Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leyndarmál sem varð að listsýningu

Raf­fa­ella Brizuela Sig­urð­ar­dóttir heldur sýn­ingu í kyn­lífstækja­búð systur sinnar

Leyndarmál sem varð að listsýningu
Raf­fa­ella Brizuela Sig­urð­ar­dóttir Sýning Raf­fa­ellu er í verslun Losti.is í Ármúla 23 Mynd: Víkingur

Raf­fa­ella Brizuela Sig­urð­ar­dóttir er fjöl­hæf og djörf lista­kona sem sam­einar mynd­list, tón­list, leik­list og dans í ein­lægu og per­sónu­legu sköp­un­ar­ferli. Í nýj­ustu sýn­ingu sinni, SKÝRARA, leiðir hún áhorf­endur inn í djúpa og sjálf­sprottna rann­sókn á til­finn­ingum, skömm, end­ur­heimt og heilun, verk­efni sem varð til úr mjög per­sónu­legri reynslu og óvæntri inn­blást­urs­heim­sókn. Sýningin, sem opn­aði í sam­starfi við Losta.is þann 12 des­em­ber, var aldrei hugsuð sem opin­ber sýn­ing, en þró­að­ist í öfl­ugt lista­verk um þung­un­ar­rof, and­lega vinnu og þá teng­ingu sem skap­ast þegar listin tekur sér eigið líf. Í þessu við­tali deilir Raf­fa­ella sögu sinni, ferl­inu á bak við verkin og því hvernig sýn­ingin varð að því sem hún er í dag, heill­andi, dul­ar­full og djúp mann­eskju­leg upp­lifun.

Hver er Raffaella?

„Góð spurn­ing, held það sé ævi­löng spurn­ing en í stuttu máli tel ég mig vera fjöl­lista­konu sem finnst gaman að hafa gaman og fara djúpt inni hlut­ina! Mér finnst gaman að skapa og best í mynd­listar-, tón­listar-, dans eða leik­li­st­ar­formati“ svarar Raf­fa­ella í upp­hafi við­tals Mannlífs. Hún heldur áfram:

„Já, ég eins og marga lista­menn dreymir um, þá væri það draumur að vera vinna við list­ina 100 pró­sent en það hefur ekki verið raun­hæft hingað til. En er ekki partur af því að vera list­rænn að vera svangur fyrir því, það er að segja að vilja og þurfa eiga fyrir því? Það að taka að mér önnur hvers­dags­leg verk til að borga fyrir lífið sjálft hefur veitt mér þessa löngun enn fremur og það tel ég líka vera list. Að upp­lifa hvers­dags­leik­ann og draga út úr því perlur og gim­steina til að spjalla um og upp­lifa í lit á striga og hljóði.“

Raf­fa­ella er fædd í Mexíkó en alin upp í Banda­ríkj­unum og á Íslandi.

„Ég var fædd í Mexíkó og upp­alin á Íslandi og í Banda­ríkj­unum. Þegar ég tala þá slétti ég hægri og vinstri eða útskýri í teikn­ingu eins og ég hef oft þurft að gera í Kína þegar ég bjó þar um hríð en það sem skiptir mestu máli er að koma hug­myndum sínum áfram.“

Lista­konan seg­ist vera með ansi mörg járn í eld­inum en hún er meðal ann­ars að vinna í tón­lista­verki og taka þátt í leik­verki.

„Fimm ár eru víst ekki það langt fram í tím­ann en ég er með svo mörg verk­efni. Eitt þeirra er að gefa frá mér tón­lista­verk sem ég er búin að geyma í flakk­ar­anum hjá mér í meira en 20 ár, sem þurfa líka að fæð­ast og koma út í heim­inn svo hægt sé að hlusta og njóta. Svo hef ég verið að skapa raf­tón­list með vinum mínum og hlakka til að sjá hvað verður úr því. Ég gaf út fyrir stuttu síðan lag með vini mínum, lista­mann­inum Eyklíður sem er með lista­sýn­ingu núna yfir hátíð­arnar á Gallery Núll, og Garðari Jak­obs­syni. Það er lag sem heitir tell us more!, sem hægt er að hlusta á á Spotify eða tidal. En svo hef ég verið að fikta við leik­list­ina upp á síðkastið og hlakka til að gera meira af því, bæði á sviði og í kvik­myndum. Það er sér­stak­lega búið að vera mjög gaman að taka þátt í þátta­röð­unum Danska konan eftir leik­stjór­ann Benedikt Erlings­son, þar sem hin hæfi­leik­a­ríka danska stór­stjarna, hún Trine Dyrholm er í aðal­hlut­verki en þætt­irnir birt­ast á RÚV frá og með gamlárs­deg­inum. Já margt gott fram undan og alla­vega nóg að gera!“

Sýningin Skýrara

Sýning Raf­fa­ellu, sem opn­aði þann 12. des­em­ber og verður sýnd út jan­úar og jafn­vel lengur, átti í upp­hafi aðeins að vera eitt verk sem eng­inn átti að fá að sjá.

„Já sýn­ingin er svo­lítið skemmti­leg því þetta átti bara að vera eitt verk sem ég hefði gert bara fyrir mig og ekki fyrir aðra að sjá. Mér fannst þetta of per­sónu­legar og prí­vat ein­ka­upp­lýs­ingar og jafn­vel taboo að tjá mig um fóst­ur­eyð­ingu. Eftir mörg ár ákvað ég að það var kom­inn tími til að vinna úr til­finn­ingum sem höfðu verið þar grafnar og ákvað að horfast í augu við þessa upp­lifun sem þar að leið­andi hefur kennt mér svo margt.“

Bætir Raf­fa­ella við:

„Þetta átti í upp­hafi ekki að enda í ein­hverri sýn­ingu og hvað þá í kyn­lifs­búð.“

Einn morg­unin vakn­aði síðan Raf­fa­ella með skrítna kúlu í mag­anum.

„Einn morg­un­inn vakn­aði ég með skrítna kúlu í mag­anum og fór að kanna hvað það gæti verið. Það kom svo í ljós að þetta væri eitt­hvað sem kall­ast Fibroid Myoma, og algengt þegar það er mikið af horm­óna­breyt­ingum og ég fór strax að finna lausnir. En ég hef alltaf trúað á því að það sem ger­ist fyrir þig lík­am­lega á sér upp­runa í til­finn­inga- og and­lega veru­leika­heim­inum fyrst. Og lík­am­inn er í raun og veru bara að reyna að eiga spjall við þig um eitt­hvað sem þú vilt oft ekki skoða því það getur verið erfitt að líta inn í eigin garð en svo vaxa ill­gresi og þá verður maður að fara grafa í rætur og taka til og ég var komin þangað. Ég hafði verið í fal­legu en erf­iðu sam­bandi fyrir mörgum árum síðan en það sem varð loks­ins til að slíta sam­band­inu var erfið fóst­ur­eyð­ing sem átti sér stað. Á þessum tíma vildi ég ekki segja neinum frá því, því mér fannst það svo vand­ræða­legt að vera 36 ára og vilja ekki ganga með barni, aldur sem flestar konur væru að hoppa í sein­ustu lest­ina að móður- og fjöl­skyldu líf­inu, en ég treysti mér ekki til þess þar sem sam­bandið var ekki á öruggum stað. Samt var ég með sam­visku­bit fyrir sál­inni sem varð til í getn­aði trúði ég en slíkt er mikið tabú innan trú­fé­lags­ins sem ég til­heyrði. Ég fór smátt og smátt í þessa and­lega vinnu, og nýtti mér alls­konar tæki, tól og þerapíur um víðan völl sem leiddu til þess að ég fór djúpt inn í alls­konar til­finn­ingar sem fóru að grafa sig upp, ég fann til dæmis fyrir mik­illi trú­ar­legri og sam­fé­lags­legri skömm, en því lengra sem ég fór inn á við fór að blasa við mikil ást og auð­mýkt og sam­kennd fyrir sjálfri mér og fóstr­inu.“

Segir Raf­fa­ella að í einni af með­ferðum hennar hafi það komið upp úr krafs­inu að hún þyrfti að heiðra hið litla fóstur og gefa því skjól.

„Í einum af þerapí­unum kom í ljós að ég þyrfti að til­einka og heiðra þetta litla fóstur og gefa því skjól. Það sem kom í ljós var að það vildi vera heiðrað á list­rænan hátt og í þessu til­felli vildi það sitt eigið mál­verk. Ég fór að velta því fyrir mér hvernig ég gæti gert það án þess að fólk vissi hvað þetta væri bara svona til að halda þessu leyndu fyrir mig. Ég var greini­lega ekki búin að vinna úr því og mig vant­aði meiri aðstoð en þá leit­aði ég til lít­illa álfa­sveppa, og í þeirri ferð fór ég út að pissa um miðja nótt og þar sá ég ský, ský sem leit út eins og full­kom­lega for­mað unga­barn. Þegar barnið opn­aði munn­inn sá ég að ljós geisl­aði í gegn, eins og það vildi segja mér eitt­hvað, og fyrstu tungl­stafirnir fóru að skína í gegn, þangað til að barnið verpti frá sér öllu tungl­inu. Ég vissi þá að það sagði mér margt og ég lof­aði að vera opin og taka á móti skila­boðum þess. Þetta var svo máttug upp­lifun sem lifir enn svo sterkt innra með mér og ég fann kjarkinn sem ég þurfti til að byrja á þess­ari blessuðu mynd. En svo bjóst ég ekki við að mála fleiri og fleiri mál­verk sem sögðu mis­mun­andi sögur sem litla fóstrið vildi tjá sig um. Kannski var ég er orðin eins konar fóst­ur­hvísl­ari og fór að velta því fyrir mér hvort það væri ekki bara það sem skýja­barnið vildi tjá sig í gegnum tungl­sjó­sið.“

Leyndarmál sem varð að sýningu

Raf­fa­ella seg­ist hafa fundið fyrir miklum inn­blástri þegar hún fór að sýna fólki vinnu sína heima í sveit­inni hjá vini hennar.

„Ég fann fyrir miklum inn­blástri þegar ég fór að leyfa fólki að sjá mig mála þessi mjög prí­vat verk út í sveit hjá vini mínum Halla sem kom með hug­mynd­ina á nafni sýn­ing­ar­innar, SKÝRARA. Ég fór að taka eftir hvað það hafði mikil heil­un­ar­á­hrif á þá sem að sáu þessi verk og sér­stak­lega frá karl­mönnum sem ég bjóst engan veg­inn við, þeir komu bara og föðm­uðu og sögðu takk, sumir þurrk­uðu tár og fóru svo. Stelp­urnar horfðu lengi á og fóru smám saman að tala í táknum og á dul­ar­fullu máli um þeirra eigin, eins­konar innra sam­tal með sjálfum sér upp­hátt. Ég var svo gáttuð og auð­mjúk, hélt þetta væri bara mitt að bera eða konu­vanda­mál, minn lík­ami, mitt val dæmi, en að sjálf­sögðu var þetta miklu flókn­ara en það, hvernig gat ég séð þetta svo lítið?“

Segist lista­konan á þessum tíma­punkti hafa áttað sig á að verkið væri orðið of stórt til að geta verið leynd­ar­mál og fór því að vinna fleiri verk.

„Þetta verk var orðið stærra en ég og gat ekki lengur verið leynd­ar­mál, þegar ég sá að aðrir voru að finna fyrir mik­illi losun við að sjá verkin. Ég kláraði verkin hér í nýju og spenn­andi stúd­íó­rými sem við köllum Cocoon studio þar sem fleiri lista­menn vinna saman. Þrettán verk byrj­uðu að stafl­ast upp inni í stofu hjá mér, þegar systir mín eftir mat­ar­boð segir „Nú þarftu að fara drífa þig og hafa sýn­ingu í versl­un­inni minni“. „Ha! Í kyn­lífs­s­búð­inni þinni?“ spurði Raf­fa­ella stein­hissa.

Og þannig kvikn­aði sem sagt hug­myndin um að halda sýn­ing­una í sam­starfi við Losta.is sem systir hennar rekur í Ármúl­anum.

„Já systir mín er stoltur eig­andi Losta.is, sem er kyn­lífs­búð í nýju og glæsi­legu rými í Ármúla 23 og henni fannst við­fangs­efnið svo flott og áhuga­vert og vildi eins og skýjið varpa ljósi á mik­il­vægi þess og sýna stuðn­ingi með því að halda sýn­ing­una hjá sér og sagði „Af hverju ekki? Þetta er partur af kyn­líf­inu og partur af hringrás lífs­ins og mik­il­vægt að heila það“. „Auðvitað“ hugs­aði ég, þetta er partur af því sem að getur gerst þegar kyn­líf er stundað og þegar það ger­ist á það ekki að hafa skömm í för með sér. Ég hugs­aði „Vá, hún er ekk­ert smá hug­rökk og djörf að halda þetta hjá sér og ég er svo stolt af litlu systur minni fyrir að vilja halda utan um þessi fóstur og gefa þeim fal­legan stað til að segja sögu sína.“

Raf­fa­ella heldur áfram:

„SKÝRARA bendir á súr­r­eal­ískan hátt á sögur sínar um samúð, hjart­næmni og and­lega þróun okkar tengd fóst­ur­missi, vöggu­dauða eða unga­börnum sem deyja innan fyrsta árs og meira að segja fór þetta að mynd­ast sem full­orð­ins fóstur þegar ég fór að finna fyrir fólki sem eru ætt­leidd sem eins­konar fóst­ur­missi, þar liggja sterkar höfn­un­ar­til­finn­ingar og geta farið svo djúpt inn í inn­sæi hvers og eins. Þetta var ekki lengur prí­vat mál, þetta voru opin­ber skjöl þar sem við öll getum heilað okkar missi. Um þetta snýst sam­starfið, að vinna saman sem sam­fé­lag og heila okkur sem heild.“

Raf­fa­ella segir það sama gilda um sýn­ing­una og að ala upp barn, það taki heilt sam­fé­lag að gera það vel.

„Það tekur heilt sam­fé­lag að láta barn vaxa og dafna og það sama á við um þessa sýn­ingu þar sem það tók fleiri lista­menn og með­limi lista­sam­fé­lags­ins Cocoon sem ég til­heyri og vini þeirra að taka þátt í að halda utan um þessa sýn­ingu á marga vegu. Logi Hrafn Krist­jáns­son tók þátt í mynd­list­ar­sköpun tveggja verka minna sem hanga í sýn­ing­unni. Að auki voru hljóð­verk gerð fyrir rýmið, Eins og legið heldur utan um og nærir fóstrið, þá heldur hljóð­myndin utan um sýn­ing­una á undra­verðan hátt. Það býr til not­ar­lega, and­lega og dul­ar­fulla til­finn­ingu þegar horft er á verkin og myndar per­sónu­lega teng­ingu við hvert verk. Tón­list­ar­menn­irnir á bak við hljóð­verkin eru þeir Leifur Eiriks­son, Guð­mundur Bender, Jón Orri Sig­urðs­son, Garðar Jak­obs­son, Sveinn Helgi Hall­dórs­son og Róbert Mikael. Þeir lögðu sig svo vel fram og höfðu frjálsa sköpun til að ímynda sér og setja sig í spor þess­arar undr­unar að bera og skapa og upp­lifa lífið sem legið gefur um stutta stund og skoða djúpt inn í þann veru­leika og þær til­finn­ingar frá öllum aðilum, frá fóstr­inu, móð­ur­inni, föð­urnum og sam­fé­lag­inu og kós­mó­inu sem heild.“

Fullt út úr dyrum á opnuninni

Að sögn Raffellu tók Losti vel á móti gestum sínum með veit­ingum þann 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn, á opn­un­ar­degi sýn­ing­ar­innar. Fullt hús var á opn­un­inni en DJ Inni Kisa „náði að tengja þess­ara fal­legu and­legu sýn­ingu Skýrara og kyn­lífstækja­búð­ina Losta saman á svo skemmti­legan hátt,“ sam­kvæmt Raf­fa­ellu. Bætti hún við: „Það vakti mikla gleði og fögnuð að tengja ólík konsept svona vel saman. Losti og rýmið náði með hörðum höndum að fæða SKÝRARA út í sam­fé­lagið yfir jóla­há­tíð­arnar.“

Raf­fa­ella hvetur alla til að kíkja á sýn­ing­una í Losta í Ármúla 23 en sýn­ingin verður fram að ára­mótum. Lista­konan sjálf verður á staðnum til að taka á móti gestum og ræða verkin á milli 16-18 alla virka daga og laug­ar­daga frá 13-16, meðan búið er opin. Hún mun svo upp­færa daga­talið á opn­un­ar­tím­ana á sam­fé­lags­miðlum á borð við Instagram, svo hægt sé að fylgj­ast með ef eitt­hvað breyt­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu