Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Segist „ekkert hafa að fyrirgefa“ eiginmanni sem hlaut dóm fyrir nauðgun á 14 ára stúlku

Eig­in­kona póst­ber­ans, sem var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn barni, kemur honum til varnar á sam­fé­lags­miðlum.

Segist „ekkert hafa að fyrirgefa“ eiginmanni sem hlaut dóm fyrir nauðgun á 14 ára stúlku
Stúlkan glímir við erfið eft­ir­köst Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: Shutterstock

Eig­in­kona Andrésar Páls Ragn­ars­sonar, sem dæmdur var í fang­elsi í fyrra fyrir að nauðga 14 ára nágranna­stúlku á Blöndu­ósi, stendur með honum og hefur haft sam­band við fólk sem gagn­rýnir hann á sam­fé­lags­miðlum. Hún segir þar að þol­and­inn geti sjálfur flutt úr bænum, eftir að hann var sendur í leyfi frá störfum hjá Póstinum í kjöl­far þess að íbúar í bænum gerðu athuga­semdir og aðstand­endur brota­þol­ans báð­ust undan því að sami bréf­beri þjón­u­staði þau og hafði brotið gegn stúlkunni.

Kona nokkur birti færslu á Facebook í vik­unni þar sem hún greindi frá því að hún hefði tjáð sig um málið, eftir fréttir af því á Vísi.is að Andrés „keyri út póst með nauðg­un­ar­dóm á bak­inu“, og fengið í kjöl­farið send einka­skila­boð frá eig­in­konu hans.

„Í gær skrifa ég comment á færslu hjá minnir mig. Visir Þetta er frétt um að maður sem hafði fengið á sig dóm fyrir að nauðga 14 ára barni væri að keyra út send­ingar fyrir póst­inn. Ég skrifa eitt­hvað á þann hátt að meðan svona við­bjóði er ekki hent úr landi þá því miður væri lítið sem for­eldrar barns­ins gæti gert annað en að koma barn­inu úr aðstæðum,“ sagði konan og nefndi að stuttu síðar hefði hún fengið skila­boð frá konu manns­ins.

Færslan vakti mikla athygli og skap­að­ist mikil umræða í athuga­semdum en meðal þess sem eig­in­kona Andrésar sagði var að hún von­aði að konan upp­lifði aldrei það sem hún hefði upp­lifað, að fá hring­ingu frá lög­regl­unni með fréttir af hand­tök­unni.

Þá spurði eig­in­konan hvort að ef konan og maður hennar væru „að standa í“ sams konar, hvort hún myndi vilja að mað­ur­inn hennar yrði rek­inn úr landi og fengi aldrei að sjá börn sín aftur. Þegar konan sem birti færsl­una spurði eig­in­kon­una hvers vegna hún væri að styðja við eig­in­mann sinn, þrátt fyrir að hann hefði fengið slíkan dóm, svar­aði hún: „Af hverju? Ein­fald­lega því ég er með upp­lýs­ing­arnar sem þú finnur ekki í fréttum.“

Bætti konan síðan við: „Annars er brota­þoli orðin 18 ára og getur bara flutt sjálf.“

Stúlkan var metin trúverðug

Andrés Páll var þann 11. des­em­ber í fyrra, sak­felldur í Hér­aðs­dómi Norð­ur­lands vestra, fyrir nauðgun gegn stúlku sem var tæp­lega 15 ára þegar brotið átti sér stað, um ára­mótin 2022 og 2023. Þá hafði Andrés búið í sama fjöl­býli og stúlkan, sem bjó með móður sinni og kærasta hennar. Sat fólkið við drykkju þegar Andrés kom þangað en móðir stúlkunnar og kær­asti hennar fóru síðar inn í her­bergi saman og var Andrés þá einn í stof­unni með stúlkunni, sem var orðið afar drukkin, sam­kvæmt dómnum. Þar kyssti hann hana í leyf­is­leysi á munn­inn. Í kjöl­farið bauð hann henni niður í sína íbúð sem hún þáði. Í íbúð sinni hafði hann sam­farir við hana án hennar sam­þykkis en hún mót­mælti því ítrekað, sam­kvæmt því sem kemur fram í dómnum.

Bæði fyrir dómi og í skýrslu­töku hjá lög­reglu sagð­ist stúlkan hafa verið mjög drukkin er nauðg­unin átti sér stað og að hún hafi kastað upp inni í íbúð Andrésar. Síðan nauðg­unin átti sér stað hefur stúlkan glímt við áfallasteituröskun sem og mik­inn kvíða og verið þjökuð af martröðum, sam­kvæmt sál­fræð­ingi sem bar vitni fyrir dóm­stólum.

Í dómnum segir orð­rétt um sak­ar­efni máls­ins:

„Ákærða er gefin að sök nauðgun og kyn­ferð­is­brot gegn barni með því að hafa fyrst kysst brota­þola á munn­inn og í fram­haldi af því haft við hana sam­ræði án hennar sam­þykkis í íbúð ákærða. Ákæru­valdið byggir á því að ákærði hafi nýtt sér yfir­burða­stöðu sína vegna ald­urs- og þroska­munar og þannig beitt brota­þola ólög­mætri nauð­ung, en brota­þoli hafi ítrekað reynt að fá ákærða til að láta af hátt­sem­inni. Ákærði neitar sök.“

Þá kemur einnig fram í dómnum að Andrés Páll neit­aði að hafa haft sam­ræði við stúlk­una en að koss­inn hafi átt sér stað, með hennar sam­þykki en að hann hafi talið hana vera á bil­inu 18 til 20 ára. Fram­burður stúlkunnar þótti stöð­ugur og frá­sögn hennar ein­læg og sann­fær­andi. Í dómnum segir:

„Brota­þoli hefur að mati dóms­ins verið í öllum aðal­at­riðum stöðug í fram­burðum sínum um atvik máls­ins að þessu leyti og frá­sögn hennar hefur verið ein­læg og sann­fær­andi. Fram­burðum hennar ber í aðal­at­riðum saman við fram­burði ann­arra um hvað hún hafi sagt þeim um umrædd atvik, þ.e. félags­ráð­gjafa hjá Barna­vernd Eyja­fjarðar og sál­fræð­ings hjá Heilsu­gæslu Akur­eyrar, auk fóst­ur­móður brota­þola og móður. Þá er fram­burður umrædds sál­fræð­ings um grein­ingu á áfallastreitu sem sér­stak­lega teng­ist þessum atburði, sbr. sér­stak­lega efn­is­grein nr. 80 hér að framan til þess fall­inn að styðja við fram­burð brota­þola. Hið sama er að segja um þær upp­lýs­ingar sem fram koma um áfallastreitu á sam­skipta­seðli frá sama félags­ráð­gjafa,“ segir í dómnum.

Þar kemur fram að stúlkan hefði reynst þekkja heim­ili manns­ins.

„Enn fremur styður það við fram­burð brota­þola, á kostnað fram­burðar ákærða, að hún gat fyrir lög­reglu og fyrir dómnum teiknað her­bergja­skipan í íbúð ákærða, þannig að teikn­ing­unni bæri saman við teikn­ingar ákærða, þótt ekk­ert sem fram hefur komið í málin bendi til þess að hún hafi komið í íbúð ákærða í annan tíma en umrætt kvöld. Að öllu fram­an­greindu virtu er það mat dóms­ins að ákæru­valdið hafi sýnt nægi­lega fram á það ... að ákærði hafi haft sam­ræði við brota­þola í umrætt sinn.“

BlönduósSam­fé­lagið var slegið og þótti sumum óör­yggi í því að póst­beri bæj­ar­ins væri dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn ung­lings­stúlku, en sjálfur sagð­ist hann ekki hættu­legur.

„Ég hef ekkert að fyrirgefa honum“

Í sam­tali við Mannlíf kveðst eig­in­konan sjá eftir að hafa skrifað skila­boð til fólks sem hafði tjáð sig við deil­ingu á frétt Vísis um störf manns­ins. Aðspurð hvort hún sé búin að fyr­ir­gefa eig­in­manni sínum seg­ist hún ekk­ert hafa til að fyr­ir­gefa honum fyrir.

„Ég hef ekk­ert að fyr­ir­gefa honum,“ sagði hún. „Ég stend við hlið hans og mun gera það áfram. Mynd sem hefur verið dregin upp í umræð­unni/fréttum end­ur­speglar ekki eig­in­mann­inn minn. Fyrir mig er hann besta mann­eskjan sem ég hef nokkuð tím­ann þekkt. Sú hugsun að ég myndi deila lífi með ein­hvern sem gæti valdið öðrum skaða er fárán­legt.“

Mannlíf spurði hana einnig hvort fjöl­skyldan ætli sér að flytja úr bænum neitar hún því. „Ég hef búið hér í 14 ár og þetta er mitt heim­ili. Við erum ekki að fara flytja.“

Sem fyrr segir hafði hún sent skila­boð á fólk sem tjáði sig um málið.

Þá segir hún að bæj­ar­búar hafi að mestu sýnt henni virð­ingu eftir að málið kom upp og að einur erf­ið­leik­arnir sem þau hefðu mætt varð­andi málið væri upp­sögn Andrésar Páls frá Póstinum, eins og komið hefur fram í fréttum und­an­farna daga, en hann var sendur í leyfi eftir frétta­flutn­ing Vísis um störf hans við póst­burð.

„Við viljum ein­fald­lega fá að lifa líf­inu okkar í friði og vonum það besta. Ég trúi því að fólk sé frjálst að mynda sér sína eigin skoðun,“ segir ein­konan að lokum og bætir við að hún vilji ekki tjá sig frekar, enda sé málið í áfrýj­un­ar­ferli.

Í yfir­lýs­ingu Póstsins til Vísis var beðist afsök­unar á því að íbúar hefðu upp­lifað óör­yggi. „Póst­ur­inn tekur þá umfjöllun sem birt­ist á Vísi mánu­dag­inn 16. mars um starfs­mann fyr­ir­tæk­is­ins mjög alvar­lega. Almennt tjáir Póst­ur­inn sig ekki um mál­efni ein­staka starfs­manna en að gefnu til­efni viljum við árétta að við höfum brugð­ist við mál­inu. Við­kom­andi starfs­maður var sendur í leyfi í síð­ustu viku og sam­hliða því verða ferlar og við­bragð innan fyr­ir­tæk­is­ins skoðað nánar. ið skiljum vel þær áhyggjur sem fram hafa komið og munum halda áfram að fara yfir verk­lag okkar til að tryggja að starf­semi Póstsins stand­ist þær kröfur sem sam­fé­lagið gerir til okkar," sagði þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina