Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gunnar Smári frá vegna alvarlegra veikinda

„Það er skrítið að vera svona, ekki þjáður en alveg glat­aður ein­hvern veg­inn.“

Gunnar Smári frá vegna alvarlegra veikinda
Gunnar Smári Egilsson Gunnar Smári á að gera sem minnst næstu daga Mynd: Samstöðin/Skjáskot

Gunnar Smári Egilsson, rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar, greinir frá því í færslu á Facebook að hann muni ekki vera við störf næstu daga eftir að læknir sendi hann heim og ráð­lagði honum að gera sem minnst. Hann seg­ist glíma við alvar­leg heilsu­far­s­vanda­mál sem hafi dregið veru­lega úr orku hans og starfs­getu.

Í færsl­unni lýsir Gunnar Smári stöðu sinni með eft­ir­far­andi orðum:

„Ég verð ekki á Sam­stöð­inni næstu daga, var sendur heim af lækni til að gera sem minnst. Ég er ekki beint veikur en svo­lítið bil­aður, er með blóð­tappa í fæti, lungum og hjarta og ekk­ert af þessu virkar sem skyldi, ég er því orku­lít­ill og ein­hvern veg­inn þrjá­tíu árum eldri en ég var fyrir nokkrum vikum.“

Hann segir ástandið sér­kenni­legt og erfitt að sætta sig við, þrátt fyrir að vera ekki í miklum lík­am­legum þján­ingum.

„Það er skrítið að vera svona, ekki þjáður en alveg glat­aður ein­hvern veg­inn.“

Gunnar Smári lýsir því að hann hafi alla tíð haft mikla starfs­orku og getað tek­ist á við flókin verk­efni, en nú sé staðan allt önnur.

„Ég hef alla tíð verið bless­aður með öfl­ugri vél innra með mér, hef getað gert allt sem mér hefur dottið í hug, jafn­vel ráð­ist á ókleyfa múra. En nú er ég magn­þrota gagn­vart minnstu hindr­unum, get ekki hugsað mig í gegnum neitt, ekki drifið nokkurn skap­aðan hlut af.“

Hann greinir jafn­framt frá því að fyr­ir­hugað hafi verið að grípa til inn­grips vegna hjart­sláttar, en það hafi ekki verið talið öruggt vegna blóð­tappa í hjart­anu.

„Í gær stóð til að gefa mér stuð svo hjartað færi að slá í eðli­legum takti en það er víst ekki hægt þegar það finn­ast blóð­tappar í hjart­anu, sem gætu stokkið upp í heila og strokað út allskyns getu og per­sónu­leika. Ég verð því að lifa sem maður á tíræð­is­aldri ein­hverja daga til við­bótar.“

Í færsl­unni útskýrir Gunnar Smári einnig hvers vegna hann kaus að greina opin­ber­lega frá heilsu­fari sínu

„Hvers vegna er ég að segja ykkur frá þessu? Ég veit að mörg ykkar horfið og hlustið á Sam­stöð­ina og vildi ekki líða þar burt eins og reyk­ur­inn, vildi hósta aðeins í hljóð­nem­ann og til­kynna von­andi stuttar fjar­vistir.“

Hann veltir jafn­framt fyrir sér eðli tján­ingar á sam­fé­lags­miðlum og mik­il­vægi þess að deila ekki aðeins sigri og sann­fær­ingu heldur einnig óvissu og myrk­ari hugs­unum.

„Svo hef ég verið að velta fyrir mér tján­ingu inn í þessum helli sem Facebook er, hvort við ættum ekki líka að deila myrkum hugs­unum, döprum og óljósum, hvort það sé ekki nauð­syn­leg íblönd­un­ar­efni með öllum þessum sigrum og sann­fær­ingu sem lekur af mörgu sem hér er sagt og skrifað.“

Að hans mati er slík tján­ing for­senda raun­veru­legs sam­fé­lags.

„Með tján­ingu okkar sköpum við sam­fé­lag og það verður aldrei mann­legt og frjótt nema við blöndum það úr öllum mann­legum til­finn­ingum, ekki bara þeim sem til­heyra óska­löndum okkar.“

Í lok færsl­unnar segir Gunnar Smári að hann eigi erfitt með að klára hugs­anir sem áður hefðu verið honum auð­veldar og lýsir því hvernig heilsan setji honum skorður.

„En ég hef bara ekki þrek til að klára þessa hugsun, lungu mín grípa ekki þennan anda og hjarta mitt finnur ekki réttan takt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una