Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Selfyssingur segir keníska eiginkonu sína vera vændiskonu

Hélt ítrekað fram­hjá honum og sendi menn til að hóta honum

Selfyssingur segir keníska eiginkonu sína vera vændiskonu
Selfoss Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Karl­maður frá Selfossi hefur stefnt kenískri eig­in­konu sinni með það í huga að láta ógilda hjóna­band þeirra en þau létu skrá hjóna­band sitt á Íslandi síð­asta sumar. 29 ára ald­urs­munur er á þeim hjón­unum

Samkvæmt stefn­unni kynn­ust hjónin í Kenía í lok jan­úar 2023 og hófu þar ást­ar­sam­band. Eftir stutt sam­neyti þeirra á milli fór kona að knýja á um að þau myndu gifta sig. Maðurinn var ekki sam­mála þeim hug­myndum hennar og útskýrði að sér þætti eðli­legra að fólk kynnt­ist vel áður en til slíks ráða­hags kæmi. Eftir mikla eft­ir­gangs­semi og þrýst­ing frá þeirri kenísku lét hann það eftir henni að ganga í gegnum athöfn í Kenía, sem hann taldi þó ekki vera eig­in­lega hjóna­vígslu, enda var hann þess full­viss að sú athöfn hefði ekki gildi á Íslandi.

Þann 24. des­em­ber 2024 fluttu hjónin til Íslands og fékk eig­in­konan mán­aðar ferða­manna­dval­ar­leyfi. Þegar þessi mán­uður var u.þ.b. að renna út, sótti hún um ótíma­bundið dval­ar­leyfi á grund­velli hinna kenísku hjú­skap­ar­papp­íra, var það gert með sam­þykki eig­in­manns­ins.

Hélt ítrekað framhjá honum

Fljót­lega eftir að þessi dval­ar­leyf­is­um­sókn hafði verið gerð, fór Sel­fyss­ing­inn hins vegar að gruna að eig­in­kon­una hefði ein­ungis í hyggju að not­færa sér góð­mennsku hans, sér til fram­færslu. Eftir kom­una til Íslands, hafði hún bíl til afnota og debet­kort hans sem hún mátti nota innan skyn­sem­is­marka. Maðurinn hafði hjálpað stefndu að fá kerfis­kenni­tölu og opna banka­reikn­ing hjá Íslands­banka. Háttsemi hennar gagn­vart stefn­anda fór hratt versn­andi og hún dvaldi oftar í Reykja­vík en á heim­ili þeirra á Selfossi. Útskýr­ingar hennar á því hvað hún væri að gera eða með hverjum hún var stemmdu illa og illa gekk að ná í hana í síma. Hið sanna, sam­kvæmt stefn­unni, var að hún var að hitta aðra karl­menn á þessum tíma. Hún hóf t.a.m. ást­ar­sam­band við mann um miðjan jan­úar, eða 3 vikum eftir kom­una til lands­ins og áður en dval­ar­leyf­is­um­sóknin var lögð fram. Hún var í sam­bandi við fleiri menn næstu 2 mán­uði og þann 17. apríl 2025 flutti hún frá eig­in­manni sínum og yfir­gaf hús­næði hans fyrir fullt og allt. Stuttu síðar, flutti hún lög­heim­ili sitt frá honum. Morg­un­inn eftir að hún yfir­gaf mann­inn, sendi hún tvo menn, sem eig­in­mað­ur­inn kunni ekki nein deili á til heim­ilis hans, þar sem haft var í hót­unum við hann og honum m.a. skipað að hafa engin afskipti af dval­ar­leyf­is­um­sókn­inni né eig­in­kon­unni sjálfri, hún væri farin fyrir fullt og allt og kæmi aldrei aftur. Þetta atvik hefur verið kært til lög­reglu sam­kvæmt stefn­unni.

Þjóðskrá samþykkti hjónabandið

Stefn­andi hafði í kjöl­farið sam­band við Útlend­inga­stofnun (UTL) og upp­lýsti um atburð­ina og hátt­semi eig­in­kon­unnar og til­kynnti jafn­framt að hann væri ekki lengur sam­þykkur dval­ar­leyf­is­um­sókn hennar. Í einu sím­tali við UTL þar sem stefn­andi hafði hringt til að fá upp­lýs­ingar um það hvernig skrán­ingu hjú­skapar væri háttað hér á landi, var honum tjáð að þegar og ef dval­ar­leyf­is­um­sókn yrði sam­þykkt, myndi UTL senda til­kynn­ingu þess efnis til Þjóð­skrár Íslands sem myndu skrá hjú­skap­inn. Að öðru leyti væri ekki um hjú­skap­ar­skrán­ingu að ræða án hans aðkomu og á meðan málið væri til með­ferðar hjá UTL. Hann setti sig einnig í sam­band við sýslu­mann og Þjóðskrá til að spyrja sömu spurn­inga og fékk svipuð svör frá báðum aðilum, að þetta færi eftir nið­ur­stöðu UTL. Einnig hefur hann fengið þau svör frá UTL að það eitt að hann til­kynnti að hann væri ekki lengur sam­þykkur dval­ar­leyf­is­um­sókn­inni, myndi duga til að umsóknin yrði ekki sam­þykkt.

Engu að síður sam­þykkti Þjóðskrá að skrá þau í  hjú­skap þann 19. ágúst 2025 á grund­velli hinna Kenísku „Certified copy of Certificate of marri­age“.

Telur að hún sé vændiskona

Eig­in­mað­ur­inn seg­ist í stefn­unni ekki vita hvar eig­in­kona hans er niður komin í dag en telur að hún haldi til á Íslandi. Þá veit hann ekki hver er staðan á umsókn hennar um dval­ar­leyfi, þar sem hún hefur fjar­lægt hann sem umboðs­mann hennar á umsókn hennar um dval­ar­leyfið. Eig­in­mað­ur­inn telur líkur á að umsókn hennar um dval­ar­leyfi hafi verið hafnað í ágúst 2025 og það sé ástæða þess að hún lét skrá mein­tan hjú­skap þeirra hjá Þjóðskrá þann 19. ágúst 2025. Telur hann að hjú­skap­ar­skrán­ingin hafi verið liður í því að reyna að fá UTL til þess að breyta afstöðu sinni, en hann hefur marg­ít­rekað við stofn­un­ina að hann sé mót­fall­inn því að hún fái dval­ar­leyfi hér á landi eða verði tengd honum á neinn hátt. Þjóðskrá hefur stað­fest að stefnda er ein­ungis með kerfis­kenni­tölu hér á landi og því yfir­gnæf­andi líkur á að hún hafi ekki dval­ar­leyfi hér á landi.

Í stefn­unni segir mað­ur­inn einnig að hann hafi kom­ist að því síðar að konan hafi starfað sem vænd­is­kona, bæði á Íslandi og í Dubai.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina