Pólskur maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður á fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Hann á að hafa gert það með því að hafa miðvikudaginn 1. október 2025, staðið að innflutningi á samtals 102,66 g af kókaíni með styrkleika 74%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti maðurinn til Íslands sem farþegi með flugi frá Gdansk, Póllandi, til Keflavíkurflugvallar, falin innanklæða.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar en lögreglustjórinn á Suðurnesjum er ákærandi í málinu.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í apríl.































Athugasemdir