Sjö sóttu um nýtt embætti sýslumanns sem tekur til starfa 1. janúar 2027 þegar níu sýslumannsembætti verða sameinuð í eitt en þetta kemur fram í tilkynningu stjórnvalda.
Embættið var auglýst laust til umsóknar 27. mars og var umsóknarfrestur til 14. apríl . Umsóknarfrestur var framlengdur til 21. apríl. Dómsmálaráðherra skipar í embættið til fimm ára þegar nefnd sem metur hæfni umsækjenda hefur lokið störfum.
Hæfnisnefnd verður skipuð á næstunni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Stofnun nýs sýslumannsembættis er stór breyting í íslenskri stjórnsýslu og er nýjum sýslumanni ætlað að leiða undirbúning og innleiðingu sameiningarinnar í nánu samstarfi við ráðuneytið.































Athugasemdir