Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sóleyju Tómasdóttur hótað af ofbeldismanni

„Maðurinn hefur bæði beitt konur ofbeldi og ofsóknum“

Sóleyju Tómasdóttur hótað af ofbeldismanni
Sóley Tóm­as­dóttir Var borg­ar­full­trúi í Reykja­vík í mörg ár. Mynd: Skjáskot/RÚV

Í pistli sem Sóley Tóm­as­dóttir, fyrrum borg­ar­full­trúi og bar­áttu­kona, birtir á heima­síðu sinni greinir hún frá því að henni hafi borist hótun fyrr í vik­unni en var það gert sím­leiðis.

Setur borg­ar­full­trú­inn fyrr­ver­andi hót­un­ina í sam­hengi við heim­ild­ar­mynd­ina Inside the Manosphere eftir Louis Theroux en myndin hefur vakið mikla athygli á und­an­förum dögum fyrir að sýna fyr­ir­litn­ingu og andúð margra karl­kyns áhrifa­valda í garð kvenna. Sóley tekur reyndar fram að myndin hafi verið „löng og leið­in­leg heim­ild­ar­mynd um það sem svo margar konur hafa áður greint, útskýrt og gagn­rýnt með miklu beitt­ari hætti.“

Opnar hún sig svo um hót­un­ina.

„Aðfara­nótt þriðju­dags vakn­aði ég við sím­hring­ingu úr óþekktu íslensku núm­eri. Eftir að hafa reynt að hundsa lát­lausar hring­ingar og ansi mörg óaðl­að­andi smá­skila­boð var ekk­ert annað í stöð­unni en að ræða við kauða. Við hjónin vorum bæði glað­vöknuð og satt að segja svo­lítið for­vitin um það sem hann hefði að segja. Það reynd­ist hvorki vera fal­legt, upp­byggi­legt eða verð­skuldað,“ skrifar Sóley.

„Ég er orðin svo gömul í þessum bransa að ég varð eig­in­lega ekk­ert hrædd. Stutt leit á net­inu sýndi að mað­ur­inn hefur bæði beitt konur ofbeldi og ofsóknum. Samt upp­lifði ég hann bara sem hálf­gert grey sem er að glíma við heil­mikið mót­læti og ákveður að taka van­líðan sína út í sím­tali við mig,“ heldur hún áfram.

„Það er auð­vitað óþol­andi að ég skuli gera lítið úr ofbeld­inu sem það er að hringja heim til fólks um miðjar nætur til að hóta því og úthúða. Ég veit að mað­ur­inn er hættu­legur. En það er lík­lega ein­hvers­konar „sur­vi­val mek­an­ismi“, enda veit ég að ofbeldi gegn konum er almennt létt­vægt fundið í sam­fé­lag­inu. Bara að ein­hver karl myndi taka það að sér að afhjúpa svona karla. Þá myndi kannski eitt­hvað breyt­ast. Til­raunir okkar kvenna hafa alla­vega ekki virkað.“

Ekki tilviljun

Sóley telur víst að mað­ur­inn sem hót­aði henni sé dyggur aðdá­andi áhrifa­valda mann­hvels­ins sem fjallað var um í mynd­inni og að hann trúi því ein­læg­lega að mót­lætið sem hann glímir við sé Sóleyju og öðrum femínistum að kenna. Þetta birt­ist síðan greini­lega í ung­lingum á Íslandi í dag. Stelpur eigi að vera und­ir­gefnar og strákar ríkir og stæltir.

Hún segir að ekk­ert af þessu sé til­viljun. „Kynja­mis­rétti og kven­fyr­ir­litn­ing hefur alltaf verið vanda­mál, en áhrifa­valdar mann­hvels­ins eru birt­ing­ar­mynd bakslags sem hefur ofan­greind áhrif. Þeir eru ekki bara í útlöndum, enda er inter­netið alþjóð­legt og þeir aldeilis ekki bara útlenskir. Um það hef ég áður skrifað og fullt af öðrum konum líka. Og ein­hverjir karlar, svo allrar sann­girni sé gætt. En það þarf meira til. Við þurfum öll að sporna við þessu rugli. Það er heilt sam­fé­lag í húfi,“ skrifar Sóley að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina