Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mér finnst það skipta miklu máli að vera ekki ferkantaður pappakassi”

Helga Vala Helga­dóttir opnar sig um lög­mennsk­una, brott­hvarf úr stjórn­mál­unum, leik­list­ina og fleira í nýjasta hlað­varps­þætti Sölva Tryggva­sonar

„Mér finnst það skipta miklu máli að vera ekki ferkantaður pappakassi”
Helga Vala Helga­dóttir Helga Vala er nýjasti gestur Sölva Tryggva

Helga Vala Helga­dóttir lög­maður seg­ist ekki sakna þess sér­lega að vera á þingi, eftir að hafa sjálf ákveðið að hætta fyrir 2 árum síðan. Helga, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir það oft fela í sér mikla sál­gæslu að vera lög­fræð­ingur fólks og sér finn­ist mik­il­vægt að sýna mann­leika í starf­inu og vera ekki fer­kant­aður pappa­kassi:

„Ég var auð­vitað lög­maður áður en ég fór á þing og það lædd­ist aftan að mér á þing­inu að fólk fór að leita meira og meira til mín sem lög­manns þó að ég væri á þingi. Þannig að ég var aug­ljós­lega ekki búin með kvót­ann og átti eftir að klára þann pakka fannst mér. Þegar þetta fór að áger­ast, því ég held að það séu engar til­vilj­anir, þá hugs­aði ég bara: „Ókei, mér er ætlað annað hlut­verk núna,” segir Helga Vala, sem seg­ist ekki sakna hasars­ins í póli­tík­inni sér­stak­lega, enda sé starfið hennar sem lög­maður alls ekki fer­kantað skrif­borðs­starf:

„Ég er í þannig málum að það er mjög mikið „action” í gangi, ég er ekki að vinna í fjár­málum fyr­ir­tækja eða bók­haldi. Ég er að tala við tugi ein­stak­linga í hverri viku. Alls konar ein­stak­lingar í alls konar aðstæðum og það er eitt­hvað sem heldur mér vak­andi og á tánum, eins og í póli­tík­inni. Það hentar mér vel að vita ekki alveg að morgni hvernig dag­ur­inn verður, þó að það sé kannski ekki sér­lega fjöl­skyldu­vænt. Þetta starf er á stundum mikil sál­gæsla og í sumum málum þarf maður að spyrja skjól­stæð­ing­ana og sýna þeim per­sónu­legan áhuga. Þetta eru oft á tíðum mál sem snúa að lífi fólks, fram­tíð þeirra og á jafn­vel hug þeirra allan. Mér finnst það skipta miklu máli að vera ekki fer­kant­aður pappa­kassi og vera til staðar þegar það þarf. Ég er auð­vitað leik­kona og mér finnst sá bak­grunnur hjálpa. Að hafa lært í því fjög­urra ára námi mikið inn á mann­legt eðli og hvaðan fólk er að koma. Ég er ekk­ert alltaf sam­mála því fólki sem ég er að vinna fyrir, en geri alltaf mitt besta fyrir þau sem lög­mað­ur­inn þeirra.”

Það vakti tals­verða athygli þegar Helga Vala hætti á þingi fyrir tveimur árum síðan, ekki síst vegna þess að ákvörð­unin kom frá henni sjálfri, þar sem henni fannst ein­fald­lega rétt að hætta eftir að lög­mennskan fór að toga í hana:

„Það er miklu algeng­ara að fólki sé sparkað út, að það tapi próf­kjöri eða flokk­ur­inn tapi en að fólk hætti á þingi að eigin frum­kvæði. Það eru ekk­ert margir sem hafa tekið eigin ákvörðun um að hætta bara á þingi, en mér fannst það bara rétt. Ég átti kannski ekki von á að það myndi vekja svona mikla athygli, en mér fannst bara ekki rétt að vera í þessu nema ég væri alveg 100 pró­sent. Það er algengt að fólk hangi þarna inni lengur en það ætti að gera. Við megum ekki gleyma því að það eru bæði forr­rétt­indi og borg­ara­þjón­usta að vera á Alþingi og sá sem sest þangað inn á að sinna starf­inu af fullum krafti. Ég lærði mikið af því að vera inni á þingi og fannst það oft mjög gaman.” 

Helga Vala hefur tals­vert starfað í útlend­inga­málum og þekkir þau því vel í gegnum störfin sín. Henni finnst umræðan stundum of full af alhæf­ingum og ein­föld­unum, en það sé ljóst að margt hafi verið að á und­an­förnum árum:

„Það þarf að laga mjög margt í þessum málum og því hvernig er staðið að þessu öllu saman. Við erum ekki að standa okkur vel í því að veita þá aðstoð sem þarf til að fólk geti aðlag­ast. Við geymum fólk í búsetu-úrræðum í ákveð­inn tíma og það auð­vitað er dýrt. Það er dýrt að mennta fólk í íslensku og halda utan um fólk í byrjun, en við verðum að gera betur. Allur þessi kostn­aður sem er við það að láta fólk hanga hérna í eitt og hálft ár að bíða eftir svari er auð­vitað eitt­hvað sem við gætum lagað. Þá má fólk ekki vinna og þessi bið­tími er mjög dýr fyrir hið opin­bera. Það var póli­tísk ákvörðun að banna fólki að vinna á meðan það bíður eftir svari. Það væri mun mann­úð­legra að gefa fólki svar miklu hraðar. Við gætum sett pen­ing­inn sem fer í kostn­að­inn við að halda fólki uppi í þessarri bið í að gera allt kerfið mun straum­línu­lag­aðra, mann­úð­legra og betra. Eitt sem væri hægt að gera líka er að snúa fólki við strax á landa­mær­unum ef fólk er með saka­feril eða eft­ir­lýst.”

Helga Vala lærði leik­list eins og for­eldrar hennar og starf­aði sem leik­kona og leik­stjóri um tíma. Svo fór hún í fjöl­miðla og þar kynnt­ist hún lög­fræð­inni og í kjöl­farið kom svo þing­mennskan. Hún er þakk­lát fyrir að hafa fengið að starfa við svo margt og hafa átt fjöl­breyttan starfs­feril:

„Það er svo­lítið síðan ég var síð­ast tengd leik­list­inni, en ég fékk fyrir ekki svo löngu að leika í sjón­varps­þætti hjá Darra bekkj­ar­bróður mínum og í bíó­mynd hjá Balta, en maður verður að velja í líf­inu. Almennt er ég er mjög þakk­lát, bæði mér og fjöl­skyld­unni minni sem hvatti mig alltaf áfram. Stundum segi ég að ég viti ekki hvar ég væri ef ég væri ekki með svona öfl­ugt fólk í kringum mig.”

Hægt er að nálg­ast við­talið við Helgu Völu og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una