógu mann­úð­legar.“

Með þessu við­ur­kennir Víðir að málið sé ekki eins­dæmi, það er afleið­ing lög­gjafar sem grefur kerf­is­bundið undan rétt­indum fólks á flótta. Þrátt fyrir þá stað­reynd er nýtt frum­varp dóms­mála­ráð­herra til umfjöll­unar í þing­inu sem mun skerða rétt­indi fólks á flótta enn frekar verði það sam­þykkt. 

Íslensk stjórn­völd brjóta í þessu máli gegn 42. grein útlend­inga­laga, sem kveður á um grund­vall­ar­regl­una um bann við end­ur­send­ingu (non-refoulement). Í 1. mgr. grein­ar­innar segir skýrt:

„Ekki er heim­ilt sam­kvæmt lögum þessum að senda útlend­ing eða rík­is­fangs­lausan ein­stak­ling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að ótt­ast ofsóknir eða þar sem hann er í yfir­vof­andi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómann­úð­legri eða van­virð­andi með­ferð.“

„1. mgr. á einnig við um send­ingu útlend­ings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.”

Þessi regla er laga­leg skylda Íslands sam­kvæmt bæði íslenskum lögum og alþjóða­sátt­málum. Með því að vísa fjöl­skyld­unni úr landi, til lands sem af öllum lík­indum mun end­ur­senda hana til þeirrar ógn­ar­stjórnar sem ræður ríkjum í Rúss­landi, hafa íslensk yfir­völd brotið gegn þess­ari grund­vall­ar­reglu.

Við komu fjöl­skyld­unnar til Rúss­lands má ætla að börnin verði tekin af hjón­unum. Hjónin sett í fang­elsi og börn­unum komið fyrir á mun­að­ar­leys­ingja­hæli. Sú hætta er að börnin fái aldrei að þekkja upp­runa sinn eða sam­ein­ast for­eldrum sínum að nýju.

Kröfur til dóms­mála­ráð­herra eru eft­ir­far­andi:

  1. Rík­is­stjórnin beiti öllum ráðum til að tryggja að fjöl­skyldan verði ekki send til Rúss­lands frá Króatíu, þar sem hún sætir póli­tískum ofsóknum og yfir­vof­andi hættu á pynt­ingum, frels­is­svipt­ingu og líf­láti.
  2. Fjöl­skyld­unni verði veittur íslenskur rík­is­borg­ara­réttur með sam­þykki Alþingis.
  3. Íslensk stjórn­völd leiti allra leiða til að koma fjöl­skyld­unni aftur heim til Íslands. Svo sem með sam­skiptum við króat­ísk stjórn­völd um að flytja ábyrgð­ina á umsókn þeirra til Íslands skv. Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni, aft­ur­köllun á úrskurði kæru­nefndar, veit­ingu dval­ar­leyfa eða öðrum úrræðum.
  4. Rík­is­stjórnin fari að lögum og virði 42. grein útlend­inga­laga – banni við því að senda fólk þangað sem lífi þeirra er ógnað.
  5. Fallið verði frá frek­ari laga­setn­ingu sem hefur kerf­is­bundið rýrt rétt­indi fólks á flótta. Afnema þarf laga­breyt­ingar frá 2023 og 2024 sem leiddu til þessa máls og ann­arra sam­bæri­legra.

Ísland hefur skuld­bundið sig til að verja mann­rétt­indi – ekki brjóta þau. Við krefj­umst þess að íslensk stjórn­völd axli ábyrgð og snúi við þess­ari skelfi­legu ákvörðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi