Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Spyrnti sér upp frá botninum og féll fyrir Kára

Eva Bryn­geirs­dóttir er í Mann­lífs­við­tali. Hún er tæp­lega fer­tug en hefur upp­lifað sorgir og áföll sem hafa haft mikil áhrif á líf hennar. Hún tók líf sitt í gegn í kjöl­far for­eldramissis og kuln­unar og fór að huga að hollu líf­erni og matar­æði sem og hreyf­ingu. Hún nýtir þekk­ingu sína og reynslu í eigin lífi og er í dag útlærður einka­þjálf­ari. Ástina fann hún aftur í örmum Kára Stef­áns­sonar og gengu þau í hjóna­band í lok síð­asta árs.

Spyrnti sér upp frá botninum og féll fyrir Kára

Elliða­vatn og fjöllin blasa við úr stórum stofu­glugg­unum. Á leð­ur­stól situr glæsi­leg kona, Eva Bryn­geirs­dóttir. Það er stutt í brosið. Eig­in­mað­ur­inn, Kári Stef­áns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri deCODE, hafði ekið á rauðum, sport­legum jeppa frá bíla­stæð­inu við húsið þegar blaða­maður kom akandi að því. Þennan mann elskar Eva. Án efa hafa margir skoð­anir á ald­urs­mun­inum, sem eru 38 ár, en ástin spyr ekki um aldur. Og án efa eru margir for­vitnir um ungu kon­una sem gift­ist Kára sem gert hefur svo margt fyrir Íslend­inga og fleiri svo sem í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. En þá er einmitt gott að hún sjálf segi sína sögu.

Við tvær erum einar í stóru, nútíma­legu hús­inu. Og tveir kettir. Það eru högn­arnir Garpur og Keli.

Garpur gengur til okkar. Lætur ekki í sér heyra.

„Það eru tvær mín­útur þar til mat­ar­skammt­ar­inn hans pípir þannig að hann er mjög var­kár núna og passar að hann fái örugg­lega að éta. Garpur er nákvæm­lega eins og Garfield, Grettir. Hann vill liggja í leti. Hann er aug­ljós­lega kóng­ur­inn á heim­il­inu og hann elskar að éta og lífið snýst um það.“

Og Garpur gengur að skammt­ar­anum og byrjar að éta.

„Ég átti alltaf hund en kunni ekk­ert á kisur en svo kom ég hingað og Keli, þessi svarti og hvíti, ákvað að ég yrði kisu­m­ann­eskja. Ég er dol­fallin yfir kött­unum. Það er ekki aftur snúið. Þetta er ynd­is­legt.“

Svona byrjar við­talið. Það er strax aug­ljóst að hús­móð­irin er ein­stak­lega elsku­leg og ein­læg. Og ham­ingju­söm. Og það er góður andi á glæsi­legu heim­il­inu sem er eins og lista­verk.

Eva og KáriHana grun­aði ekki þegar hún hitti Kára Stef­áns­son fyrir tíu árum að þau myndu enda saman.

Með ADHD og leidd­ist aldrei

Eva ólst upp í Smá­í­búða­hverf­inu og var tæp­lega tíu ára þegar for­eldrar hennar skildu og eftir það bjó hún mest hjá móður sinni og systk­inum en hún á tvö alsystk­ini, tvö hálf­systk­ini í móð­ur­ætt og tvö hálf­systk­ini í föð­ur­ætt ásamt stjúp­bróður.

„Ég var mjög hug­mynda­rík ung dama. Mér leidd­ist aldrei og ég gat alltaf fundið eitt­hvað að gera. Ég var krakk­inn sem fór út að morgni til og svo kom ég heim í lok dags. Ég var virkur krakki,“ segir Eva sem var greind með ADHD árið 2023. „Ég fann upp á öllu mögu­legu.“

Hún segir að ADHD hafi háð sér varð­andi það sem gerð­ist innra með sér. Hún talar um flækju í hug­anum. Hún ofhugs­aði allt of mikið. „Ég fún­ker­aði og ég lærði í skól­anum en ég lærði ekki vel heima.“ Hugurinn var ann­ars staðar. „Já, og út um allt.“

Hana dreymdi á tíma­bili um að verða sál­fræð­ingur vegna þess að hún var alltaf til­búin til að ræða um hlut­ina og gat séð þá frá fleiri en einu sjón­ar­horni. „Ég var svona sál­fræð­ing­ur­inn í vina­hópnum, gat rætt um allt og það var ekk­ert sem var óþægi­legt eða asna­legt.

Ég gat ekki fylgt hópnum. Ef aðrir voru að gera eitt­hvað þá fannst mér ég örugg­lega ekki eiga að gera það sama. Mér finnst ég ekki þurfa að fylgja,“ segir hún og kímir.

„Vinkonur mínar fóru í Versló og ég hugs­aði með mér að mig lang­aði ekki til að fara í þann skóla. Þannig að ég sótti um í MR og MH sem vara­skóla. Ég komst hvorki inn í MR né MH og mamma mín sat uppi með að koma mér í skóla.“

Eva hóf svo um haustið nám við FG þar sem hún þekkti engan. Hún var á íþrótta­braut en henni fannst vera gaman að læra um lík­amann en svo fann hún sig ekki á þeirri braut.

„Öll mennta­skóla­árin afmarkast af klass­ísku ADHD. Ég fór síðan á mála­braut og síðan á félags­fræði­braut og ég útskrif­að­ist af þeirri braut. Og ég er með auka­ein­ingar af því að ég var búin að skipta svo oft um braut. Ég get lofað þér því að náms- og starfs­ráð­gjaf­inn í skól­anum fagn­aði því örugg­lega þegar ég útskrif­að­ist,“ segir Eva og hlær. „Ég var alltaf hjá henni. Ég var ein­hvern veg­inn út um allt og mér fannst margt vera áhuga­vert en ég vissi ekki hvað ég ætl­aði að gera með þetta allt. Ég ræddi það við kenn­ara þegar ég var á íþrótta­braut að mig lang­aði ekki til að verða íþrótta­kenn­ari heldur frekar einka­þjálf­ari og hann leyfði mér að gera verk­efni í takt við það.“

Eva vann í skó­búðum með mennta­skóla­nám­inu og hún segir að sér hafi fund­ist sam­skiptin við við­skipta­vini vera skemmti­leg. „Svo elska ég skó.“

Þaðan sem blaða­maður situr sést Keli hlaupa fyrir utan stof­una. Hvar Grettir er, það er spurn­ing. Hann er alla­vega búinn að éta.

Föðurmissir

Faðir Evu, Bryngeir Guðjón Guð­munds­son, eign­að­ist nýja konu, eign­að­ist með henni tvö börn og gekk syni hennar í föð­ur­stað. Eva var 18 ára þegar hann fór að veikj­ast og segir hún að hann hafði fundið fyrir veik­indum í ein­hverja mán­uði en aldrei hafði fund­ist hvað var að.

„Svo kom í ljós briskrabba­mein og það var að fara á fjórða stig. Ég var mjög „busy“ í lífi mínu 18 að verða 19 ára, mig lang­aði að vera í meira sam­bandi en það var svo rosa­lega mikið að gera hjá mér.“

Eva var samt sem áður þó nokkuð hjá föður sínum sem krakki. „Það átti að reka mig úr FG af því að ég var með svo lélega mæt­ingu. Ég sagði að ég væri aug­ljós­lega að ganga í gegnum mikið erf­iði og fékk mæt­inga­samn­ing.

„Briskrabba­mein er ekk­ert grín.“

Briskrabba­mein er ekk­ert grín. Það er rosa­lega erfitt. Maður var 19 ára að ganga í gegnum flók­inn missi og þá skildu mann engir á þessum aldri þar sem þeir höfðu ekki lent í þessu sjálfir. Og fólk á erfitt með að mæta öðrum sem eru að syrgja.“

Eva teygði sig til föður síns í þessum aðstæðum, með þeirri aðferð sem hún treysti sér til.

„Það var margt sem ég vildi segja við pabba og ég skrif­aði honum tölvu­póst. Ég hafði svo mikla þörf fyrir að tjá mig. Ég skrif­aði til dæmis að ég elskaði hann en þetta segir maður ekki auð­veld­lega 19 ára í svona flóknum aðstæðum. Ég hef ekki hug­mynd um hvort pabbi las tölvu­póst­inn.“

Faðir Evu lést 9. sept­em­ber 2006. Fyrsta barn Evu átti síðan eftir að fæð­ast 9. sept­em­ber, árið 2015.

Trúður á Mallorca

„Hvað núna?“ segir Eva að hafi komið í hug­ann eftir útskrift. Stúd­ents­húfan var komin á koll­inn. Hún var ekki búin að finna sinn stað í líf­inu en var í lang­tíma­sam­bandi.

„Ég var á fimmta ári í sam­bandi og ég hugs­aði með mér að ég myndi ekki halda áfram að vinna í skó­búðum. Það hlyti að vera eitt­hvað næst.

Mig lang­aði til að verða au pair og var búin að finna fjöl­skyldu á Ítalíu og negla við­tal sem ég fór í en svo allt í einu átt­aði ég mig á því að mig lang­aði ekk­ert til að verða au pair. Ég kunni ekk­ert á börn þá. Ég skoð­aði alþjóð­legar atvinnu­síður og sá meðal ann­ars aug­lýst eftir fólki í jarða­berja­tínslu,“ segir Eva og hlær.

„Það hlutu að vera ein­hver ævin­týri fram undan. Hót­el­keðja á Spáni óskaði eftir starfs­fólki og ég hugs­aði með mér „af hverju ekki?“. Ég sendi inn umsókn og var hringt í mig einn dag­inn þegar ég var í skó­búð­inni og þau buðu mér í Skype-við­tal. Þau vildu í kjöl­farið fá mig á tveggja vikna inn­töku­nám­skeið á Mallorca.“

Eva fór til Mallroca, fór á nám­skeiðið og fékk starf. „Þetta var mikil reynsla fyrir unga konu. Ég bar ábyrgð, var á eigin vegum og ég þurfti að láta hlut­ina ganga upp. Ég get alveg sagt þér það að þetta voru átök.“

Svo fór Eva að vinna sem skemmti­kraftur fyrir hót­el­keðj­una. Hún dans­aði til dæmis fyrir krakka á sviði, lék trúð og sá um leiki fyrir krakka í sund­laug meðan hrunið varð og Ísland var ekki lengur til í bank­anum, eins og hún orðar það, þannig að hún þurfti að senda móður sinni pen­ing heim í umslagi til að borga af bílnum sem hún átti á íslandi.

Og á sól­ar­eyj­unni Mallorca dvaldi Eva í sjö mán­uði og kom heim reynsl­unni rík­ari. Slitnað hafði upp úr sam­bandi hennar og kærastans á þessum tíma.

Tanntæknir

Eftir heim­kom­una þurfti unga konan að byrja á nýjum kafla í lífi sínu. Hún hugs­aði með sér að hún þyrfti að læra meira. Hún vildi fara í tann­lækna­nám og tók nokkra kúrsa á heil­brigð­is­deild FÁ svo sem líf­færa- og líf­eðl­is­fræði og meðal ann­ars áfanga þar sem nem­endur lærðu að greina tennur.

„Við þurftum líka að kryfja og kru­fði ég hjarta. Ég komst að því að mér fannst þetta vera mjög heill­andi og spenn­andi og sótti ég svo um og fór í tann­lækna­nám. Ég komst fljót­lega að því að ég væri engan veg­inn sam­keppn­is­hæf en sjö nem­endur af um fimm­tíu komust í gegn og ég hafði engan grunn í eðl­is­fræði eða efna­fræði. Ég hélt samt aðeins áfram að mæta og tálga tennur en mér fannst það vera mjög gaman. Ég tók ekki einu sinni prófin og kláraði ekki önn­ina.“

Eva fór þá að hugsa um hvað hún gæti gert næst. „Þetta er klass­ískt ADHD. Alltaf að leita og hugsa hvað ég eigi að gera næst.“

„Þetta er klass­ískt ADHD.“

Hún sendi póst til tann­tækni­deildar FÁ og spurði hvaða kúrsa hún þyrfti að taka til að klára nám í tann­tækni. Í ljós kom að vegna fyrra náms þurfti hún ekki að taka svo marga kúrsa. „Þetta var ein bók­leg önn og svo tvær verk­legar sem voru úti í Tann­garði.“

Þegar hún var búin með bók­legu fögin og áður en hún kláraði verk­lega þátt­inn bjó hún um tíma á Eski­firði ásamt þáver­andi kærasta sínum og fór að vinna í álver­inu á Reyð­ar­firði. „Ég sótti um að verða almennur iðn­að­ar­maður. Ég var sett í steypu­skál­ann sem vinnur allt álið. Þetta er svo gjör­sam­lega eins og úr ein­hverri bíó­mynd. Ég var með 23 tonn í brúkrana að hella fljót­andi áli með fjar­stýr­ingu hang­andi utan á mér. Þetta er svo ólíkt því sem mér hefði dottið í hug að ég myndi gera.“

Eva við­ur­kennir að hún hafi stundum orðið hrædd. Og þarna vann hún í tæpt ár.

Síðar kláraði hún tann­tækni­námið og vann um tíma sem tann­tæknir.

„Ég var kasól­étt að vinna á tann­lækna­stofu þannig að eldri strák­ur­inn minn er búinn að sparka í nokkra kúnna í stólnum í gegnum bumb­una,“ segir hún og hlær.

Móðurmissir

Móðir Evu, Dóra Elísabet Sig­ur­jóns­dóttir, veikt­ist af fram­heila­bilun á þeim tíma þegar Eva vann í álver­inu á Reyð­ar­firði og segir Eva að hún hafi orðið skrýtin í hegðun. Hún var veik í mörg ár.

„Ég myndi ekki óska neinum að ganga í gegnum þau erf­iði. Hún missti málið mjög snemma. Þetta var hræði­legt,“ segir Eva með áherslu. „Hún var svo ung þegar þetta gerð­ist að hún pass­aði hvergi í kerfið. Hún var allt of ung til þess að fara á elli­heim­ili. Hún gat gert ýmis­legt þótt hún gæti ekki tjáð sig. Þetta var svo vond staða. Við vorum oft leit­andi að henni hér og þar og einu sinni var hringt í okkur en þá hafði ein­hver fundið hana í Fjarð­ar­kaupi í Hafn­ar­firði en hún bjó í Graf­ar­vogi. Þetta var svaka­lega erfitt ástand í mörg ár. Hún fór einu sinni í bíla­um­boð og var allt í einu búin að borga inn á ein­hvern bíl. Hún keypti allt mögu­legt inn á heim­ilið og fullt af því sama. Það meik­aði ekki sens. Þetta var brút­alt.

Ég átt­aði mig á því að það var ekki langur tími sem ég hafði til að eiga ein­hver sam­skipti við hana þannig að ég ræddi við barns­föður minn og við tókum ákvörðun um að ég færi til Reykja­víkur; ég var að fara að eyða síð­ustu móment­unum sem ég gat mögu­lega haft ein­hverjar teng­ingar við hana. Ég ætl­aði að búa heima hjá mömmu og stjúppabba.

„Mann­eskja sem fær þennan sjúk­dóm missir per­sónu­ein­kenni sín.“

Þetta var átak­an­legt. Mann­eskja sem fær þennan sjúk­dóm missir per­sónu­ein­kenni sín. Hún verður bara allt önnur mann­eskja og það getur komið upp reiði og alls konar til­finn­ingar. Þetta var krefj­andi. Ég reyndi að búa heima og hjálpa til eins lengi og ég gat en svo tók ég ákvörðun um að fara að leigja.

Þetta hafði mikil áhrif á mig. Rosaleg,“ segir Eva með áherslu, „vegna þess að þetta segir manni hvað lífið er. Maður getur haft alls konar vænt­ingar til þess en maður mun aldrei stjórna öllu. En maður getur stjórnað hvernig maður bregst við því sem kemur upp.“

Svo hringdi Kári

Evu og alsystk­ini hennar lang­aði til að vita hvort sjúk­dóm­ur­inn væri ætt­gengur „Auðvitað kom hræðsla í mig við að horfa upp á allt þetta og ég hugs­aði með mér hvort ég ætti eftir að lenda í þessu. Það var óþægi­leg til­finn­ing. Ég sendi þess vegna árið 2018 tölvu­póst á aðal­net­fang deCODE og spurði hvort fyr­ir­tækið hafi rann­sakað ætt­gengi Pick's des­e­ase,“ segir Eva en það er sjúk­dóm­ur­inn sem móðir hennar var með. „Svo hringdi Kári Stef­áns­son í mig. Hann sagði að þau hefðu ekki fundið ætt­gengi sjúk­dóms­ins en þau vildu gjarnan fá að rað­greina okkur systk­inin og skoða þetta. Ég bara vó! Bara Kári að hringja í mig! Ok.“ Eva hlær.

„Hann er bara heitur!“
Eva um Kára mörgum árum áður en þau hófu sam­band.

„Við fengum strimla til að taka DNA-sýni, munn­vatns­sýni. Svo fórum við systk­inin á fund á skrif­stofu Kára þegar hann ætl­aði að segja okkur nið­ur­stöð­urnar. Hann var í galla­skyrt­unni sinni og það var allt á rúi og stúi á skrif­stof­unni. Og hann ræddi við okkur. Það er svo fyndið að segja frá því að þegar við vorum komin fram eftir að hafa talað við hann sagði ég við systk­ini mín: „Hann er bara heitur!“ Eva hlær. „Systkini mín voru vön því að ég segði ýmis­legt órit­skoðað; sem krakka fannst mér til dæmis Bruce Willis vera brjál­æð­is­lega flottur. Þannig að þetta var ekk­ert nýtt. Bróðir minn hló að mér.“ Eva er aug­ljós­lega ást­fangin. „Kári er rosa­lega sjar­mer­andi,“ segir hún með áherslu. „Ég tók eftir honum. Ég finn svo mikla orku frá fólki og ég hafði setið þarna og „já“!“. Hún hlær.

Systk­inin eru ekki arf­berar og það var mik­ill léttir. „Maður vill ekki ganga í gegnum þetta og öll erf­iðin sem fylgja því og hugsa svo „er ég næst?“. En að sjálf­sögðu hvílir þetta alltaf á manni.“

Eva flutti svo aftur austur og kom svo aftur í bæj­ar­ferð þegar móður hennar hafði hrakað. „Ég hugs­aði með mér að ef hún væri að fara að kveðja þá ætl­aði ég að vera á staðnum.“

Afmæl­is­dagur Evu rann upp haustið 2018. Og á þeim degi lést móðir hennar og var fjöl­skyldan hjá henni.

„Ég hugs­aði með mér að það hlyti að vera ein­hver mein­ing á bak við það að hún dó á afmæl­is­dag­inn minn. Ég hugs­aði með mér að ég ætl­aði alltaf að fagna líf­inu á afmæl­is­dag­inn. Þetta hafði mjög djúp­stæð áhrif á mig og ég fór mikið að pæla í allri heils­unni. Þarna byrj­aði í raun­inni lífs­stíls­breyt­ing mín. Ég var búin að eign­ast tvö börn, ég hafði fitnað og lífs­stíll­inn var ekki lengur eins og hann var þegar ég var yngri. Það var allt end­ur­skoðað í lífi mínu.“

Sorgin

Hvað er dauð­inn í huga Evu? Tekur eitt­hvað við þegar fólk deyr?

„Mig langar til að trúa því. Ég vil alla­vega ekki úti­loka það og ég sagði strák­unum að amma þeirra og afar séu englar. Og ég hef sagt þeim að allir lifi áfram í hjart­anu þeirra og að þeir finni teng­ingu við þau með því að hugsa fal­lega til þeirra. Yngri sonur minn hefur spurt hvort þau fylgist alltaf með sér. Ég sagði svo ekki vera. Þetta er svo­lítið flókið.

Tíminn læknar engin sár. Klárlega ekki. En við lærum að lifa með þessu og það skiptir máli þegar við gefum hlutum þýð­ingu, það skiptir máli hvernig við tök­umst á við hlut­ina. Mér fannst ég geta fundið mikla merk­ingu í öllu. Í stað­inn fyrir að leita út í svona erf­ið­leikum þá leit­aði ég inn á við af því þar liggur kraft­ur­inn. Mér finnst við vera rosa­lega voldug. Ég er með miklar til­finn­ingar.“

Eva við­ur­kennir að hún sé næm.

„Mér finnst ég finna orku frá fólki.“ Það nefndi hún varð­andi Kára. „Mann­eskja getur staðið fyrir framan mig og sagt eitt­hvað og ég finn ef hún meinar það ekki sem hún segir. Ég hef til dæmis stundum ekki orku til að fara á skemmt­anir þar sem er fullt af fólki. Og mér finnst vera þreyt­andi aðstæður þar sem fólk stundar ákaft spjall á yfir­borð­inu, þetta sem við köllum „small talk“.

Það sem mér finnst óspenn­andi er ef fólk horfir kannski á mig og ímyndar sér eitt­hvað út frá því sem það sér en þekkir mig ekki neitt og er með ein­hverja hug­mynd um mig út frá útlit­inu einu og sér. Yfir­borðið segir ekki mikið. Það er ekki þægi­legt.“

Hreyfingin

Eva var 31 ára þegar móðir hennar lést. Eins og hún sagði fór hún að hugsa meira um heils­una og hún fór að stunda meiri hreyf­ingu. Yngri sonur hennar var þá eins árs og hún var búin að vera með hann á brjósti og hún talar um að hún hafi verið full af horm­ónum og allt of þung. „Eftir að ég eign­að­ist yngri strák­inn minn fór ég upp í 76 eða 77 kíló. Það er allt of mikið fyrir svona litla mann­eskju eins og ég er,“ segir Eva sem seg­ist vera 1,64 metri á hæð.

„Ég var svo þrútin. Meira að segja and­litið á mér var allt öðru­vísi. Mér fannst karakt­er­inn vera sterkur en mér fannst lík­am­inn vera eins og byrði utan á mér. Mér fannst hann ekki vera í takt við mig og það var mjög óþægi­leg til­finn­ing. Ég var í svo lélegu formi og það var vont. Ég var með tvo litla, hressa og kraft­mikla krakka og var sjálf ekki í stakk búin til að díla við það. Það var hræði­leg til­finn­ing. Mér fannst ég ekki ráða við þetta.“

Evu leið illa.

Í kjöl­fars lífstíls­breyt­ing­ar­innar missti hún tæp 20 kíló. Fyrstu átta til tíu kílóin fóru á nokkrum mán­uðum aðeins með breyttu matar­æði og smá auk­inni hreyf­ingu heima.

Hún talar um að þegar fólk byrjar að hreyfa sig sé klass­ískt að það leggi áherslu á yfir­borðs­lega þætti eins og það að vilja líta vel út, vera grennra og finn­ast það vera kyn­þokka­fullt. „Svo þegar við förum af stað og erum að gera þetta rétt, án þess að ætla að svelta okkur, förum við að finna fyrir innri styrk og krafti.“

Garpur kemur gang­andi og leggst ofan á annan fót blaða­manns og liggur þar eins og skata í langan tíma.

„Honum finnst svo­lítið gott að kúra á löppum. Litli kall,“ segir Eva blíðum rómi. „Hann sæk­ist mikið í lappir. Hann vill miklu frekar að honum sé klappað með fótum heldur en höndum.“

Nýkomin með greiningu

Þegar hefur komið fram að Eva var greind með ADHD árið 2023 og telur hún að hún sé mjög lík­lega á ein­hverfu­rófi. Báðir synir hennar eru með ADHD og á ein­hverfu­rófi og hún sagði við sál­fræð­ing sem hún fór til vegna ADHD-grein­ingar að hún vildi ekki að það yrði athugað hvort hún sé á ein­hverfu­róf­inu vegna þess að það myndi ekk­ert þýða fyrir sig. „Það breytir engu. Ég er eins og ég er.“

Hún er spurð hvers vegna hún haldi að hún sé á ein­hverfu­rófi. „Ég tengi við rosa­lega margt. Fyrir utan að báðir strák­arnir mínir eru báðir með ADHD og á ein­hverfu­róf­inu er ein­hverfa mjög tíð í fjöl­skyld­unni.

Ég er til dæmis með ósveigj­an­legan ramma og mér finnst það vera mjög óþægi­legt þegar hlutir taka skyndi­lega breyt­ingum. Ég vil hafa hlut­ina á vissan hátt. Ég get orðið rosa­lega næm ef það eru læti og hávaði í kringum mig. Ég fór á sínum tíma í kulnun og við það fannst mér allt magn­ast upp hjá mér. Þegar ég fór í versl­un­ar­mið­stöðvar setti ég heyrn­ar­tól í eyrun og sól­gler­augu og labb­aði þannig í gegn. Ég finn rosa­lega fyrir öllu. Það fer allt í gegnum mig. Eins og þegar ég hlusta á tón­list. Við Kári förum alltaf á Sinfó á fimmtu­dögum. Öll tón­listin fer algjör­lega í gegnum mig. Beint inn í hjartað á mér. Það er svo fyndið. Við Kári vorum bæði með heilsuúr á okkur eitt skiptið þegar við fórum á sin­fón­íu­tón­leika. Hann mæld­ist eins og í slökun en ég mæld­ist eins og ég stæði í átökum. Tón­listin hefur svo mikil áhrif á mig.“

Í einkaþjálfaranám

Eva og barns­faðir hennar slitu sam­búð 2019 eftir tíu ára sam­band. Þau bjuggu þá á Eski­firði og flutti hún í annað hús­næði í bænum. „Ég var í fínni skrif­stofu­vinnu og mér gekk vel og svo skall Covid-heims­far­ald­ur­inn á og maður var skít­hræddur. Maður vissi ekk­ert. Yngri strák­ur­inn hafði greinst með lækkun í MBL-gildum sem á að hafa þau áhrif að kerfið hans berst ekki jafn­vel við sýk­ingar. Hann varð reyndar ekk­ert veik­ari en bróðir hans á fyrstu árunum. Ég útbjó svo vinnu­að­stöðu heima og við tókum strák­ana af leik­skól­anum í ein­hvern tíma. Þetta var álag.“

Þarna upp­lifði Eva sig stand­andi á tíma­mótum.

„Ég vann í Excel alla daga og þá kom næsti punktur eins og eftir mennta­skól­ann: Hvað núna? Hvað tekur við? Þetta er ekk­ert „ég“ að vera skrif­stofu­dama sem situr á bak við tölv­una í Excel alla daga. En ég geri allt vel sem ég geri, alveg sama hvort það er tölvu­vinna eða vinna í álveri. Ég er þannig inn­rætt. Ég fer „all in“ í allt sem ég geri. Mér gekk vel en ég fór að velta fyrir mér draumunum. Hvað lang­aði mig til að gera? Ég fór að skoða einka­þjálf­ara­nám í Íþrótta­aka­demíu Keilis og skráði mig í tveggja anna stað­lotu­nám sem ég hóf haustið 2020.

Mér fannst þetta vera hrika­lega spenn­andi. Allt um lík­amann heillar mig hvort sem það er lík­am­inn sjálfur, hugsun eða hegðun.“

Fór í kulnunEva lagði á sig mikið álag til að breyta far­vegi lífs síns, en ekki án til­kostn­aðar.

Fór í kulnun

Eva samdi við vinnu­veit­anda sinn um að fara í 75% vinnu og var því ein­stæð móðir með tvö börn í 75% vinnu og 100% námi. „Það var svo­lítið verk­efni og ég var alltaf að keyra í bæinn til að fara í þessar lotur og spurði barns­föður minn hvernig ég ætti að púsla þessu saman. Hann spurði hvort ég þyrfti ekki að flytja í bæinn svo ég gæti klárað námið. Það voru og eru góð sam­skipti á milli okkar.“

Eva ók þvert yfir landið í einum rykk.

„Ég fékk að vinna út frá úti­bú­inu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en fyr­ir­tækið er með skrif­stofur bæði á Reyð­ar­firði og þar. Þetta gerð­ist allt mjög hratt. Öllu var pakkað niður og flutn­inga­bíll­inn kom í hádeg­inu á þriðju­degi en ég hafði lagt af stað keyr­andi ein með strák­ana eldsnemma um morg­un­inn. Á mið­viku­dags­morgni komu allir kass­arnir í íbúð í Kópavogi. Þetta var svo­lítið ýkt. Ég keyrði í einum rykk með tvo litla stráka. Þetta eru 730 kíló­metrar. Ég skil­aði svo verk­efni í skól­anum á föstu­deg­inum og tók próf á laug­ar­deg­inum. Þannig að þetta var brjáluð keyrsla,“ segir hún og á ekki bara við öku­ferð­ina frá Eski­firði.

„Ég var á þessum tíma á lokakúri á dekutan-húð­lyfjakúr en eftir sam­bands­slitin fór húðin í and­lit­inu á mér gjör­sam­lega í rugl. Ég varð einn dag­inn í vinn­unni allt í einu renn­andi blaut í and­lit­inu af olíu og í kjöl­farið fékk ég mjög slæmar þrymla­bólur.“

Álagið var of mikið og lík­am­inn lét vita af því.

Eva segir að í enda kúrs­ins tíðkast að tvö­falda kúr­inn í lokin en að læknir fyrir austan hafi sagt að hún gæti það ekki vegna þess að hún væri of létt fyrir þann skammt. Hún fór svo til ann­ars læknis í Reykja­vík sem sagði henni að það væri komið að lokum á þessum lyfjakúr og því yrði að tvö­falda skammt­inn í lokin. Þá komu fljótt meiri auka­verk­anir sem höfðu áhrif á lið­ina sem varð til þess að hún varð að draga úr hreyf­ingu.

„Smátt og smátt sagði tauga­kerfið „ekki meir, ekki meir“.“

„Ég man eftir því að ég sat einn dag­inn heima í tölv­unni og var að skrifa og var farin að gleyma hlutum. Ég mundi ekki einu sinni hvernig ég átti að tengja yfir á hinn skjá­inn. Smátt og smátt sagði tauga­kerfið „ekki meir, ekki meir“.“

Það var þarna sem Eva nauð­heml­aði.

„Ég brást í grát einn dag­inn þar sem ég sat við tölv­una að vinna heima. Ég vissi ekki af hverju. Ég hringdi í vinnu­veit­anda minn og sagði að ég væri veik. Ég tal­aði svo við heim­il­is­lækn­inn og sagð­ist ekki vita hvað væri í gangi. Ég sagði að ég hefði misst báða for­eldra mína, ég hefði gengið í gegnum sorg og erf­ið­leika en nú væri eitt­hvað ennþá meira að. Lækn­ir­inn tók á móti mér og sagði svo að ég væri í 100% námi, 75% vinnu og ein­stæð móðir með leik­skóla­börn og að dæmið gengi ekki upp. Hann sagði að ég væri komin í kulnun og að það væri verk­efni að koma til baka. Hann sagði að þetta yrði lang­hlaup, ekki sprett­hlaup. Og hann bara stöðv­aði mig.“

Þetta var í apríl 2021 og á sama tíma var Eva að ljúka seinni önn­inni í einka­þjálf­ara­nám­inu og seg­ist hún ekki muna eftir sein­asta áfang­anum.

Erfið endurkoma

„Ég var alltaf að reyna að koma til baka. Ég var ekk­ert til­búin í það. Ég vildi alltaf fara af stað og vildi ekk­ert bíða en það virk­aði ekki þarna. Þarna sagði lík­am­inn bara „það er this way or no way“. Ég klárað­ist algjör­lega. Ég hafði enga stjórn á lík­am­anum. Ég sótti strák­ana í leik­skól­ann og svo kom ég inn um dyrnar, sett­ist í úti­föt­unum í sófann og datt út. Ég bara sofn­aði. Ég hafði enga stjórn þannig að ég fór í djúpa holu.

Lækn­ir­inn sagði að hreyf­ing væri það sem ég þyrfti á að halda til að vinna á streitu. Hann sagði að ég ætti að hreyfa mig á hverjum degi í tutt­ugu mín­útur til hálf­tíma og að það væri mitt meðal hvern ein­asta dag, bara ekki af sömu ákefð og áður fyrr.

Hreyf­ingin er það sem hélt mér á lífi. Þessi litla dag­lega hreyf­ing gerði það að verkum að and­lega hliðin kom hægt og bít­andi til baka. Og það var rosa­lega eriftt að díla við þetta af því að það skildi þetta eng­inn að ein­stak­lingur í veik­inda­leyfi gæti stundað dag­lega lík­ams­rækt.

Ég hafði aldrei upp­lifað þung­lyndi en þetta var klár­lega þung­lyndi þegar ég fór á botn­inn í kulnun. Ég hrundi alla leið. Mér fannst eins og ég hefði dáið og mér fannst eins og ég hefði fengið þarna tæki­færi til að lifna aftur við; mér fannst eins og þarna væri séns­inn. Ég gat átt líf aftur. Ég þurfti að velja vel hvað ég vildi gera því ég hafði svo litla orku. Ég skoð­aði allt í lífi mínu svo sem í hvað ég var að verja tíma. Ég fór að skoða hvað skiptir mig máli, hvað nærir mig, hvað mér finnst gott, hvar mín grunn­gildi eru og í hvaða sam­skiptum ég vil eiga. Mér fannst eins og ég hefði fengið tæki­færi til þess að lifa á ný. Mér fannst ég upp­lifa aftur allan heim­inn í kringum mig með því að eiga stundir með strák­unum, finna gleð­ina og gefa mér tíma í að fífl­ast með þeim og setja tón­list á og dansa og flippa. Lífið er öll þessi míkró-móment, labba úti og sjá lit­ina breyt­ast í kringum sig. Maður þarf að skynja þetta.

Þarna byrj­aði ég að stunda hug­leiðslu og datt algjör­lega inn í þann heim að skoða allt þetta and­lega. Það var algjör gjöf fyrir mig en á sama tíma var það svo­lítið flókið vegna þess að mér fannst ég verða öðru­vísi en allir í kringum mig. Mér fannst eins og atriði sem skiptu mig máli væru almennt ekki það sem fólk í kringum mig væri að pæla í. Mér fannst eng­inn skilja hvernig fók­us­inn minn í líf­inu væri þannig að ég ein­angr­að­ist svo­lítið fyrir vikið. Mér fannst ekki gott að leita í hvaða félags­skap sem er. Það var margt sem breytt­ist við þessa kulnun.“

Kynntist sjálfri sér

Eva seg­ist hafa verið eini starfs­mað­ur­inn hjá fyr­ir­tæk­inu í starf­inu sem um ræðir og eng­inn kom alfarið í hennar stað á meðan hún var í veik­inda­leyfi. „Í hvert skipti sem var fundað og talað við mig var ég ekki í ástandi til að geta tjáð mig um það hvenær ég héldi að ég kæmi til baka. Ég gat ekki svarað því. Ég vissi það ekki. Ég gat svo illa tjáð mig vegna þess að van­líðan sem fylgir því að fara svona djúpt niður er ólýs­an­leg. Maður lítur kannski eins út á yfir­borð­inu en undir því er maður á bólakafi og getur ekki tjáð sig. Maður var ekki að ganga á fulde fem þannig að ég gat eig­in­lega ekki tjáð mig og þeir sátu eftir í lausu lofti.“

Eva seg­ist lítið hafa gert á þessum tíma í veik­inda­leyfi og mán­uð­unum eftir það annað en að kom­ast í gegnum verk­efni dags­ins.

„Við spyrnum okkur upp aftur.“

„Ég var alveg ein­angruð. Ég gerði allt rétt, ég svaf og hreyfði mig, en ég átti erfitt með öll félags­leg sam­skipti og ég fór í versl­un­ar­mið­stöðvar með sól­gler­augu og með í eyr­unum og ég vildi helst ekki tala við fólk. Ég brast í grát yfir engu.

Það var mikið álag að vera svona ein og rúlla öllum boltum. Reyndar er það alveg þekkt að for­eldrar barna með ein­hverfu lendi í kulnun. Þau eru oft og tíðum flókið verk­efni. Það end­aði þannig að ég horfði í spegil og mér fannst ég ekki einu sinni þekkja mann­eskj­una sem ég sá í spegl­inum. Ég var bara aftengd. Þetta var rosa­lega vondur staður að vera á. Ég er svo þakk­lát fyrir það að heim­il­is­lækn­ir­inn horfði á mig eins og hann gerði og beindi mér í rétta átt. Ég er svo þakk­lát fyrir það að fá hreyf­ing­una þarna.“

Eva var búin að vera í veik­inda­leyfi frá vinnu í nokkrar vikur áður en hún fór af stað í 50% starfs­hlut­fall. „Ég fór í raun af stað áður en ég réði við það og end­aði aftur í veik­inda­leyfi þegar mér var tækni­lega sagt upp þar sem starfið mitt var flutt aftur austur.

Ég hef engar vondar til­finn­ingar í garð fyr­ir­tæk­is­ins og mér finnst ég ekki hafa verið svikin. Það væri mjög gott ef við í sam­fé­lag­inu gætum hannað eitt­hvað til þess að að grípa fólk sem fer í kulnun.“

Eva fór á atvinnu­leys­is­bætur og sótti hún um að taka þátt í frum­kvöðla­verk­efni þannig að í stað­inn fyrir að fá bætur fékk hún laun við að þróa eigið starf. Þetta var árið 2023. „Þetta var skemmti­legt og það var gott að eitt­hvað svona tæki við. Mistökin við það þegar fólk fer í kulnun er að fest­ast á botninun. Ég spyr fólk sem fer langt niður hvað það geri þegar það nær botn­inum. Við spyrnum okkur upp aftur. Þannig að ég gerði það klár­lega og þetta var gaman.“

Eva þró­aði starf sem einka­þjálf­ari sem býður upp á þjálfun á net­inu.

„Ég var ein­stæð í fjögur ár eftir sam­band­s­litin og þarna var ég að læra inn á sjálfa mig og hvað ég vil, hvað ég þarf, hverjar væt­ingar mínar eru og ýmis­legt annað sem ég held ég hafi bara aldrei raun­veru­lega pælt í áður sem er örugg­lega afleið­ing af því að missa báða for­eldra. Ég vissi alveg hvað mig lang­aði að upp­lifa og ég átt­aði mig á því að þegar maður teng­ist hjart­anu sínu þá fer maður að átta sig á því hvað maður má biðja um. Fólk er svo hrætt við skuld­bind­ingar. Það eiga allir að vera bara vinir og þókn­ast hver öðrum með ein­hverjar grunn­þarfir. En þetta er ekki nóg fyrir mig. Mig lang­aði í fjöl­skyldu. Mig lang­aði að upp­lifa fullt af hlutum.“

Hún dokar við og hugsar sig um.

„Og fólk gleymir oft þegar um hjarð­hegðun er að ræða að það þarf ekki að fylgja henni. Það má segja „nei“ og að þetta sé ekki fyrir mann alveg sama hvað það er. Við höfum þetta vald þegar við lærum að vera sam­kvæm sjálfum okkur.“

Hreyfingin

Eva vill leggja mikla áherslu á hreyf­ing­una og koma þeim skila­boðum til fólks hvað hún gerir mikið fyrir fólk.

„Þetta er lífið fyrir mér. Hreyfing er mér svo mik­il­væg. Ég fór að hugsa um útlit mitt, en mig lang­aði ekki að vera eins og ég var, og ég fann kraft. Svo allt í einu gat ég mótað lík­ama minn og þetta varð spenn­andi. Mér fannst það gaman. Mér fannst ég vera „powerful“ að geta mótað lík­amann og mér fannst í raun og vera á tíma­bili eins og ég væri að skapa list. Ég gat mótað vöðva. Svo varð ég svo háð því að fá þessa sprengju sem kom í lík­amann,“ segir hún og á við gleði­hormón sem veita vellíðan við áreynslu. „Þetta er svaka­legt kikk. Ég finn og tek á því og þetta er allt ég. Þetta eru vöðvarnir mínir, lík­am­inn og ég er að hreyfa þetta allt. Mér finnst það vera svo gott. Ég sé heim­inn með öðrum augum þegar ég er búin að hreyfa mig.

Mér finnst litir vera fal­legri og mér finnst vera auð­veld­ara að díla við allt í kringum mig. Heim­ur­inn okkar er það sem skyn­færi manns geta skynjað þannig að hver og einn er í raun og veru að upp­lifa sinn eigin heim. Og við höfum tæki­færi til að skapa okkar eigin heim með því að gera svona hluti rétt. Með því að borða vel, borða það sem lík­am­inn þarf á að halda, og gera okkur kleift að hreyfa okkur á þennan hátt. Það þarf líka að sofa vel og vinna með innra sjálfið. Og þá er maður að skapa miklu fal­legri mynd fyrir sig.“

Eva fór að vinna sem einka­þjálf­ari á net­inu og er með heima­síð­una eva­bryn­geirs.com

„Ég hef nán­ast bara þjálfað á net­inu. Ég hef bara gert prógrömm fyrir ein­stak­linga sem þeir mæta svo sjálfir með á stöð.

Svo fór ég í sam­starf með vin­konu minni, Söru Barðdal, og það er mjög skemmti­legt að vinna með henni. Saman höfum við verið með skemmti­leg nám­skeið sem eru með mun dýpri sam­skipti við kúnn­ann.“

Eva seg­ist vinna minna sem einka­þjálf­ari í dag. „Ég er aðal­lega núna að hjálpa mann­inum mínum við alls konar verk­efni og hlúa vel að fjöl­skyld­unni.“

Þess má geta að Eva er með jóganidra-kenn­ara­rétt­indi en hefur aldrei unnið sem jóga­kenn­ari.

„Ég fók­usera líka á þætti eins og álag, streitu og svefn og slökun til að ná sér niður. Það er mér mjög mik­il­vægt. Við hjónin drekkum hvor­ugt og það er mik­il­vægur þáttur í okkar sam­bandi. Og þetta er atriði sem mig langar til að koma meira út í sam­fé­lagið; að fólk átti sig á þessu atriði. Þegar fólk hugsar um áfeng­is­vanda þá ein­blínir það á það þegar áfengi er virki­lega farið að hrjá líf fólks. Ég vil ekki bara horfa á hvenær þetta er orðið vanda­mál hjá fólki heldur á áhrifin sem það er að valda að fá sér sér eitt eða tvö glös. Ég veit ekki hvort ég gæti átt maka sem drykki áfengi. Þannig að það er stór­kost­legt að fá að upp­lifa að vera í svona sam­bandi; við erum bara sam­taka.“

Væri þetta raunhæft?

Úti að borðaEva og Kári njóta lífs­ins.

„Hann er bara heitur!“ hafði Eva sagt við systk­ini sín eftir fund með Kára Stef­áns­syni, þáver­andi for­stjóra deCODE, fyrir tæpum ára­tug. Hún vissi þá ekki hvað örlögin ætl­uðu þeim. „Mér hefði aldrei dottið þetta í hug fyrir tíu árum,“ segir hún og hlær.

Hún hafði sam­band við hann árið 2023 þegar hún var að byggja upp fyr­ir­tækið sitt.

„Mig vant­aði bara að rúlla bolt­anum af stað og ég hugs­aði með mér að ég gæti haft sam­band við ein­hvern og kynnt vinn­una mína. Ég var búin að vera að hanna stórt og flott nám­skeið og þróa leiðir til að aðstoða náið ein­stak­linga og fyr­ir­tæki. Kári sýndi þessu nú ekki mik­inn áhuga verð ég að segja,“ segir hún og hlær, „en honum fannst þetta vera áhuga­vert. Hann bauð mér í kaffi og það var síðar sem hann lýsti yfir þörf sinni fyrir ráðs­konu á heim­ilið en kona hafði verið að þrífa hjá honum sem hætti störfum og hann vant­aði ein­hvern til að reka heim­ilið.“

Samhliða því að vinna við fyr­ir­tækið sitt fór Eva sem sé í byrjun árs 2024 að reka heim­ili Kára auk þess að elda fyrir hann nokkrum sinnum í viku.

Þau töl­uðu við hvort annað eins og vinir og henni leið vel í návist hans. Kunn­ings­skapur varð að vin­skap.

„Ég fann ork­una áður en hann kom heim.“

„Mér leið eins og ég væri að elda og eig­in­maður minn væri að koma heim. Ég fann ork­una áður en hann kom heim. Þetta var allt sem mig lang­aði til að upp­lifa; mig lang­aði í fjöl­skyldu og mig lang­aði í eig­in­mann. Vá hvað þetta var gott. Þarna sátum við strák­arnir mínir með honum við mat­ar­borðið að borða saman kvöld­mat.“

Þau fóru snemma árs að æfa saman á lík­ams­rækt­ar­stöð. Hún segir þau eiga svo margt sam­eig­in­legt hvað lífs­stíl varðar. „Við vorum farin að eyða svo miklum tíma saman. Við vorum alltaf saman. Við bara pössuðum saman. Svo horfði ég svo mikið á hann og hvernig hann virkar. Hann minnir mig svo á son minn í hegðun. Hann Kári er klár­lega á ein­hverfu­róf­inu. Það er eng­inn vafi. Ég þekkti svo ein­kennin svo sem hvernig hann fer afsíðis þegar hann er í marg­menni. Ég skildi hann svo. Mér fannst hann vera svo áhuga­verður.“

Vináttan þró­að­ist í ást. 38 ára ald­urs­munur er á hjón­unum og þegar Eva gerði sér grein fyrir að hún væri kol­fallin fyrir Kára hringdi hún grát­andi í vin­konu sína og spurði: Má þetta?

„Ég er þakk­lát fyrir það að ég náði að kynn­ast honum á per­sónu­legum nótum, sem ein­stak­lingnum sem hann er, en ekki opin­beru per­són­unni því það er það sem ég féll fyrir. Ef hann hefði nálg­ast mig í rækt­inni hefði ég verið „ha?“. Það hefði ekki orðið til þess sem við erum í dag. Ég var að hlúa að honum og heim­il­inu. Þannig kynnt­ist ég honum.

Eva þagnar íbyggin.

„Þetta var ekk­ert plan. Þetta átti ekk­ert að ger­ast. Bara engan veg­inn. Þetta bara gerð­ist. Mér líður eins og ég hafi alltaf þekkt hann og ég er 100% viss um að við áttum að hitt­ast. Ég sótti í hann, við sótt­umst svo mikið í hvort annað. Það er svo gaman að hlusta á hann. Hann er rosa­lega sjar­mer­andi og mig lang­aði bara að vera í kringum hann.“

Amor hitti þau bæði í hjarta­stað og þau byrj­uðu að vera saman.

„Hann varð líf mitt,“ segir Eva og kímir. „Við mát­uðum lífið og hann var líka heima hjá mér. Þetta er svo­lítið flókið. Maður hoppar ekk­ert í svona með allan þennan ald­urs­mun. Áttum við sam­leið? Var þetta raun­hæft? Máttum við þetta? Var þetta skyn­sam­legt? Við fórum í gegnum þetta.“

Þögn.

„Þegar á botn­inn var hvolft hugs­aði ég með mér að ef ég fyndi allar þessar til­finn­ingar til hans væri ég þá trú sjálfri mér að leyfa mér ekki?“

Eva og synir hennar tveir fluttu inn á heim­ili Kára síðla sum­ars og svo bað Kári Evu um að gift­ast sér. Og hún sagði „já“.

Eins árs brúð­kaups­af­mæli

Eva og Kári gengu í hjóna­band 22. nóv­em­ber í fyrra og klædd­ist brúð­urin glæsi­legum, hvítum brúð­ar­kjól. Þau eiga því eins árs brúð­kaups­af­mæli um það leyti sem þetta við­tal er birt. Það kall­ast papp­írs­brauð­kaup.

Eva segir að brúð­kaups­dag­ur­inn hafi verið ynd­is­legur. „Bróðir minn keyrði mig í kirkj­una og hann tal­aði um að ég væri róleg­asta brúður sem hann hafði nokkurn tím­ann séð. Ég sagði bara að ég gæti ekki verið viss­ari um að það sem ég var að gera væri rétt þannig að ég var poll­ró­leg. Ég var að springa úr gleði. Þetta var bara ynd­is­legt,“ segir Eva og brosir.

Hjónin giftu sig í Garða­kirkju og í athöfn­inni hljóm­aði fantasía og fúga í G-moll eftir Bach.

Eva segir að eng­inn íburður hafi verið heldur hafi brúð­kaupið verið lítið og náið. Síðan var haldin brúð­kaups­veisla á heim­ili þeirra.

Eva er spurð hvaða máli það skipti að vera gift.

„Þetta er „validation“ fyrir mér.“ Stað­fest­ing. „Það er ofsa­lega auð­velt að horfa á okkur og finn­ast þetta eitt­hvað skrýtið að við séum gift eða að yngri kona sé með eldri manni. Það er mik­il­vægt fyrir mig að ég sé ekki bara ein­hver „dúkka“. Þannig að það er prinsipp fyrir mig. Það eru vissir hlutir sem ég vildi á þessum tíma­punkti. Mig lang­aði að skapa fjöl­skyldu eins og ég sagði. Ég er mikil fjöl­skyldu­mann­eskja en þótt að for­eldrar mínir hafi dáið ungir þá á ég fullt af systk­inum og rosa­lega flotta fjöl­skyldu.“

Eva seg­ist löngu vera hætt að pæla í ald­urs­mun­inum. Árunum 38. „Mér er svo sama hvað fólki finnst,“ segir hún og kímir. „Mér finnst Kári ekki vera í takt við aldur hans. Auðvitað geri ég mér grein fyrir að það eru vissir þættir sem ég get ekki breytt og það finnst mér vera óþægi­legt en ég get ekki séð hann í takt við jafn­aldra sína. Hann er naut­sterkur,“ segir hún með áherslu, „og hann er svo hraustur. Og svo er það þessi kollur hans sem er bara gjör­sam­lega eins­dæmi. Hann er klár en það er ekki bara það að hann sé klár heldur er það líka hvernig hann hugsar sem er svo gaman. Við þurfum enga afþr­ey­ingu; við getum bara spjallað saman og það er ynd­is­legt.“

Kári er fynd­inn. Það eru flestir senni­lega sam­mála um.

„Hann er fynd­inn,“ segir Eva og ljómar. „Hann er bara ein­stakur.“

Hvað er ástin í huga hennar?

„Þetta er erfið spurn­ing. Ást felur í sér mik­inn kær­leik en líka skiln­ing. Hún getur verið flókin. Þetta er ekki bara eins og í bíó­mynd­unum þegar fólk er „swept away“ og allt er gott og þægi­legt. Þegar maður elskar og verður ást­fang­inn fylgir því líka mikið „vulnera­bility“ þannig að það þarf mik­inn kjark til að elska af opnu og fullu hjarta. Og í alvöru ást­ar­sam­bandi er ekki alltaf logn. Það er alls konar. Og til þess að halda hlutum góðum þarf maður líka alltaf að fara á dýpt­ina og í æsku­sárin. Ást er rosa­lega krefj­andi, góð og flókin en ótrú­lega gef­andi.“

Synir Evu eru í skóla í hverf­inu þar sem hjónin búa og hún segir að faðir þeirra muni flytja í hverfið. Þeir koma þess vegna alltaf fyrst eftir skóla til hjón­anna þótt það sé pabbavika. „Við náum rosa­lega vel saman sem fjöl­skylda. Við erum klár­lega öll á róf­inu,“ segir Eva og hlær, „en við skiljum hvert annað rosa­lega vel. Og strák­arnir kalla Kára líka pabba.“

Fyrri eig­in­kona Kára lést fyrir nokkrum árum. Kári á fjögur börn og í dag eru barna­börnin sjö. Sum börn Kára eru eldri en Eva.

„Ég skynja yfir höfuð illa aldur fólks og hef alltaf gert þannig að mér finnst það ekki vera skrýtið. Það er kannski stundum hlægi­legt því það er aug­ljós­lega ekki normið. En það er kannski svo margt annað í líf­inu sem ég upp­lifi heldur ekki sem norm,“ segir hún og hlær.

„Þetta er stór fjöl­skylda. Strák­unum finnst þeir vera svo ríkir af fólki að það er ómet­an­legt. Þeim finnst það vera ynd­is­legt. Og mér finnst það vera dásam­legt.“ Hún brosir.

Lærdómur

Eva er tæp­lega fer­tug og hefur gengið í gegnum ýmiss konar áföll sem hafa mótað hana. Þau hafa beygt hana á tíma­bilum en ekki brotið.

Lær­dóm­ur­inn er mik­ill.

„Ég hef lært að horfa inn á við, vera sam­kvæm sjálfri mér og hvað við erum voldug. Það á ekki að fara í fórn­ar­lambs­hlut­verk heldur bera ábyrgð á sjálfum sér. Það er hægt að bogna og við bognum öll en við höfum samt tæki­færi til þess að rísa í eitt­hvað meira. Kannski finnst mörgum ég hljóma eins og ég sé svo­lítið ýkt þegar ég tala um þetta því að auð­vitað eru áföll mis­mun­andi. En ég vil samt meina að við erum með mikla aðlög­un­ar­hæfni þannig að hug­ar­far skiptir okkur miklu máli. Hvað við sköpum.“

Eins og áður kom fram hefur Eva dregið úr einka­þjálfun­inni og ein­beitir hún sér í dag að því að aðstoða Kára í verk­efnum hans og fara þau reglu­lega til útlanda vegna þeirra. „Hann er nátt­úr­lega mjög eft­ir­sóttur til að halda fyr­ir­lestra. Hann er líka í nýjum verk­efnum og hann mun aldrei hætta. Þetta er nákvæm­lega innan míns áhuga­sviðs, heil­brigði og heilsa. Við erum mikil heild. Við gerum allt saman.“

Hjónin fara reglu­lega saman í rækt­ina og í göngut­úra. „Kári vill helst æfa alla daga en mér finnst það vera of mikið. Við erum ekki alveg á sama stað hvað þetta varðar. Þegar fólk er komið á hans aldur þá þarf að halda í það að hreyfa sig og það verða stutt skil á milli ef tekin er pása. Það hefur ekki eins mikil áhrif að taka nokkra daga pásu fyrir fólk á mínum aldri. En við æfum á lík­ams­rækt­ar­stöð fimm til sex sinnum í viku, alveg sama hvað. Lífið væri ekki eins gott ef við hreyfðum okkur ekki. Í hvert skipti sem við erum að fara til útlanda að vinna þá bóka ég alltaf hótel sem er með lík­ams­rækt­ar­að­stöðu eða bóka hótel þar sem stutt er á lík­ams­rækt­ar­stöð. Þannig að það er eng­inn afsláttur gef­inn þegar við erum að ferð­ast. Þetta er lífs­stíll.“

„Við erum komin heim“

Hvernig eru draum­arnir? Hvernig sér hún fram­tíð­ina?

„Eins og hún er núna. Það er það fal­leg­asta við það; halda áfram að gera það sem við erum að gera. Það er rosa­lega góð til­finn­ing í stað­inn fyrir að vera að elt­ast við eitt­hvað sem yrði svo „grandi­ose“ í fram­tíð­inni. Þetta er lífið sem ég er að lifa og það er dásam­legt. Ég á ynd­is­lega fjöl­skyldu, litlu fjöl­skyld­una og þá stóru, og mér finnst það vera ynd­is­legt. Við Kári erum með nákvæm­lega sömu áhuga­mál en ég fer kannski aðeins dýpra inn í þessu and­legu mál­efni. Annars erum við á sömu braut sem mér finnst vera „priceless“ að fá að upp­lifa.“

Eva er búin að missa báða for­eldra sína og hefur lent í fleiri áföllum. Finnur hún öryggi hjá Kára? „Já, við erum komin heim.“

Jú, Eva Bryn­geirs­dóttir er glæsi­leg, elsku­leg og ein­læg. Það er stutt í brosið og það er aug­ljóst að hún er ham­ingju­söm og ást­fangin af mann­inum sínum. Á fal­legu heim­ili þeirra er útsýnið í austur eins og síbreyti­legt lista­verk alveg eins og lífið getur verið síbreyti­legt lista­verk. Og í dag kann Eva trikkin til að byggja sig upp, og jafn­framt hjálpa öðrum, svo að lista­verkið, sem lífið sjálft er, fái að njóta sín sem aldrei fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina