Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kallar val á friðarverðlaunahafa Nóbels „nöturlegt grín“

Kristinn Hrafns­son er allt annað en ánægður með nýja frið­ar­verð­launa­hafann

Kallar val á friðarverðlaunahafa Nóbels „nöturlegt grín“
Maria Corina Machado Frið­ar­verð­launa­hafi Nóbels 2025 Mynd: ODD ANDERSEN / AFP

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, fer hörðum orðum um Nóbels­frið­ar­verð­launin í nýrri Facebook-færslu þar sem hann kallar verð­launin til Maríu Corinu Machado þau „óskilj­an­leg­ustu í sög­unni“. Hann líkir jafn­framt verð­laun­unum við „nöt­ur­legt grín“ og segir að um „skandal“ sé að ræða sem skeri sig úr, jafn­vel þegar litið sé til ann­arra umdeildra ákvarð­ana Nóbels­nefndar í gegnum tíð­ina.

Kristinn ritar að „það má varla á milli sjá hvort er meira nöt­ur­legt grín, frið­ar­verð­laun FIFA … eða frið­ar­verð­laun Nóbels sem María Corina Machado fékk form­lega í Osló í gær“.

Rifjar upp umdeilda verðlaunahafa

Í færsl­unni fer Kristinn yfir dæmi úr sögu verð­laun­anna þar sem verð­launa­hafar hafi síðar brugð­ist trausti. Hann nefnir meðal ann­ars Aung San Suu Kyi í Myanamar og Abiy Ahmed, for­sæt­is­ráð­herra Eþíópíu og bendir á að Nóbels­nefndin hafi áður þurft að „bera ennþá nokkurn kinn­roða“ yfir ákvörð­unum sínum.

„Frið­ar­ins menn í Osló bera ennþá nokkurn kinn­roða yfir að hafa veitt Henry Kiss­in­ger verðaunin 1973 fyrir að koma á vopna­hléí í Viet Nam sem varð svo strax að engu en banda­ríski utan­rík­is­ráð­herr­ann dund­aði sér sama ár við að plotta valda­rán hers­ins í Chile þar sem for­seti lands­ins Salvador Allende end­aði sína daga í sund­ur­sprengdri for­seta­höll. Nóbels­frið­ar­verð­launa­haf­inn Kiss­in­ger átti eftir að vera með langt saka­vott­orð ann­ara glæpa, í Austur-Tímor, Bangla­desh, Cambodiu og Laos svo fátt eitt sé nefnt.“

Hann vitnar til sam­tals við starfs­mann Nóbels­nefndar sem hafi helst „skamm­ast sín ennþá meira fyrir að hafa hengt frið­ar­verð­launin á Barak Obama árið 2009“.“

„Fyrir nokkrum árum hitti ég starfs­mann Nóbels­nefnd­ar­innar í Osló og þegar ég bar upp á hann sögu Kiss­in­ger fannst mér að hann skamm­að­ist sín ennþá meira fyrir að hafa hengt frið­ar­verð­launin á Barak Obama árið 2009 nokkrum mán­uðum eftir að verða Banda­ríkja­for­seti en frið­ar­fram­lagið var sum sé að „segj­ast” vera frið­ar­ins maður. Annað kom á dag­inn enda stór­fjölg­aði hann í herjum Banda­ríkja­manna í Afganistan í von­laus­asta stríði banda­rískrar sögu, taka þátt í að leggja Líbíu í rúst og víkka síðan út dróna­árásir í fjölda landa þar sem vin­sæl­ast þótti að senda sprengjur á ætt­ar­mót og brúð­kaup.“

Styður þjóðamorð Benjamin Netanyahu

Kristinn full­yrðir að María Corina Machado upp­fylli engan veg­inn mark­mið Alfreds Nobel. Hann segir að „það hefur legið fyrir ódulið hvaða mann hún hefur að geyma“ og að hún hafi „hvatt til árása erlendra herja á eigin þjóð“.

Hann bætir við að hún hafi „stutt dyggi­lega við bakið á Benjamin Net­anyahu, þjóð­ar­morð­ingj­anum í Ísrael“ og gagn­rýnir að hún hafi fagnað árásum banda­ríska hers­ins á fiski­báta undan ströndum Venes­ú­ela, sem að hans sögn hafi „slátrað þar með yfir 80 manns undir því yfir­skyni að þar séu dóp­flutn­inga­menn á ferð­inni, án þess að færa fyrir því nokkrar sann­anir“.

Kristinn segir jafn­framt að þegar Donald Trump hygg­ist tryggja olíu­hags­muni með inn­rás í Venes­ú­ela verði María „klapp­stýran enda hefur hún lofað því opin­ber­lega að banda­rísk fyr­ir­tæki fái aðgang að auð­lindum eigin ætt­jarðar“.

Að hans sögn var fyrsta verk hennar eftir að hafa fengið til­kynn­ingu um verð­launin „að hringja í Dónald Trump, þakka honum stuðn­ing­inn og lýsa því yfir að í raun og sann­leik væri hún að taka við þessum frið­ar­verð­launum jafn­mikið fyrir hann og sig“.

„Aumingja Alfred Nobel“

Kristinn segir að „aum­ingja“ Alfred Nobel myndi „bylta sér óró­lega í gröf­inni“ yfir núver­andi stöðu frið­ar­verð­laun­anna og vitnar í erfða­skrá Nobels þar sem segir að verð­launin skuli veitt þeim sem „hefur afrekað mest eða stuðlað umfram aðra, að bræðra­lagi milli þjóða, fækkun í herjum og fyrir að halda frið­ar­ráð­stefnur eða unnið að þeim“.

Færsl­unni lýkur með til­vitnun í Mahatma Gandhi um vest­ræna sið­menn­ingu: „Ég held að hún yrði ágæt­ist hug­mynd“, sem Kristinn notar til að und­ir­strika að honum þyki vest­ræn sið­menn­ing „hratt að hverfa sem jafn­vel ágæt hug­mynd“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina