Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sagðist harðhentur, en hana grunaði ekki hvað myndi gerast

Maður sem skildi konu eftir með áverka og í áfalli sagð­ist hafa stundað BDSM-kyn­líf

Sagðist harðhentur, en hana grunaði ekki hvað myndi gerast
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Dæmdi mann í fimm ára fang­elsi fyrir nauðgun.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur dæmt Bjarka Fjarka Rúnar Gunn­ars­son í fimm ára fang­elsi fyrir nauðgun. Dómurinn taldi sannað „yfir skyn­sam­legan vafa“ að hann hafi þvingað brota­þola til kyn­ferð­is­maka og beitt hana grófu ofbeldi, meðal ann­ars með ítrek­uðu háls­taki og því að leggja kodda yfir and­lit hennar, þrátt fyrir skort á sam­þykki. Brota­þoli hlaut rif­beins­brot, útbreidda mar­bletti og heyrn­ar­skerð­ingu í hægra eyra.

Málið sner­ist að veru­legu leyti um það hvort sam­þykki hefði legið fyrir vegna áður­nefnds kyn­lífs. Maðurinn hélt því fram að um „BDSM-tengt“ kyn­líf hefði verið að ræða með „örygg­is­orði“, en dóm­ur­inn hafn­aði því: „Ekki er hægt að líta svo á að […] sam­þykki brota­þola hefði tekið til hvers kyn­ferð­is­at­hafna og ofbeldis.“ Dómurinn tók jafn­framt fram að brota­þoli hefði sagt örygg­is­orðið en ákærði „hélt áfram“.

Í sam­skiptum fyrir atvikið, sem varð í apríl 2023, höfðu aðilar rætt mörk á Instagram. Dómurinn benti á að brota­þoli hefði hafnað því að „vilja vera bara „runku­pappír“ eða „ekk­ert““ og að orða­lag eins og „try me“ gæti ekki talist almennt sam­þykki.

Konan hafði sagt að hún „elskaði að láta taka af sér völdin“ af því að hún væri með völdin dags dag­lega. Sam­tal­inu er lýst í dómnum: „Þá sagði ákærði að miðað við það sem hún segði væri hún ekki vön og hann spurði hvort hún vildi láta slá sig og kyrkja. Sagði brota­þoli þá að það mætti slá hana og kyrkja. Ákærði sagði þá að hann héldi að hún skildi ekki á hvaða „level“ hann væri og svar­aði brota­þoli: „Leyfðu mér þá að skilja það.“ Því svar­aði ákærði með því að skrifa „Ok“ og brota­þoli sagði að hún væri í alvör­unni til í það

„Samþykki ein­ungis [nær] til hátt­semi sem fyrir fram er skil­greind,“ segir í nið­ur­stöðukafla dóms­ins.

Dómurinn taldi fram­burð brota­þola trú­verð­ugan og studdan lækn­is­vott­orðum. Lýst var hvernig ákærði „þrýsti hné sínu á ofan­verða bringu hennar“ og að brota­þola hafi „á tíma­bili átt erfitt með and­ar­drátt“ vegna háls­taks og kodda yfir and­liti. Vitni á neyð­ar­mót­töku sögðu áverk­ana „passa vel“ við frá­sögn brota­þola.

Konan lýsir því að þegar hún hefði komið á heim­ili manns­ins „í þeirri trú að þau væru að fara að sofa saman“, en þá hefði hann „varað hana við því að hann væri harð­hentur“.

Þegar hún kom til ákærða hefði hann látið hana hafa örygg­is­orð (safe-word), hent henni á hnén, slegið hana í and­litið, tekið um háls hennar og lyft henni upp.

Í dómnum er haft upp úr fram­burði hennar að hún hefði frosið og lítið getað gert til að verj­ast ákærða, „en einu sinni náð að segja örygg­is­orðið og þá hefði ákærði stoppað þannig að hún náði and­anum en svo haldið áfram. Þá hefði hún einu sinni reynt að taka hendur hans af háls­inum á sér.“

Vitni sem hittu brota­þola, eftir að hún leit­aði til neyð­ar­mót­tök­unnar, stað­festu að hún hafi verið með „yfir­borðsá­verka á höfði og eymsli í vinstri kjálka auk mar­bletta um allan lík­amann“. Auk þess reynd­ist hún hafa orðið fyrir tognun og ofreynslu á háls­hrygg.

Við ákvörðun refs­ingar horfði dóm­ur­inn til þess að brotið var „gróft og lít­il­lækk­andi“, hafði „mjög alvar­legar afleið­ingar“ og að ákærði hefði áður hlotið dóm fyrir kyn­ferð­is­brot, sem hafði ítrek­un­ar­á­hrif. Auk fang­els­is­refs­ingar var ákærða gert að greiða brota­þola 2,5 millj­ónir króna í miska­bætur með vöxtum og drátt­ar­vöxtum, sem og sak­ar­kostnað og þókn­anir verj­anda og rétt­ar­gæslu­manns.

„Vernd­ar­and­lag nauð­ung­ar­á­kvæð­is­ins er sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur og athafna­frelsi fólks í kyn­lífi,“ segir í dómnum. „Ekki er hægt að líta svo á að sam­þykki brota­þola hefði tekið til ann­ars en hún hafði fyrir fram sam­þykkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina