Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnheiður tekur foreldra á Íslandi á beinið

„Þjóð­irnar í kringum okkur eiga ekki við þetta vanda­mál að stríða.“

Ragnheiður tekur foreldra á Íslandi á beinið
Barn í skóla Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Ragn­heiður Steph­en­sen grunn­skóla­kenn­ari segir að sífellt stærri hópur for­eldra taki skóla­göngu barna sinna ekki nægi­lega alvar­lega og að það hafi nei­kvæð áhrif bæði á náms­ár­angur og skóla­starf í heild. Þetta kemur fram í pistli, sem birt­ist á Vísi, sem hún skrif­aði þar sem hún gagn­rýnir aukna fjar­veru nem­enda og minnk­andi þátt­töku for­eldra í námi barna sinna.

Í skrifum sínum bendir Ragn­heiður á að skóla­skylda sé lög­bundin af ástæðu og að tíð leyfi frá skóla, hvort sem um sé að ræða lengri ferða­lög eða staka daga, hafi bein áhrif á fram­vindu náms. „Þjóð­irnar í kringum okkur eiga ekki við þetta vanda­mál að stríða. Þar eru börn ekki stans­laust í leyfi frá skóla, hvort sem er í lengri tíma eða í stökum tímum. Það ein­fald­lega má ekki og þau fá ekki leyfi. Þar er ekki litið á skóla sem eitt­hvað sem er fyrir í fjöl­skyldu­líf­inu. Þar er skóli hluti af fjöl­skyldu­líf­inu.“

Hún segir að fjar­vera nem­enda geti einnig haft áhrif á gæði kennslu fyrir þá sem eftir sitja í skóla­stof­unni.

Að hennar mati virð­ist skóla­starf í auknum mæli þurfa að víkja fyrir tóm­stundum og öðru fjöl­skyldu­lífi hjá sumum for­eldrum. Hún nefnir sér­stak­lega að and­staða hafi komið fram við ein­föld heima­verk­efni fyrir yngstu nem­endur, sem áður hafi verið talin mik­il­væg leið til að efla tengsl for­eldra við nám barna sinna.

Hún leggur áherslu á að sam­vera, sam­ræður og þátt­taka for­eldra séu lyk­il­at­riði í að byggja upp virð­ingu barna fyrir námi.

Ragn­heiður telur einnig að íslenskt sam­fé­lag sé orðið of upp­tekið af hraða og þátt­töku í fjöl­breyttum verk­efnum, á kostnað þess að njóta og fylgja börnum sínum í gegnum skóla­göng­una.

Að lokum hvetur hún for­eldra til að nýta þann mikla aðgang sem þeir hafa í dag að upp­lýs­ingum um skóla­starf og sam­skiptum við kenn­ara. Hún segir mik­il­vægt að for­eldrar fylgist með skóla­göngu barna sinna og taki virkan þátt í henni.

„Þegar þú velur að eiga barn þá er skóla­ganga hluti af því og henni þarf að sinna,“ segir Ragn­heiður Steph­en­sen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi