Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lesendur Moggans vilja senda íslenska ofbeldismenn úr landi

„Þetta er ein­fald­ega þeirra eðli.“

Lesendur Moggans vilja senda íslenska ofbeldismenn úr landi
Morg­un­blaðið Athuga­semda­kerfið er tví­eggjað sverð Mynd: Víkingur

Athuga­semda­kerfi mbl.is á Facebook logar í rasískum ummælum eftir að mið­ill­inn birti mynd­skeið þar sem hópur ungra manna ræðst á eldri mann í mið­borg Reykja­víkur. Vilja margir senda menn­ina úr landi en þeir eru allir íslenskir.

Lög­reglan rann­sakar hópárás sem átti sér stað í mið­borg Reykja­vík í gær­morgun þar sem nokkrir ungir menn réð­ust á eldri mann.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Unnar Már Ást­þórs­son, aðal­varð­stjóra hjá lög­regl­unni, eru þrír menn grun­aðir um aðild að mál­inu. Þeir voru hand­teknir og yfir­heyrðir en síðar sleppt úr haldi. Allir eru þeir með íslenskt rík­is­fang.

Brota­þol­inn, sem einnig er íslenskur, hlaut áverka í árásinni en hefur nú verið útskrif­aður af sjúkra­húsi.

Myndband sem gengið hefur manna á milli á sam­fé­lags­miðlum sýnir hluta atviks­ins. Þar má sjá orða­skipti milli hóps­ins og eldri manns­ins á Lækj­ar­gata áður en ástandið magn­ast upp.

Samkvæmt upp­tök­unni kastaði mað­ur­inn flösku í átt að hópnum, en í kjöl­farið réð­ust menn­irnir að honum. Þar sést meðal ann­ars hvernig þeir slá hann í höf­uðið og sparka í hann eftir að hann fellur til jarðar, meðal ann­ars utan í kyrr­stæðan leigu­bíl á göt­unni.

Heyra má nokkuð greini­lega í mynd­skeið­inu að menn­irnir tala allir íslensku en einn þeirra kallar eldri mann­inn „jóla­svein“.

Athuga­semda­kerfi Morg­un­blaðs­ins á Facebook fyllt­ist fljótt af rasískum athuga­semdum sem flestar mið­uðu að því að reka ætti árás­ar­menn­ina úr landi.

Hér má sjá nokkur dæmi um athuga­semdir við frétt mbl.is:

„Allir vænt­an­lega kærðir fyrir stór­felda lík­ams­árás og hent síðan úr landi.“

„Afhverju er þessum ræflum leyft að vera í okkar landi?“

„Þetta er nú meiru ljótu anskot­ans aum­ingj­arnir burtu með þetta lið strax.“

„Þetta á bara eftir að versna… Fljótum sof­andi að feigðar­ósi. Íslam virkar ekki i vest­rænum þjóð­felögum.“

„Mér sýn­ist þetta vera útlend­ingar sem eru að berja mann­inn.“

„Þetta er ein­fald­ega þeirra eðli.“

„Vil fólk halda þessum skríl hérna ...fólk er alls staðar í hættu eitt á ferð.“

Þó rasískar athuga­semdir séu ráð­andi við frétt­ina má þó sjá nokkra benda fólki á að um sé að ræða íslenska ofbeld­is­menn. Ásta nokkur skrifar til dæmis: „Vá hvað það er ljótt að lesa kommentin hérna! Strák­arnir eru að tala ÍSLENSKU. For­dóm­arnir skína hérna í gegn alveg hreint!“

Þó hér sé fjallað um athuga­semda­kerfi Morg­un­blaðs­ins ein­skorð­ast svip­aðar athuga­semdir ekki við þann miðil.

Hér fyrir neðan má sjá hið umtala mynd­band en við­kvæmir eru varaðir við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina