Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Konunni sem lést í handsprengjuárás í Bristol hampað sem hetju

Kom barni í öruggt skjól þegar hennar fyrr­ver­andi mætti með hand­sprengju

Konunni sem lést í handsprengjuárás í Bristol hampað sem hetju
Joanne Shaw Shaw lést í hand­sprengju­árás á sunnu­dags­morgun Mynd: Trausti Hafsteinsson

Konan sem lést í spreng­ingu í Bristol á dög­unum er sögð hafa sýnt hetju­dáð með því að koma barni í öruggt skjól rétt áður en spreng­ingin varð.

Hin látna, Joanne Shaw, 35 ára, er sögð hafa sagt barn­inu að fara út í garð og leika sér á trampólíni þegar rifr­ildi hófst snemma á sunnu­dags­morgni.

Nágranni hennar, Stuart Blanchard, sagði að barnið hefði verið úti þegar spreng­ingin varð. „Hún sagði því lík­lega að fara út til að kom­ast undan rifr­ild­inu. Ég vakn­aði við að hún hróp­aði „farðu í burtu, farðu í burtu“ og svo heyrð­ist mik­ill hvellur sem skók húsið,“ sagði hann.

Lögregla hefur stað­fest að Joanne og fyrr­ver­andi sam­býl­is­maður hennar, Ryan Kelly, 41 árs, lét­ust í spreng­ing­unni. Parið hafði áður komið við sögu lög­reglu vegna heim­il­is­of­beldis.

Ryan KellyKelly var einn að verki sam­kvæmt rann­sókn lög­reglu

Talið er að Kelly hafi komið að hús­inu með hand­sprengju og sprengt hana við úti­dyrnar.

Að sögn nágranna hafði Joanne nýlega slitið sam­bandi við Kelly og flutt til for­eldra sinna til að kom­ast undan honum. „Hann kom þangað í miklu upp­námi,“ sagði Blanchard.

Annar nágranni sagði að lög­regla hefði reynt að end­ur­lífga Joanne, en neyð­ar­sveitir hafi þurft að hörfa þegar sprengju­sér­fræð­ingar komu á vett­vang vegna hættu á frek­ari spreng­ingum.

Vinir og nágrannar lýsa Joanne sem góðri og hlý­legri mann­eskju sem hafi ekki átt þetta skilið.

Spreng­ingin varð um klukkan 6:30 að morgni sunnu­dags eftir að lög­reglu hafði borist til­kynn­ing um heim­il­is­of­beldi skömmu áður.

Lögregla hefur skráð dauða Joanne sem mann­dráp en segir að ekki sé leitað að öðrum í tengslum við málið. Þá hefur verið tekið fram að ekki sé talið að atvikið teng­ist hryðju­verkum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco