Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

María Birta missti sjónina tímabundið eftir flókna aðgerð

Steig á svið nokkrum dögum síðar

María Birta missti sjónina tímabundið eftir flókna aðgerð
María Birta Fox María Birta er á bata­vegi Mynd: Instagram

Leik­konan María Birta Bjarna­dóttir Fox greinir frá því í sam­tali við Mannlíf að hún hafi nýlega geng­ist undir umfangs­mikla aðgerð en ákvörð­unin hafi verið vel ígrunduð og lengi í und­ir­bún­ingi. María Birta býr í Las Vegas ásamt eig­in­manni sínu, lista­mann­inum Ella Egils­syni.

Í svörum sínum útskýrir María Birta Bjarna­dóttir Fox að hún hafi ákveðið að láta taka sig úr sam­bandi eftir langa umhugsun. „Í stuttu máli þá var ég að láta taka mig úr sam­bandi. Þetta er eitt­hvað sem ég hefði pælt í að gera í langan tíma og var búin að segja Ella að ég myndi gera um leið og dóttir okkar Ignacia myndi eign­ast systk­ini,“ segir hún og bætir við að fjöl­skyldan hafi ætt­leitt systur dóttur þeirra, Nöju, í maí í fyrra. „Við ætt­leiddum systur hennar, Nöju, í maí í fyrra og ég bók­aði aðgerð­ina í sama mán­uði.“

Flókin aðgerð

Aðgerðin reynd­ist erf­ið­ari en upp­haf­lega var gert ráð fyrir. María Birta greind­ist með blöðru á eggja­stokk skömmu fyrir aðgerð­ina. „Aðgerðin varð aðeins flókn­ari en við bjugg­umst við því að ég greind­ist með 6.3cm blöðru á eggja­stokk í lok nóv­em­ber sem ég vissi að þyrfti að taka eins fljótt og auðið er, en það var hægt að gera þetta allt í sömu aðgerð, fjar­lægja eggja­leið­ara, blöðr­una og gera svo­kallað uterine ablation.“

Hún segir afleið­ingar aðgerð­ar­innar skýrar, en jafn­framt í sam­ræmi við hennar eigin fram­tíð­ar­sýn. „Núna get ég sem­sagt hvorki orðið ólétt né gengið með barn, en það var aldrei planið mitt hvort eð er.“ Hún tekur einnig fram að heilsu­fars­á­stæður hafi legið að baki ákvörð­un­inni. „Ég fór í aðgerð­ina því ég er með endó­metríósu og þetta mun von­andi koma í veg fyrir frek­ari verki tengda þeim sjúk­dómi. Það er ekki víst þó … það kemur í ljós á næstu mán­uðum.“

Missti sjónina

Í kjöl­far aðgerð­ar­innar upp­lifði hún óvæntan fylgi­kvilla þegar hún missti tíma­bundið sjón­ina. „Ég missti svo tíma­bundið sjón­ina eftir aðgerð­ina því ég hef lík­leg­ast í svefni snert ógeðis­lím­miðan sem var settur á mig fyrir aðgerð og snert svo á mér augun. Þá stækka víst auga­stein­arnir og maður getur misst sjón­ina að hluta til í allt að 72klst.“ Hún segir batann hafa verið hraðan. „Ég fór að geta lesið aftur skila­boð í sím­anum mínum á mánu­dag­inn 😅,“ segir María Birta í skrif­legu svari til Mannlífs.

Þrátt fyrir aðgerð­ina og bata­tím­ann lét María Birta það ekki stoppa sig í vinnu. „Mér líður vel núna, fór í aðgerð­ina á föstu­dag­inn og gerði 2 sýn­ingar í gær á mið­viku­degi 😅,“ skrifar María Birta en hún leikur Sister Victoria í sýn­ing­unni Atomic Saloon Show.

Hún við­ur­kennir þó að hún hafi verið í vafa fyr­ir­fram, sér­stak­lega vegna eðlis starfs síns. „Ég þori að við­ur­kenna að ég vissi ekki hvort ég væri til­búin til þess, vinnan mín auð­vitað frekar óhefð­bundin, svolitlir verkir eftir báðar sýn­ing­arnar en ekk­ert sem að ég höndla ekki ☺️ Bara áfram með smjörið 😂“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una