Íris: Hangikjöt er gott á flatköku. I love that. Hangikjöt og uppstúf finnst mér viðbjóður.
Kristín: Já ok, þannig að þú færð þér hnetusteikina um jólin?
Íris: Ég mun ábyggilega fá mér nautalund. Jólamatur er vondur.
Kristín: Þarna ferðu algjörlega gegn konunni minni. Hún elskar jólamat, en það er aðallega út af meðlætinu.
Íris: Mér finnst kalkúnn góður og meðlætið með því en mér finnst ég ekki beint tengja það við jólamat. Mér finnst laufabrauð vont. Mér finnst hangikjöt ekki gott.
Kristín: Annað hot take, laufbrauð vont.
Íris: Já, þetta er ógeðslega mikið ekki gott. Það er djúptsteikt og ekkert sérstakt. Ég er nýbyrjuð að smakka það af viti og mér finnst það ekki næs. Þetta er hitamál hjá mér. Ég er brjáluð, mér er orðið heitt að ræða þetta. Þegar ég fer í matarboð um jólin og það er boðið í hangikjöt. Ég er bara „Er ekkert annað í boði?“ - „Jú, það er uppstúf“ - Ennþá verra. Ég borða frekar hangikjötið eintómt heldur en með uppstúf.
Kristín: Þannig að aðalmálið þitt er eiginlega uppstúfur.
Íris: Mér finnst það ógeðslega vont og kartöflumús líka.
Kristín: Kartöflumús!? Heimagerð góð karftöflumús?
Íris: Já, mér finnst hún ekki góð. Ég fæ mér bara smá, til að hafa meðlæti með. Þetta er sýndarmennskan.
Athugasemdir