Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ingibjörg og Esther tilnefndar til Blaðamannaverðlauna

Ingi­björg var til­nefnd fyrir við­tal þar sem Halla Tóm­as­dóttir greinir frá kyn­ferð­is­of­beldi sem hefur markað líf hennar.

Ingibjörg og Esther tilnefndar til Blaðamannaverðlauna
Ingi­björg og Esther Hæfi­leik­a­ríkir blaða­menn þarna á ferð­inni Mynd: Samsett

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir, rit­stjóri Heim­ild­ar­innar, og Esther Jóns­dóttir, blaða­maður Heim­ild­ar­innar, hafa verið til­nefndar til Blaða­manna­verð­launa Íslands. Ingi­björg er til­nefnd í flokki við­tals árs­ins en Esther í flokki umfjöll­unar árs­ins.

Til­nefn­ing Ingi­bjargar byggir á við­tali sem hún tók við Höllu Tóm­as­dóttur, for­seta Íslands. Í umsögn nefnd­ar­innar kemur fram að Ingi­björg hafi fylgt for­set­anum í lífi og starfi í nokkra daga, sem veiti les­endum nýja og áhuga­verða inn­sýn í for­set­ann og mann­eskj­una á bak við emb­ættið.

Esther hins vegar hlýtur til­nefn­ingu fyrir lif­andi og fræð­andi umfjöllun um ferð sína með hópi vís­inda­manna á einn af allra afskekkt­ustu stöðum lands­ins, Esju­fjöll í Vatna­jökli, eins og fram kemur í rök­stuðn­ingi nefnd­ar­innar.

Viðtal ársins 2025

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Heimildin

Fyrir við­tal við Höllu Tóm­as­dóttur, for­seta Íslands. Ingi­björg Dögg fylgir Höllu í lífi og starfi um nokk­urra daga skeið og gefur það les­and­anum nýja og áhuga­verða sýn á for­set­ann Höllu og kon­una á bak við emb­ættið. Halla greinir frá sárs­auka­fullri reynslu í barn­æsku og kyn­ferð­is­of­beldi sem hefur markað líf hennar. Í við­tal­inu fel­ast mik­il­væg skila­boð frá Höllu til þolenda um að kyn­ferð­is­of­beldi þurfi ekki að skil­greina þá um ókomna tíð.
Hlekkur á við­tal Ingi­bjargar við Höllu

Jakob Bjarnar Grétarsson, Sýn

Fyrir við­tal á Vísir.is við Friðrik Ólafsson, stór­meist­ara í skák, í til­efni 90 ára afmælis hans. Jakob ávinnur sér traust þessa hlé­dræga og hóg­væra manns og úr verður skemmti­legt og fróð­legt við­tal þar sem Friðrik rekur lífs­hlaup sitt, við­ur­kennir að hafa verið undra­barn í skák, segir frá sam­bandi sínu við Bobby Fischer og ræðir breyt­ingar sem hafa orðið á skák­íþrótt­inni. Viðtalið er fal­legur og fróð­legur minn­is­varði um glæstan feril þessa merka skák­manns.
Hlekkur á við­tal Jakobs við Friðrik

Sunna Sæmundsdóttir, Sýn

Fyrir við­tal í Kompás við Birgi Karl Ósk­ars­son og Iðunni Eiríks­dóttur, for­eldra Bryn­dísar Klöru sem lést eftir stungu­árás á menn­ing­arnótt 2024. Birgir og Iðunn deila sögu sinni og harmi á erf­ið­ustu stundu lífs síns. Þau draga ekk­ert undan í frá­sögn af atburðum hinnar örlaga­ríku nætur en á sama tíma veita þau þjóð­inni inn­sýn í fal­legt lífs­hlaup Bryn­dísar Klöru. Viðtalið er áhrifa­mikið og stuðl­aði að umræðum og aðgerðum sem bein­ast að því að vinna að öryggi og vel­ferð ung­menna.
Hlekkur á við­tal Sunnu við for­eldra Bryn­dísar Klöru

Umfjöllun ársins 2025

Esther Jónsdóttir, Heimildin

Fyrir lif­andi og afar fræð­andi umfjöllun um ferð hennar með hópi vís­inda­manna á einn afskekktasta stað lands­ins, Esju­fjöll í Vatna­jökli. Esther tekst ein­stak­lega vel að hrífa les­endur með sér, veita inn­sýn og vekja áhuga á vís­inda­legum upp­götv­unum og sér­hæfðum smá­at­riðum um gróð­ur­far og áhrif lofts­lags­breyt­inga á sam­spil jökla og nátt­úru.
Hlekkur á umfjöllun Estherar

Kristín Sigurðardóttir og Ingvar Haukur Guðmundsson, RÚV

Fyrir vand­aða og yfir­grips­mikla umfjöllun í Kveik um afleið­ingar alvar­legrar e.coli mat­ar­sýk­ingar sem upp kom í leik­skól­anum Mána­garði í Reykja­vík. Kristín fylgir mál­inu eftir af festu, varpar nýju ljósi á bæði ástæður og afleið­ingar smits­ins, talar við fjölda fólks, spyr óvæg­inna spurn­inga og sýnir áður óbirt mynd­bönd og ljós­myndir. Umfjöll­unin er skýr, vel fram sett og nýtir kosti mynd­mið­ils­ins vel.
Hlekkur á umfjöllun Krist­ínar og Ingvars

Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir, RÚV

Fyrir hlað­varps­þátta­röð­ina í Kísildal sem fjallar um upp­runa þeirra hug­mynda­fræði­legu svipt­inga sem nú eiga sér stað í Banda­ríkj­unum. Þætt­irnir eru fræð­andi og afhjúp­andi og ljóst að þátta­stjórn­endur hafa lagt í mikla heim­ilda­vinnu. Þetta marg­slungna og flókna umfjöll­un­ar­efni er sett fram í lif­andi sam­tals­formi sem gerir efnið aðgengi­legt og spenn­andi.
Hlekkur á hlað­varps­þætti Krist­jáns og Lóu

Rannsóknarblaðamennska ársins 2025

Freyr Gígja Gunnarsson og Helgi Seljan, RÚV

Fyrir umfjöllun í Spegl­inum um umfangs­mikil við­skipti emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra við ráð­gjafa­fyr­ir­tæki sem vann  afar fjöl­breyti­leg verk­efni fyrir emb­ættið og fékk háar upp­hæðir greiddar. Með mik­illi upp­lýs­inga­öflun var dregin upp skýr mynd af mál­inu. Umfjöll­unin varp­aði ljósi á  með­ferð á opin­beru fé hjá stórri rík­is­stofnun og leiddi til atburða­rásar sem end­aði með því að rík­is­lög­reglu­stjóri hætti störfum.

Gunnar Gunnarsson og Viðar Guðjónsson, Austurglugginn og Morgunblaðið

Fyrir umfjöllun um stöðu geð­heil­brigð­is­mála sem unnin var í sam­starfi  Morg­un­blaðs­ins og  Aust­ur­glugg­ans og birt­ist á báðum. Upplýst var að maður sem ban­aði hjónum í Nes­kaup­stað árið 2024 átti að vera í gæslu. Umfjöll­unin beindi kast­ljós­inu að stöðu geð­heil­brigð­is­þjón­ustu á lands­byggð­inni og leiddi til þess að yfir­völd ákváðu að fjölga úrræðum fyrir ein­stak­linga sem hvorki áttu heima í fang­elsi né á hefð­bund­inni geð­með­ferð­ar­stofnun.

Helgi Seljan og Árni Þór Theodórsson, RÚV

Fyrir umfjöllun í Kveik um umfangs­miklar njósn­a­að­gerðir sem stóðu yfir vikum saman haustið 2012 að und­ir­lagi Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar. Afhjúpað var hvernig fylgst var með fólki sem hugð­ist leita réttar síns gagn­vart Björgólfi, það hlerað og elt af fyrr­ver­andi og þáver­andi lög­reglu­mönnum. Umfjöll­unin leiddi til athug­unar eft­ir­lits­nefndar um störf lög­reglu, per­sónu­verndar, dóms­mála­ráð­herra og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á verk­lagi lög­reglu.

Blaðamannaverðlaun ársins 2025

Kjartan Kjartansson, Sýn

Fyrir frétta­skýr­ingar um lofts­lags­mál á Vísir.is. Flókin umfjöll­un­ar­efni skýrð á manna­máli án þess að afsláttur sé gef­inn af fag­mennsku. Kjartan hefur sýnt elju við öflun gagna og fylgt málum vel eftir. Hann afhjúpaði mis­skiln­ing stjórn­valda á los­un­ar­mark­miði Íslands í sam­starfi við Evr­ópu­sam­bandið sem varð til þess að íslensk stjórn­völd  þurftu að end­ur­skoða mark­mið sín vegna Par­ís­ar­samn­ings­ins.

Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, Morgunblaðið

Fyrir ítar­lega umfjöllun á mbl.is um neyð­ar­á­stand í mál­efnum barna í við­kvæmri stöðu. Sólrún Lilja hefur sýnt ein­staka þraut­seigju við að vekja athygli á þessum vanda með ítrek­uðum afhjúp­unum, viða­mik­illi umfjöllun og eft­ir­fylgni með málum. Hún hefur krafið stjórn­völd svara og þannig stuðlað að löngu tíma­bærum breyt­ingum í þessum við­kvæma mála­flokki. Nokkrar greinar úr umfjöllun Sólrúnar Lilju: Börnin sem kerfið brást - Svona smygla börnin inn fíkni­efnum - Það er galið að barnið mitt sé dáið

Þóra Tómasdóttir, RÚV

Fyrir frétta­skýr­ingar í þætt­inum Þetta helst. Þóra er næm á frétta­efni sem öðrum sést yfir og beitir ríku­legri frá­sagn­ar­gáfu við fram­setn­ingu þess. Dæmi um þetta er saga írska fiðlu­leik­ar­ans  Sean Bradley sem hvarf spor­laust frá Íslandi,  hálf­ís­lensku dragdrottn­ing­ar­innar Heklínu sem fannst látin við dul­ar­fullar aðstæður í Lundúnum, Sofiu Kolesnikovu sem fannst látin á Selfossi og ung­lings­stúlku sem varð fyrir barð­inu á ofbeld­is­hópnum 764.

Fyr­ir­vari um hags­muni: Sam­ein­aða útgáfu­fé­lagið ehf. á bæði Heim­ild­ina og Mannlíf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina