Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Reynir lenti í lífsháska á hæsta fjalli Afríku

„Ég ætla frekar að snúa við heldur en að drep­ast hérna“

Reynir lenti í lífsháska á hæsta fjalli Afríku
Reynir Trausta­son Reynir fékk súr­efni til að vinna á háfjalla­veik­inni Mynd: Facebook

Reynir Trausta­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri, bóka­út­gef­andi og rit­höf­undur, veikt­ist illa af háfjalla­veiki þegar hann gerði til­raun til að ganga á topp Kilimanjaro í síð­asta mán­uði.

Reynir Trausta­sonReynir hefur margar fjör­urnar sopið

Reynir var gestur Sig­ur­laugar M. Jón­as­dóttur útvarps­þætt­inum Segðu mér á Rás 1 á dög­unum. Þar sagði hann frá nýj­ustu bók sinni, Fólkið í vit­anum og veik­indi sem hann glímdi við í októ­ber þegar hann varð frá að hverfa þegar hann reyndi að klífa hæsta fjall Afríku.

„Það eru margir sem kann­ast við sjó­veiki en háfjalla­veikin er helm­ingi verri. Og ef maður er mjög sjó­veikur þá langar manni að deyja þannig að þú getur rétt ímyndað þér hvað ger­ist við háfjalla­veik­ina,“ segir Reynir þegar Sig­ur­laug biður hann að útskýra veik­indin.

„Við vorum þarna hópur Íslend­inga sem ætl­uðum auð­vitað að toppa, það er alltaf mein­ingin,“ útskýrir Reynir en hóp­ur­inn fór til Tansaníu til að toppa Kilimanjaro um miðjan októ­ber. Reynir heldur áfram:

„En þetta fór mjög illa í mig. Ég var í þrjá daga þannig að ég var varla sjálfum mér sinn­andi. Ég var hund­veikur, fór á súr­efni, einu sinni að minnsta kosti, til að ná mér til baka en lagði upp í síð­asta áfang­ann. Þar ferðu af stað í 4.600 metrum og þú ætlar þér að fara í 5.800 metra, sem er auð­vitað mikið verk­efni. En í 5.000 metrum, þar var ég bara búinn og aftur drösl­aði ég mér niður í tjald og var settur á súr­efni til að ná mér til baka.“

Á KilimanjaroHópur Íslend­inga klifu hæsta fjall Afríku í októ­ber

Reynir er sam­mála Sig­ur­laugu þegar hún segir að svona sé hálf­gerð klikkun.

„Já auð­vitað er þetta klikkun. En samt ein­hver besta klikkun sem maður glímir við, að fara á þessi fjöll og njóta þess að bæði und­ir­búa og fara á fjallið og upp­lifa himneskt útsýni. Sem ég að vísu upp­lifði ekki, ég upp­lifði bara súr­efni og tjald.“

Sig­ur­laug spyr hann nánar út í raun­irnar sem hann varð fyrir á fjall­inu.

„Þetta snýst svo­lítið um það eins og í far­ar­stjórn­inni, það erf­ið­asta sem far­ar­stjór­inn gerir er að taka ákvörðun um að snúa við. En það er líka það skyn­sam­leg­asta sem þú getur gert. Þannig að í 5.000 metrum, eins og segir í lag­inu, þá kvaddi ég sam­býl­is­kon­una og drösl­aði mér niður aftur. Það var erfið ákvörðun en það var skyn­sam­legra því það var ein­stak­lingur sem var ein­hverjum sex til tíu árum yngri, 64 ára, hann var örmagna á sama stað og ég en hann var í hópnum okkar. Og hann neit­aði að snúa við, hann bara ákvað að halda áfram. Þannig að það var sett á hann súr­efni og honum var dröslað upp en hann fór nú ekki alveg á topp­inn en lang­leið­ina. Og svo kom hann í kerru niður.“

Sig­ur­laug spyr Reyni hvað hann ætli ég að gera í þessu, hvort hann sé ósáttur við að hafa ekki kom­ist á topp­inn.

„Nei, ég er alveg rosa­lega sáttur við þetta. Ég gerði mér grein fyrir því að ég væri í ein­hvers konar háska. Það er háfjalla­veikin, ég er mjög mæð­inn, þannig að ég hugsa með mér, „jæja, ég ætla frekar að snúa við heldur en að drep­ast hérna“.“

Aðspurður hvort fólk geti dáið úr háfjalla­veiki, játar Reynir: „Já, það er mjög auð­velt. Og það er mjög algengt að fólk fari undir þessum kring­um­stæðum. Dóm­greindin fer líka og þú álp­ast eitt­hvað ennþá lengra. Þannig að ég ákvað bara í 5.000 metrum að fara niður og tala síðan við hjarta­lækn­inn minn þegar ég kæmi heim, hann Gísla Jónsson og skoða hvort ég sé í lagi, ég er nátt­úru­lega orð­inn rúm­lega sjö­tugur. Þannig að maður er ekk­ert ung­lamb. Og frum­skoðun hefur farið fram og það er í lagi með mig. Nema ég er aðeins of feitur og þá geri ég eitt­hvað í því.“

„En ætlarðu aftur?“, spyr Sig­ur­laug.

„Ég hef hug­leitt það. Og það getur vel verið að ég fari næsta ár og taki þá styttri leið upp. Þú getur farið upp í rútu í 3.000 metra og klárað svo þessa 2.800 metra frá þeim punkti. Þannig að ég hef alveg hugsað það en það er ekk­ert möst fyrir mig. Ég er löngu kom­inn yfir það að verða að fara á topp­inn. Þetta var ákvörðun sem var tekin, ég horf­ist í augu við það að þannig var staðan. En jú, ég er búinn að segja það að ég ætla að skoða þetta næsta ár. Ef ég er í fínu lagi, þá kemst ég von­andi upp á Kilimanjaro.“

Fyr­ir­vari um hags­muni: Reynir Trausta­son er einn af lið­lega tutt­ugu eig­endum Sam­ein­aða útgáfu­fé­lags­ins ehf. sem á Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una