Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Halla og ökklabrotið örlagaríka: „Kannski var almættið þarna að grípa í taumana?“

Halla Tóm­as­dóttir kom, sá og sigr­aði í síð­ustu for­seta­kosn­ingum í fyrra, en hún hafði einnig boðið sig fram til emb­ætti for­seta Íslands, átta árum áður, en þá beið hún lægri hlut gegn Guðna Th Jóhann­essyni. Líf hennar hefur verið fjöl­breytt og áhuga­vert, en hver er Halla Tóm­as­dóttir?

Halla og ökklabrotið örlagaríka: „Kannski var almættið þarna að grípa í taumana?“
Una hag sínum vel á Bessa­stöðum Hjónin glæsi­legu Halla Tóm­as­dóttir og Björn Skúlason. Mynd: Aldís Pálsdóttir / Skrifstofa forseta Íslands

Halla Tóm­as­dóttir er sjö­undi for­seti Íslands, en hún tók við emb­ætt­inu þann 1. ágúst árið 2024. Halla fædd­ist í Reykja­vík þann 11. októ­ber árið 1968 - og hefur hún starfað sem rekstr­ar­hag­fræð­ingur, kenn­ari, ráð­gjafi og fyr­ir­les­ari á alþjóða­vett­vangi.

Hún útskrif­að­ist með versl­un­ar­próf frá Versl­un­ar­skóla Íslands árið 1986, en hún var einnig skiptinemi í Banda­ríkj­unum - lauk síðan stúd­ents­prófi frá Fjöl­brauta­skól­anum við Ármúla. Þaðan lá leið Höllu í við­skipta­fræði með áherslu á stjórnun og mannauðs­mál frá Auburn Uni­versity at Montgomery, og lauk hún BS-gráðu árið 1993, síðan var það MBA-gráða með áherslu á alþjóð­leg sam­skipti og tungu­mál frá Thund­er­bird School of Global Mana­gement, árið 1995.

Um tíma stund­aði Halla stund­aði nám til dokt­ors­gráðu við Cranfield Uni­versity í Englandi, lagði stund á rann­sóknir í leið­toga­fræðum.

Forsetinn á ekki að vera pólitískur

Halla er ekki flokks­bundin og hefur aldrei starfað á vett­vangi stjórn­mála, hefur ekki íhugað að breyta því.

„Mér finnst stundum eins og stjórn­mála­menn þurfi að gefa of mikið eftir í sínum prinsipp­um. Ég hef aldrei keypt það að jafn stór mál eins og umhverf­is­vernd og jafn­rétt­is­mál falli í eitt­hvað vinstri/hægri. Þau eiga að spanna allan kvarð­ann,“ sagði hún í við­tali við Kjarnann 2016.

Henni finnst að for­set­i Íslands eigi ekki að vera póli­tískur, heldur eigi for­seti að leiða þá mark­vissu vinnu sem til þarf svo þau gildi sem okkur langar að lifa eftir verði inn­leidd.

„Við höfum ekki farið í þessa mjúku og ósýni­legu vinnu sem er ótrú­lega mik­il­væg. Ég sé fyrir mér að for­seti leiði þá vinnu með því að vera fyr­ir­liði í virkjun sam­fé­lags­ins í þeirri lang­tíma­veg­ferð, umræðu og aðgerðum sem þarf til að gild­is­matið og sam­fé­lagið verði það sem Íslend­ingar vilja.“

Nám og störf

Að afloknu námi í Banda­ríkj­unum starf­aði Halla við mannauðs­mál og stjórnun, til dæmis hjá Pepsi og M&M/Mars, og í allt dvaldi Halla í um einn ára­tug í Banda­ríkj­unum.

Á Íslandi starf­aði hún til dæmis sem mannauðs­stjóri hjá Íslenska útvarps­fé­lag­inu í eitt ár, áður en hún hóf störf við Háskól­ann í Reykja­vík - sem var þá nýstofn­aður.

Í þeim skóla kom Halla að upp­bygg­ingu, setti meðal ann­ars á fót stjórn­enda­skóla og símenntun og kenndi við skól­ann þar sem umbreyt­inga­stjórnun og stofnun og rekstur fyr­ir­tækja var tekin fyrir og greind ítar­lega.

Fyrsta konan yfir Viðskiptaráði

Árið 2006 tók Halla við stöðu fram­kvæmda­stjóra Við­skipta­ráðs. Hún varð fyrsta konan á Íslandi til að gegna þessu starfi, en hún staldr­aði þar stutt við: Halla sagði upp störfum árið eftir í þeim til­gangi að stofna Auði Capital - og var mark­miðið að koma með aðra og mann­legri nálgun inn í fjár­mála­geir­ann. Fyr­ir­tækið lifði af efna­hags­hrunið árið 2008, en í kjöl­far þess tók Halla afar virkan þátt í umræðum sem og verk­efnum er sneru að upp­bygg­ingu Íslands.

Þjóðfundurinn árið 2009

Halla var einn af níu stofn­endum Maura­þúf­unnar er hrinti í fram­kvæmd Þjóð­fund­inn árið 2009 - þar sem slembi­úr­tak Íslend­inga kom saman í Laug­ar­dals­höll­inni í þeim til­gangi að ræða þau grunn­gildi sem og þá fram­tíð­ar­sýn er myndi varða leið upp­bygg­ingar í íslensku sam­fé­lagi í kjöl­far efna­hags­hruns­ins.

Fyrir tíu árum síðan skipu­lagði Halla alþjóð­legu jafn­rétt­is­ráð­stefn­una Inspirally WE2015 (Women Empowerment) í Hörpu, en þar komu stjórn­mála­menn, leið­togar í við­skipta­líf­inu, fræði­menn og fleiri saman og leit­uðu leiða til fram­fara þegar kemur að jafn­rétti kynj­anna. Má nefna að Halla hefur meðal ann­ars hlotið FKA-við­ur­kenn­ing­una, jafn­rétt­is­við­ur­kenn­ingu Kópavogs, og árið 2009 var hún - ásamt Kristínu Pét­urs­dóttur - valin kven­frum­kvöð­ull Evrópu af Cartier, McKinsey og INSEAD, sem þykir afar mik­ill heiður.

Richard Branson spurði Höllu einnar spurningar

Árið 2018 varð Halla for­stjóri félaga­sam­tak­anna The B Team og gegndi hún því starfi til árs­ins 2024. Þessi sam­tök voru stofnuð af alþjóð­legum hópi leið­toga fyr­ir­tækja er vilja beita sér fyrir ábyrgum við­skipta­háttum. Það feli í sér sam­starf stjórn­valda, einka­geirans og almennra borg­ara í að takast á við mjög stórar áskor­anir, til dæmis lofts­lags­vána og ójöfnuð í sam­fé­lag­inu.

Það var Richard Branson - stofn­andi Virgin Group og Jochen Zeitz fyrr­ver­andi for­stjóra Puma - sem stofn­uðu The B Team og hefur Halla sagt hlut­verk sam­tak­anna vera það að upp­færa við­miðin og nálg­un­ina sem höfð eru í við­skiptum og í efna­hags­líf­inu.

Sumarið 2018 flutti Halla og fjöl­skylda aftur til Banda­ríkj­anna þar sem Halla hóf störf sem for­stjóri The B Team.

„Ég fór í fjórtán atvinnu­við­töl áður en ég fékk þetta starf og þetta var án efa erf­ið­asta ráðn­inga­ferli sem ég hef farið í gegnum eða heyrt um.“

Síðasta við­talið var við Richard Branson stofn­anda Virgin. Hann spurði Höllu „þó bara einnar spurn­ingar. Spurði ein­fald­lega:

„Hvað langar þig að gera?“

Hún segir spurn­ing­una vera „ótrú­lega merki­lega, því þegar þú hlustar á það hvernig umsækj­andi svarar þess­ari spurn­ingu, þá þarftu kannski ekk­ert að vita mikið meira.“

Forsetaframboð árið 2016

Halla ákvað að bjóða sig fram til for­seta Íslands árið 2016. Lagði hún mikla áherslu á inn­leið­ingu þeirra gilda er þjóðin sam­ein­að­ist um á Þjóð­fund­inum árið 2009: Heið­ar­leika, jafn­rétti, rétt­læti og virð­ingu. Hún lagði einnig mikla áherslu á að Ísland héldi áfram að vera í far­ar­broddi í jafn­rétt­is­málum í heim­inum og mark­miðið var að Ísland yrði fyrsta landið í heim­inum öllum til að brúa kynja­bilið.

Framan af for­seta­bar­átt­unni gekk ekki vel hjá Höllu og hafði Guðni Th Jóhann­es­son mikið for­skot á hana og virt­ist ætla að vinna öruggan og afger­andi sigur í bar­átt­unni um Bessa­staði.

Þegar upp var staðið fékk Halla fékk næst­flest atkvæði í for­seta­kosn­ing­unum og hafði sótt mikið í sig veðrið á miklum hraða á loka­spretti kosn­ing­anna, en Guðni Th hafði betur í afar spenn­andi kosn­ingum og tók Halla tap­inu með sóma og virð­ingu.

Í pistli sem Halla skrif­aði á vef­síð­una sína haustið 2016 sagði hún meðal ann­ars um for­seta­fram­boðið:

„Þegar erfitt reynd­ist að ná athygli fjöl­miðla ráð­lögðu ýmsir mér að breyta mér, að segja ekki þetta heldur hitt, að hjóla í þennan og hinn, og svo fram­vegis. Ég er þakk­lát ykkur sem stóðu mér næst og hvöttu mig ávallt til að vera ég sjálf. Við náðum að fara í gegnum allt ferða­lagið með jákvæðni og gleði.“

Það var fyrir átta árum - Taka tvö

Átta árum eftir fyrsta fram­boðið - árið 2024 - til­kynnti Halla öðru sinni fram­boð sitt til emb­ættis for­seta Íslands. Í þetta sinn gekk allt upp og var Halla kjörin for­seti með 73.182 atkvæðum - eða með 34,1% fylgi.

Í kosn­inga­bar­átt­unni lýsti Halla sig mót­fallna þátt­töku Íslands í kaupum á vopnum fyrir Úkraínu, sem hefur varist inn­rás Rússa í landið frá árinu 2022, og leiddi afstaða hennar til gagn­rýni af hálfu Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, sem þá var utan­rík­is­ráð­herra, sem kall­aði það hroka­fulla afstöðu að skil­yrða stuðn­ing við Úkraínu við að þeir keyptu ekki það sem þá helst vant­aði.

Halla tók opin­ber­lega við emb­ætti for­seta Íslands af Guðna Th Jóhann­essyni þann 1. ágúst 2024 - en Guðni, sem bar sig­ur­orð af Höllu árið 2016, hætti óvænt eftir að hafa verið afar vin­sæll for­seti í tvö kjör­tíma­bil.

Halla er því sjö­undi for­seti Íslands og önnur konan er gegnir emb­ætt­inu, en hin var Vigdís Finn­boga­dóttir sem var for­seti Íslands frá árinu 1980 til árs­ins 1996.

Könnun sem kom illa út

Halla kom ekk­ert sér­stak­lega vel út úr könnun í sept­em­ber í fyrra, þar sem fram kom að 45% Íslend­inga væru ánægð með störf Höllu sem for­seta, er það lægsta hlut­fall sitj­andi for­seta í könnun hingað til.

En það var aldeilis nóg að gera hjá Höllu stuttu eftir inn­setn­ing­una, hún fór í sína fyrstu opin­beru heim­sókn til Dan­merkur í októ­ber 2024. Nokkra athygli vakti að Halla tal­aði ensku við Friðrik kon­ung, sem og í ræðu sinni í Krist­jáns­borg í sömu heim­sókn.

Það vita það þó flestir að Íslend­ingar eru ekk­ert sér­lega áhuga­samir almennt um dönsku og það eru fáir Danir sem tala okkar ást­kæra ylhýra með skilj­an­legum hætti og því kom gagn­rýnin á Höllu varð­andi ensk­una ýmsum spánskt fyrir sjónir.

Þetta sama haust - í októ­ber­mán­uði - gekk mikið á í stjórn­mála­líf­inu hér á landi. Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, VG og Fram­sóknar sprakk eftir að hafa setið á valda­stóli í ein sjö ár. Þá hélt Halla sinn fyrsta rík­is­ráðs­fund á Bessa­stöðum þar sem hún fund­aði með leið­togum frá­far­andi rík­is­stjórn­ar­flokka fyrir utan VG.

Þótti hún standa sig með miklum sóma í stjórn­ar­slit­unum, sem og í allri umræðu um slitin og þá nýju rík­is­stjórn sem teikn­að­ist upp fljót­lega eftir að rík­is­stjórnin féll.

Halla og fjölskyldan

Halla er gift Grind­vík­ingnum Birni Skúla­syni við­skipta­fræð­ingi og heilsu­kokki, en hann rekur fyr­ir­tækið just björn sem fram­leiðir og mark­aðs­setur nor­rænar nátt­úru- og heilsu­vörur.

Hann var afar lið­tækur knatt­spyrnu­maður sem lék með Grinda­vík og síðar með KR, starf­aði í trygg­inga­geir­anum og hjá fjár­mála­fyr­ir­tækjum áður en hann vendi kvæði sínu í kross og gerð­ist frum­kvöð­ull og fyr­ir­tækja­eig­andi.

Hjónin Halla og Björn eiga saman tvö börn, Tómas Bjart og Auði Ínu, sem bæði stunda háskóla­nám í New York. Tómas Bjartur leggur stund á nám í við­skipta­fræði og spilar knatt­spyrnu, og Auður Ína er að læra sál­fræði.

Halla er dóttir Krist­jönu Sig­urð­ar­dóttur þroska­þjálfa og Tómasar Þór­halls­sonar pípu­lagn­inga­meist­ara, en hann lést árið 2008. Halla á tvær systur, Helgu og Hörpu, er báðar starfa við leik­skóla. Hún ólst upp á Kársnesi í Kópavogi og á ættir að rekja til Skaga­fjarðar og Vest­fjarða.

Halla vann í fiski á Nes­kaups­stað og á Djúpa­vogi og fór síðan til Banda­ríkj­anna sem skiptinemi. „Ég var í sveit öll sumur æsk­unnar og vann í fiski á Aust­fjörðum á ung­lings­ár­unum.“

Halla og Björn kynnt­ust í maí árið 1999, kvöldið sem Selma Björns­dóttir varð í öðru sæti í Eurovision með lag­inu All out of luck. Halla hefur sagt frá því að þau hjónin - sem giftu sig árið 2004 - döns­uðu brúð­ar­vals­inn við lagið. „Okkur hjón­unum þykir svo vænt um Eurovision.“

Spurningum svarað

Eins og Íslend­inga er siður þá „þurftu“ fram­bjóð­endur að svara alls kyns „öðru­vísi“ spurn­ingum frá hinum ýmsu miðlum, og þar var Halla engin und­an­tekn­ing.

Í svörum hennar kom fram að Halla hefur „komið þrisvar á Þjóð­há­tíð og sjaldan skemmt mér betur.“ Upp­á­halds­stað­ur­inn hennar á Íslandi er „brekkan á Þjóð­há­tíð, þús­undir Íslend­inga að syngja saman úti í guðs­grænni nátt­úr­unni, hvað toppar það?“ Hún nefnir einnig að upp­á­halds­staður hennar erlendis sé Miklagljúfur í Arizona í Banda­ríkj­unum, en Halla „fór í tveggja vikna ferð í gegnum það undur ver­aldar á gúmmí­bátum og kajak, og utan Íslands hef ég aldrei orðið jafn agn­dofa yfir stór­brot­inni nátt­úru.“

Hún var einnig spurð hvar og hvenær henni líði best. „Hvar sem er í íslenskri nátt­úru, en líður einnig vel heima, helst í kringum mat­ar­borðið með fjöl­skyldu og góðum vinum.“

Halla var beðin um að lýsa sjálfri sér í þremur orðum. „Hugrökk, heið­ar­leg og hlý“ sagði hún, sem nær góðri slökun í íslenskum sund­laugum, hvar sem er í nátt­úr­unni, við lestur bóka og í hug­leiðslu.“

En hvað skyldi Höllu finn­ast besti matur í heimi?

„Allt sem Bjössi eldar og þá helst ef það er úr haf­inu.“

Þá myndi Halla velja frekar að fara í leik­hús en bíó og upp­á­halds­tón­list hennar er eitt­hvað „gam­alt og gott, til dæmis vel flest sem sungið er í brekkunni á Þjóð­há­tíð“ og hefur Halla „sér­stakt dálæti á íslenskum sönglögum og það er auð­velt að fá mig til að bresta í söng.“

En hvaða þrjá hluti myndi Halla taka með sér á eyði­eyju?

„Veiði­stöng, hníf og eld­spýtur.“

Aðspurð hvort hún sé safn­ari sagði Halla: „Maðurinn minn myndi lík­lega segja það já, ég myndi frekar segja að ég sé nýtin“ og Halla vill frekar taka dag­inn snemma og finnst henni „fátt betra en að fara tím­an­lega í rúmið.“

Halla og forsetaembættið

Forseti Íslands er þjóð­höfð­ingi Íslend­inga og er eini full­trú­inn sem kos­inn er af allri þjóð­inni í beinni kosn­ingu. Embættið var stofnað með lýð­veld­is­stjórn­ar­skránni sem tók gildi þann 17. júní 1944, og emb­ættið starfar eftir ákvæðum í stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins og rekur skrif­stofu sem hefur það meg­in­hlut­verk að aðstoða for­seta við verk­efni hans.

Halla vill vera for­seti sem vald­eflir sem flesta til að taka þátt í sam­fé­lag­inu og hún hefur velt því fyrir sér hvaða hlut­verk for­seta­emb­ættið hér á landi hefur í sam­fé­lag­inu.

„Ég á margt ólært og er spennt að vinna með sam­starfs­fólki og ólíkum aðilum um allt sam­fé­lagið. Vil virkja emb­ættið til góðs.“

Halla seg­ist hafa mætt til starfa sem for­seti til að læra. Hún seg­ist vera auð­mjúk gagn­vart því að hlut­verk for­seta sé fyrst og fremst að þjón­usta hags­muni Íslands. Þá hefur Halla sagt að trú á ýmsar stofn­anir sam­fé­lags­ins sé minni en oft áður, og hún segir að „þjóðin þurfi að sýna hvert öðru virð­ingu og setja sig í spor ann­arra. Þannig vinnum við traust. Traustið vex þegar við tengjum við hvert annað og það sem raun­veru­lega skiptir máli.“

Halla hefur lagt mikla áherslu á að hitta ungt fólk. „Þau vilja fá sæti við borðið og taka þátt í að móta sína fram­tíð.“ Hún vill vinna að því sem hún kallar kyn­slóða­sam­starf því „það er nauð­syn­legt að hlusta á eldra fólk líka. Rödd þess þurfi að heyr­ast.“

Að mati Höllu er nauð­syn­legt að „taka upp ný vinnu­brögð í alþjóða­sam­starfi - ríki heims þurfa að vinna saman með upp­byggi­legri hætti en áður. Ég verð alltaf tals­maður hags­muna Íslands og Íslend­inga heima og að heiman.“

Hún telur að ef Íslend­ingar vilji vera öðrum fyr­ir­mynd þurfum við sem „þjóð að geta talað saman og mótað sam­eig­in­lega sýn. Ef við veljum að vera frið­sæl þjóð, með mjúk gildi á dag­skrá, þá getum við verið öðrum fyr­ir­mynd í hörðum heimi. Mig langar að vera for­seti allra sem hér eru og þannig vera fyr­ir­mynd í heimi sem þarf ljós í myrkr­inu.“

Hvað varðar stjórn­mála­flokka og stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð segir Halla að það skipti fleira máli „en atkvæða­fjöldi.“ Hún segir að for­seti verði eðli­lega að bera „ábyrgð á því sem er í stjórn­ar­skrá um að hér sé starf­hæf rík­is­stjórn“ og að „for­seti þurfi að reyna á eigið hyggju­vit og reyna að skilja hver hefur getu til að mynda starf­hæfa rík­is­stjórn.“ Hún vill leggja áherslu á að leiða fólk saman til lausna áður en til þess kemur að beita neit­un­ar­valdi for­seta.

Á ferð um heim­innHalla með Ulf Kristers­son, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, fyrr á árinu.

Fyrirlesari sem finnst best að vera heima

Halla hefur búið víða - til dæmis í Banda­ríkj­unum og Danmörku - en segir að hvergi sé betra að vera en á Íslandi. „Það eru hvergi stærri tæki­færi. Ég elska þetta land og sé tæki­færin fyrir þá sem hér búa fyrir okkar sam­fé­lag til að vera fyr­ir­mynd í sam­fé­lagi þjóða.“

Ljóst er að Halla hefur ávallt haft brenn­andi áhuga á for­ystu og frum­kvöðla­starf­semi og hún hefur kennt þús­undum nem­enda á öllum aldri. Halla er vin­sæll alþjóð­legur fyr­ir­les­ari og hefur meðal ann­ars stigið fjórum sinnum á TED-sviðið - sem er árleg ráð­stefna sem hefur skil­greint ætl­un­ar­verk sitt sem svo að það sé að „dreifa hug­myndum sem eiga það skilið að heyr­ast“ en ásamt því hefur Halla haldið fyr­ir­lestra fyrir mörg af stærstu fyr­ir­tækjum heims­ins og einnig veitt sumum þeirra ráð­gjöf.

Bók Höllu

Halla hefur skrifað bók og þar segir hún að það búi „leið­togi innra með okkur öllum og eitt af mik­il­væg­ustu verk­efnum lífs­ins er að gefa þessum leið­toga rödd og áhrif.“

Bókin ber tit­il­inn Hugrekki, til að hafa áhrif og kom hún út fyrir tveimur árum. Halla segir einnig að „innra með okkur býr afl sem við ættum að gefa gaum og nýta til góðra verka.“

Markmið bók­ar­innar er „að veita inn­blástur til að bæta sig og sitt sam­fé­lag, veita góð ráð, segja hvetj­andi sögur, varpa upp hug­leið­ingum og gagn­legum spurn­ingum. Allt með það fyrir augum að draga fram rödd sem býr innra með okkur.“

Halla nefnir einnig að það sé hennar ein­læga trú að allar breyt­ingar byrji með einni mann­eskju er hefur hug­rekki og vilja til að hafa áhrif.

Persónan Halla

Höllu er lýst sem glað­værri, skemmti­legri, kátri, söng­elsk­andi, sjar­mer­andi og hug­rakkri konu sem klæðir sig vel og ber hún yfir­leitt fal­lega klúta um háls­inn er hafa vakið mikla athygli. Hún er brosmild og þykir afar fær stjórn­andi sem er með glöggt auga bæði fyrir heild­ar­mynd­inni sem og smá­at­rið­unum.

Telur hún að hug­rekki skipti miklu máli í líf­inu, það sé í raun það hreyfi­afl er leiðir til umbreyt­inga og fram­þró­unar þar sem þess er þörf.

„Ég hef alltaf verið áhuga­söm um for­ystu og fram­þróun en árið sem ég ökkla­braut mig fór ég að velta enn meira fyrir mér þessum stóru áskor­unum sem blasa við í heim­inum sem og í lífi okkar flestra. Hvernig önnur nálgun í for­ystu er nauð­syn­leg til að sjá raun­veru­legar breyt­ingar raun­ger­ast í okkar sam­fé­lagi,“ sagði Halla er hún rifjar upp hvenær og hvernig hug­myndin að bók­inni fædd­ist.

„Þarna lá ég með löpp­ina upp í loftið og velti fyrir mér stórum spurn­ingum, eins og hversu mik­il­vægt það er fyrir ein­stak­linga, fyr­ir­tæki og sam­fé­lög að lifa og starfa í sam­ræmi við sinn sann­asta til­gang, hversu mikil orka leys­ist úr læð­ingi þegar við finnum leið til að gera gagn og láta gott af okkur leiða.“

Halla og trúmálin

Halla hefur svarað spurn­ingum um trú­mál, til dæmis hvert sé við­horf hennar til þjóð­kirkj­unnar og stjórn­ar­skrár­á­kvæð­is­ins um hana þar sem segir í 62. grein: „Hin evang­eliska lút­erska kirkja skal vera þjóð­kirkja á Íslandi, og skal rík­is­valdið að því leyti styðja hana og vernda. Breyta má þessu með lögum.“

Halla svar­aði því að hún sé „í þjóð­kirkj­unni og þekki hið góða og fjöl­breytta starf sem hún stendur fyrir um landið allt.“ Henni finnst starf þjóð­kirkj­unnar afar „mik­il­vægt í sam­fé­lags­gerð­inni“ og vill að „starf í kirkjum lands­ins fái áfram að njóta sín, ekki síst meðal barna og ung­menna. Á sama tíma þurfum við að vera með­vituð um að sam­fé­lagið hefur breyst og fjöldi fólks sem hér er búsett annað hvort til­heyrir öðrum kirkju­deildum eða er trú­laust. Það þarf að virða og ég er ánægð með þjóð­kirkju sem er líka opin fyrir þessum hópum ef þeir æskja þess.“

Halla er á því að þjóð­kirkjan og rík­is­valdið „hafi unnið saman að því und­an­farin ár að gera þjóð­kirkj­una æ sjálf­stæð­ari frá rík­is­vald­inu. Tíminn mun leiða í ljós hvar sú veg­ferð endar. Ef Alþingi breytir þeirri skipan sem fram kemur í stjórn­ar­skrár­á­kvæð­inu sem vísað er til, þá kallar það sjálf­krafa á þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, eins og segir í stjórn­ar­skránni. Það væri því, að óbreyttu, ekki for­set­ans að blanda sér í það ferli.“

Í hlut­verki for­setaHalla heldur þing­setn­ing­ar­ræðu.

Halla og frjálshyggjan

Óhætt er að segja að Halla hafi verið mikil frjáls­hyggju­mann­eskja á árum árum. Hún vildi afnema rík­is­í­tök á ýmsum sviðum og sagði við kynn­ingu eigin for­seta­fram­boðs í Grósku á sínum tíma að for­seta­efni ætti að vera hafið yfir póli­tísk dæg­ur­mál og þras.

Pólitísk afstaða hennar á árum áður birt­ist í góð­ær­inu, einu og hálfu ári fyrir hrun, en þann sjö­unda febr­úar árið 2007 hélt Við­skipta­ráð Við­skipta­þing, þar sem Halla flutti erindi. Á glærum er hún not­aði var ritað um að Ísland skyldi verða best í heimi á ýmsum sviðum. Var það mark­mið Höllu að á Íslandi yrði besta við­skiptaum­hverfi heims, besta menntun í heimi og besta stjórn­sýsla heims.

Á meðal þess sem hún nefndi í erindi sínu á Við­skipta­þingi var að skattar yrði lágir og flatir, að tekju­skattur ein­stak­linga og fyr­ir­tækja og virð­is­auka­skattur yrðu sam­ræmdir í einn lágan, flatan skatt, án allra und­an­þága. Og vildi hún á þessum tíma að tollar, vöru­gjöld og sér­tæka skatta væri rétt­ast að afnema.

Hún tal­aði einnig fyrir því að einka­að­ilar myndu taka við rekstri mennta­stofn­ana og að ríkið ætti að fjár­magna menntun á leik-, grunn og fram­halds­skóla­stigi. Halla taldi ekki ráð­legt að ríkið stæði fyrir beinni atvinnu­sköpun og vildi að opin­berir starfs­menn nytu sömu rétt­inda og skyldna og starfs­menn í einka­geira. Hún vildi fækka ráðu­neytum og stofn­unum mark­visst með því að leggja þær niður og fela einka­að­ilum starf­semi þeirra, ef þörf væri á áfram­hald­andi rekstri. Þá áttu einka­að­ilar - að mati Höllu - að taka við rekstri heil­brigð­is­stofn­ana. Líf­eyr­is­sjóðir og trygg­inga­fé­lög myndu taka við almanna­trygg­ingum og um nátt­úru­auð­lindir Íslend­inga sagði Halla, að þær ættu að vera í auknum mæli í einka­eigu.

Umdeildu bílakaupin

Halla og Björn komust í hann krapp­ann fljót­lega eftir að sigur hennar var í höfn, eftir að bíla­kaup þeirra voru gerð opin­ber með ljós­mynd sem deilt var á sam­fé­lags­miðlum bíla­um­boðs­ins Brim­borgar, án vit­undar þeirra hjóna, birti umboðið færslu á Facebook þar sem greint var frá því að Halla og Björn hefðu keypt sér nýjan Volvo-raf­bíl. Og með færsl­unni var ljós­mynd af hjón­unum og Agli Jóhanns­syni, for­stjóra Brim­borgar. Sagði Egill opin­ber­lega að mynd­birt­ingar sem þessar væru alvana­legar.

Halla og Björn voru hins vegar ósátt með mynd­birt­ing­una og í yfir­lýs­ingu sem Halla sendi frá segir hún að hún hafi óskað eftir því við Brimborg að myndin yrði fjar­lægð af sam­fé­lags­miðlum um leið og hún komst að því að hún hefði ratað þangað. Sagði einnig að þau hefðu ekki beðið um nein sér­kjör, en hins vegar hafi hjónin fengið stað­greiðslu­af­slátt, sem sé sam­bæri­legur þeim sem þau fengu síð­ast þegar þau áttu við­skipti við sama fyr­ir­tæki.

Yfirlýsing Höllu

Halla sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins: „Af virð­ingu við sitj­andi for­seta tók ég þá ákvörðun að veita ekki frek­ari við­töl að loknum kosn­ingum fyrr en eftir emb­ætt­is­töku, enda hef ég ekki tekið við emb­ætti for­seta enn þá og kem ekki fram í krafti þess. Ég vona að því sé sýndur skiln­ingur. Við hjónin ákváðum að kaupa okkur bíl til eigin afnota og í amstri dags­ins sá ég ekki fyrr en nú síð­degis að þau bíla­kaup eru orðin frétta­efni. Ég fagna því að fólk viti að við völdum að kaupa umhverf­is­vænan bíl, von­andi getum við verið öðrum góð fyr­ir­mynd þar. Hins­vegar var það ekki ætlun okkar að þau bíla­kaup yrðu opin­ber og var ljós­myndin birt á sam­fé­lags­miðlum án okkar vit­undar. Við báðum vin­sam­leg­ast um að myndin yrði fjar­lægð um leið og við fréttum af því og var sam­stundis orðið við þeirri beiðni. Þá vil ég ítreka að við hjónin fórum ekki fram á nein sér­kjör, en okkur bauðst stað­greiðslu­af­sláttur sam­bæri­legan þeim sem við fengum síð­ast þegar við áttum við­skipti við sama fyr­ir­tæki og öðrum við­skipta­vinum býðst einnig. Hlý kveðja, Halla.“

Halla og eig­in­maður hennar fengu 549.127 króna afslátt af bif­reið­inni sem þau keyptu hjá Brimborg, afslátt­inn fengu þau hjónin hjá Brimborg vegna stað­greiðslu og „end­ur­tek­inna kaupa.“

Halla sagði frá því að þau hjónin hafi áður ekið um á Toyota Yaris af árgerð­inni 2012, en þar á undan hafi þau átt Volvo í tólf ár.

Sagði Halla að nýja bif­reiðin hafi verið hugsuð til per­sónu­legrar nota - sér­stak­lega fyrir maka for­seta. Kom á dag­inn að hjónin Halla og Björn greiddu 7.280.000 fyrir bif­reið­ina, sagði Halla afslátt­inn því hafa verið um 7,5 pró­sent.

„Eins og komið hefur fram frá umboði er það sam­bæri­legt því sem öðrum kaup­endum býðst sem upp­fylla sömu skil­yrði og það er í takt við þau kjör sem við höfum fengið við önnur bíla­kaup í þessu umboði, sem öðrum, hér­lendis sem erlendis. Aldrei var um að ræða sér­stök afslátt­ar­kjör gegn því að aug­lýsa bíla­kaupin opin­ber­lega.“

Hún seg­ist vera „alvön því frá fram­boðs­tím­anum að fólk vilji myndir með okkur og viljum áfram verða við slíkum bónum þegar hægt er, við þurfum að taka héðan af skýrt fram að slíkum mynda­tökum fylgi ekki heim­ild til birt­ingar í aug­lýs­inga­skyni. Við lærum svo lengi sem við lifum!“

Ökklabrotið örlagaríka

Halla lýsti þessu í sam­tali við Vísi 2023. „Ég lof­aði danskri vin­konu minni að eftir for­seta­fram­boðið myndi ég ekki stökkva strax í næsta starf, að ég myndi gefa mér að minnsta kosti ár til að hugsa vel hvað tæki við yrði ég ekki for­seti.“

Hún segir að þetta hafi verið gott ráð „því eftir fram­boðið buð­ust mér áhuga­verð hlut­verk og eftir um níu mán­uði var ég nán­ast búin að ganga frá ráðn­ingu í spenn­andi starf í Banda­ríkj­unum, en þá vildi svo til að ég ökkla­braut mig,“ sagði Halla og bætti þessu við:

„Þetta þýddi að ég varð ein­fald­lega kyrr­sett í nokkra mán­uði og kannski var þarna almættið að grípa í taumana því að eftir á að hyggja hefði það starf ekki verið hið rétta fyrir mig þótt það hafi virkað spenn­andi.“

Halla seg­ist hafa fyllst eld­móði vegna þess að hún hafði gefið sér góðan tíma í að velta sér eigin átta­vita og hvað hún vildi helst af öllu gera við sitt líf.

„Það er svo merki­legt að hvort sem við erum í fjall­göngum eða úti á sjó, finnst okkur sjálf­sagt að nota átta­vita. En þegar það kemur að okkar eigin lífi og starfs­ferli þá eigum við það flest til að bruna áfram án þess að velta fyrir okkur: Hver eru gildin mín, til­gang­ur­inn minn, hvar liggur ástríðan mín? Þegar að ég réði mig til The B Team hlust­aði ég fyrst og fremst á eigið hjarta, not­aði minn átta­vita til að velja hvað ég vildi gera við mitt líf.“

Hún sagði stuðn­ing eig­in­manns síns vera henni afar mik­il­vægan.

„Bjössi studdi mig í hví­vetna, svo vel gift er ég. En Bjössi hafði líka sjálfur ákveðið að elta sinn draum. Það gerði hann þegar hann hætti að starfa í fjár­mála­geir­anum og ákvað að læra kokk­inn í New York. Björn útskrif­að­ist sem heilsu­kokkur árið 2012 og var þá þegar með hug­myndir um nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki sem hann lang­aði til að stofna,“ sagði hún í við­tali við Vísi.

Vill útrýma ójöfnuði

Halla seg­ist oft hugsa heim til Íslands þegar hún er á ferða­lögum hér og þar um heim­inn.

„Að mörgu leyti er ég enn að vinna að sömu hug­mynda­fræði og við sem stofn­uðum Auði Capital aðhyllt­umst, að tala fyrir mik­il­vægi sjálf­bærni og jafn­rétti í rekstri fyr­ir­tækja og for­ystu sam­fé­laga. Það er hvorki björt fram­tíð fyrir fólk, né fyr­ir­tæki ef við bætum ekki við­skipta­hætti og berjum í bresti sam­fé­lags­sátt­mál­ans. Það að við­skipti snú­ist ein­göngu um hámörkun arðs fyrir hlut­hafa er ekki hugsun sem fleytir okkur til fram­tíðar og það er kom­inn tími til að hugsa svo margt uppá nýtt og til þess þarf hug­rekki.“

Og Halla bætir við:

„Við verðum líka að átta okkur á því að ójöfn­uður innan sam­fé­laga sem og innan heims­ins, er of mik­ill til að vera sjálf­bær. Í Afríku búa til dæmis um 600 millj­ónir manna án orku en verða samt verst fyrir barð­inu á loft­lags­breyt­ingum sem skýr­ast af ofneyslu þjóða á norð­ur­hveli jarðar. Á síð­ustu tveimur árum tók rík­asta 1 pró­sentið til sín nær tvisvar sinnum meiri auð en 99% íbúa jarðar, þetta er kerfi virkar vel fyrir þá sem eiga mik­inn auð en illa fyrir alla aðra.“

Ísland sem fyrirmynd

Halla lýsti því í fyrr­greindu við­tali við Vísi að Ísland hefði mörg tæki­færi til að verða leið­andi sem fyr­ir­mynd á heims­vísu.

„Ég hugsa oft til þess hvað við erum heppin sem fæð­umst á Íslandi, með allar okkar nátt­úru­auð­lindir og hversu þakk­lát ég er fyrir að hafa alist upp á Íslandi, lík­lega er hvergi betra að vera kona.“

Henni þykir þó að ýmsu mætti breyta, eða í það minnsta end­ur­skoða og hún vill að breyt­ingar eða til­lögur um breyt­ingar verði frekar fagnað en hitt.

„Mér finn­ist margt mega end­ur­skoða. Til dæmis set ég spurn­ingar við þá hag­fræði sem hér hefur verið rekin, sem gerir það að verkum að ungt fólk stendur frammi fyrir því að reyna að koma yfir sig þaki ann­að­hvort með verð­tryggðum lánum eða ofur­vöxtum. Hér held ég að sé mik­il­vægt að huga betur að málum langi okkur til að halda í okkar unga og hæfi­leik­a­ríka fólk sem hefur val­kosti um að búa og starfa hvar sem það vill.“

Heim­ildir:

https://kjarninn.is/folk/2016-05-13-bessastadir-thurfa-fyrirlida-og-modur/

https://www.visir.is/g/20242579835d/-vidskiptakonan-sem-komst-a-bessa-stadi-i-annarri-til-raun

https://www.visir.is/g/20232457937d/-med-thvi-ad-leyfa-mer-ad-hlusta-a-hjartad-mitt-fylltist-eg-eldmodi-og-astridu-

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2024-09-27-taepur-helmingur-anaegdur-med-storf-hollu-tomasdottur-423220

https://tigull.is/halla-tomasdottir-forsetaframbjodandi/

https://www.visir.is/g/20242581277d/-hrokafull-afstada-ad-skilyrda-studning-vid-ukrainu

https://www.visir.is/g/20242632661d/halla-talar-ensku-vid-konginn-eg-held-ad-thad-se-kannski-nyi-timinn-

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2024-08-01-halla-vill-verda-fyrirmynd-i-heimi-sem-tharf-ljos-i-myrkrinu-418855

https://www.visir.is/g/20242540251d/aetludu-ad-eiga-yndis-legt-kvold-en-um-raedan-eydi-lagdi-thad

https://www.kirkjubladid.is/mal-lidandi-stundar/vidhorf-til-thjodkirkjunnar-halla-tomasdottir-svarar/

https://samstodin.is/2024/03/halla-vildi-einkavaeda-audlindir-og-menntun/

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2024-07-26-halla-segist-ekki-hafa-aetlad-ad-opinbera-bilakaupin-418431

https://www.visir.is/g/20242601400d/ekki-verid-aetlun-theirra-ad-gera-bilakaupin-opin-ber

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/07/26/halla_sendir_fra_ser_yfirlysingu_vegna_bilakaupa/

https://www.visir.is/g/20242601978d/fekk-549.127-kronur-i-af-slatt-af-bilnum

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/07/29/halla_greiddi_rumar_sjo_milljonir_fyrir_bilinn/?origin=helstu

https://www.hallatomasdottir.is/is

https://www.forseti.is/fr%C3%A9ttir/2024-08-01-halla-t%C3%B3masd%C3%B3ttir-sett-%C3%AD-embaetti-forseta/

https://www.forseti.is/en/the-president/halla-tomasdottir/

https://heimildin.is/grein/22058/halla-tomasdottir-verdur-sjoundi-forseti-lydveldisins/

https://www.visir.is/g/20242571081d/hug-rekki

https://heimildin.is/grein/21262/halla-tomasdottir-bydur-sig-fram-til-forseta/

https://www.vf.is/mannlif/mun-grindvikingurinn-verda-fyrsti-forsetaherra-a-bessastodum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina