Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kristinn Hrafnsson styður kæru Assange

„Það er óbæri­lega vit­skert að veita frið­ar­verð­laun Nóbels til Machado“

Kristinn Hrafnsson styður kæru Assange
Kristinn Hrafns­son og Julian Assange Kristinn styður vin sinn fullum fetum gegn sænskum yfir­völdum Mynd: AFP

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks, seg­ist styðja fylli­lega kæru Julians Assange til sænskra yfir­valda þar sem kraf­ist er að greiðslur upp á 150 millj­ónir íslenskra króna til nýs frið­ar­verð­launa­hafa Nóbels, Maríu Corrinu Machado, verði frystar á meðan meint lög­brot í tengslum við verð­launa­af­hend­ing­una eru rann­sökuð.

Í Facebook-færslu sinni segir Kristinn að þótt norska Nóbels­nefndin ákveði hver hljóti frið­ar­verð­launin, þá beri Svíar ábyrgð á umsýslu fjár­muna sem tengj­ast arfi Alfreds Nóbels. Hann telur að greiðsla til Machado fari þvert gegn vilja stofn­and­ans.

„Veiting fjár­muna til Machado er gróf­lega á skjön við mark­mið frið­ar­verð­laun­anna sem hann skráði skýrt í erfða­skrá,“ skrifar Kristinn.

Hann bendir jafn­framt á að mögu­lega séu brotin lög sem banna fjár­stuðn­ing við óhæfu­verk og stríðs­glæpi. Að hans mati liggi það fyrir að Machado hafi hvatt til hern­að­ar­að­gerða gegn Venes­ú­ela.

„Það kemur einnig til álita að lög séu brotin sem banna fjár­stuðn­ing við óhæfu­verk og stríðs­glæpi þegar ljóst er að Machado hefur gerst klapp­stýra yfir­vof­andi loft­árása og ef til vill inn­rásar Trump­stjórn­ar­innar í Venes­ú­ela,“ segir Kristinn og bætir við að hún hafi „þegar klappað upp mann­skæðar árásir á fiski­báta undan ströndum lands­ins.“

Kristinn fer hörðum orðum um ákvörðun norsku Nóbels­nefnd­ar­innar og segir hana bæði óskilj­an­lega og hættu­lega.

„Það er óbæri­lega vit­skert að veita frið­ar­verð­laun Nóbels til Machado og vel má rök­styðja að með því atferli hafi norska Nóbels­nefndin hraðað atburða­þróun og skapað rétt­læt­ing­ar­rök fyrir Trump að ráð­ast á landið,“ skrifar hann.

Í færsl­unni varar hann einnig við yfir­vof­andi hern­að­ar­að­gerðum Banda­ríkj­anna gegn Venes­ú­ela og tengir þær hags­munum af olíu­auð­lindum lands­ins.

„Miðað við sturl­aðar yfir­lýs­ingar Banda­ríkja­for­seta fyrir rúmum sól­ar­hring gæti verið stutt í alls­herj­ar­árás á Venes­ú­ela – en þar eru mestu olíu­birgðir heims­ins (ef menn velkj­ast í vafa um raun­veru­lega ástæðu ofstæk­is­ins),“ segir Kristinn.

Að lokum dregur hann upp hlið­stæðu við inn­rás­ina í Írak árið 2003 og varar við ein­földum og vill­andi sam­an­burði.

„Þeir sem gagn­rýndu ólög­mæta inn­rás í Írak 2003 voru gjarnan spurðir heimsku­lega og með þjósti hvort þeir styddu harð­stjór­ann Saddam Hussein. Nú þegar sú saga end­ur­tekur sig vona ég að fólk falli ekki í þá gryfju heimsk­u­nnar að nefna Maduro til sög­unnar í þessu sam­hengi.“

Kristinn greinir frá því að kæra Julians Assange til sænskra yfir­valda sé að finna í fyrstu athuga­semd við færslu hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina