Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ómar gekk inn á bráðamótttöku með hjartaáfall

„Elsku­lega starfs­fólk bráða­mót­tök­unar og hjarta­deild­ar­innar þús­und þakkir, þið eruð meiri­háttar.“

Ómar gekk inn á bráðamótttöku með hjartaáfall
Ómar Sig­urðs­son Ljóst er að verr hefði getað farið Mynd: Facebook-skjáskot

Ómar Sig­urðs­son skip­stjóri greinir frá því í Facebook-færslu að hann hafi fengið alvar­legt hjarta­á­fall fyrir tæpri viku, þegar hann var á leið á fót­bolta­leik á Hlíð­ar­enda. Hann segir atburð­ina hafa gerst skyndi­lega og að hann hafi strax fundið að eitt­hvað alvar­legt væri að.

„Fyrir tæpri viku, var ég að fara á leik að Hlíð­ar­enda búinn að leggja bílnum, þegar yfir mig hellist und­ar­leg líðan. Fyrst sló út á mér köldum svita og ónot og ógleði,“ skrifar Ómar.

Hann ákvað að sleppa leiknum og leit­aði þess í stað á bráða­mót­töku. „Þegar þangað kom var mér orðið ljóst að það var hjarta­á­fall í upp­sigl­ingu,“ segir hann.

Þegar hann kom inn á bráða­mót­tök­una versn­aði ástandið hratt. „Ég gekk hægum og öruggum skrefum að að mót­tök­unni, en þegar inn kom var brjóst­verk­ur­inn orð­inn óbæri­legur og önd­un­ar­erf­ið­leik­arnir svo miklir að ég stóð ekki lengur í lapp­irnar.“

Ómar lýsir skjótum og fag­legum við­brögðum starfs­fólks. „Það varð mikið við­bragð á bráða­mót­tök­unni, fjöldi sjúkra­liða og lækna tóku á móti mér og drifu mig inn í rann­sókn.“ Hann segir að fljót­lega hafi alvar­leiki máls­ins verið stað­festur. „Sett var á mig hjarta­stuð­tæki, blóðprufa og línu­rit tekið, sem stað­festu alvar­leika málsinns.“

Þrátt fyrir að hann hafi verið mjög slæmur þá upp­lifði hann mikla fag­mennsku. „Þó ég hafi verið hálf rænu­laus þegar þarna var komið, leyndi fag­mennskan sér ekki. Ertu ekki með okkur Ómar heyrð­ist reglu­lega í hjúkr­un­ar­kon­unni ...“

Þræð­ing­arteymi var kallað út og kom í ljós að ein kransæð var alveg lokuð. „Mér var ekið niður á lansa, þræddur, ein kransæð var 100 % lokuð. Lækn­ir­inn sagði mér að æðin væri ekki á frá­bærum stað, en hann ætl­aði að reyna að opna hana.“

Aðgerð­inni lauk með góðum árangri. „Enn og aftur var heppnin með mér, þessi læknir reynd­ist snill­ingur og með þol­in­mæði og öguðum vinnu­brögðum tókst að opna æðina.“

Ómar er nú á hjarta­deild og lýsir miklu þakk­læti. „Nú sit ég hérna á hjarta­deild­inni, hálf klökkur af þakk­læti, það er stjanað við mig af starfs­fólk­inu, sem ávarpar mig allt með nafni, mat­ur­inn og vistin eins góð og hún getur orðið.“

Hann segir ljóst að útkoman hefði getað orðið önnur. „Þetta hefði getað farið öðru­vísi.“ Í lokin þakkar hann starfs­fólki spít­al­ans sér­stak­lega. „En elsku­lega starfs­fólk bráða­mót­tök­unar og hjarta­deild­ar­innar þús­und þakkir, þið eruð meiri­háttar.“

Að lokum bætir hann við létt­ari nótum: „Ps: ég gleymdi að skrá bíl­inn inn á bílaplanið Gústi ég komst ekki á leik­inn eins og ég lof­aði. Ég skila inn vott­orði ... 🙂“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina