Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Heimur

David Walliams sak­aður um að hafa tælt ung­lings­stúlkur

Íslenskt par náðist á myndband ráðast á strætóbílstjóra

„Höfum séð þetta en eng­inn til­kynn­ing komið til okkar um málið.“

Frá átökunum
Frá átök­unum Tvö ung­menni veit­ast að bíl­stjór­anum Mynd: Instagram-skjáskot

Instagram-reikn­ing­ur­inn Íslenskt rugl birti í morgun mynd­skeið þar sem því er haldið fram að þar megi sjá bíl­stjóra stræt­is­vagns í slags­málum við tvö ung­menni.

Í byrjun mynd­bands­ins sést bíl­stjóri stæt­is­vagns verj­ast höggum tveggja ung­menna fyrir utan vagn­inn og slá frá sér. Í lok mynd­bands­ins virð­ist bíl­stjór­inn vera kom­inn inn í vagn­inn en heldur áfram að verj­ast höggum.

Mannlíf heyrði í far­þega stræt­is­vagns­ins sem sést í mynd­band­inu fara út til að aðstoða bíl­stjór­ann en það er hin lett­neska Sindija Belsone. Samkvæmt henni átti atvikið sér stað við stoppu­stöð­ina á Smára­torgi fyrir tveimur til þremur vikum síðan.

Sindija, 31 árs, seg­ist í byrjun ekki hafa verið mikið að fylgj­ast þar sem hún var í sím­anum að tala við vin sinn. Hún hafi þó tekið eftir því að íslenskt par, ungur maður og ung kona, hafi komið inní stræt­is­vagn­inn og að konan hafi tekið upp á því að hlaupa fram og til baka eftir vag­inum á meðan mað­ur­inn ræddi við bíl­stjór­ann. Segist hún halda að fólkið hafi verið á ein­hverjum efnum. Næsta sem Sindija vissi var að mað­ur­inn hóf að láta höggin dynja á bíl­stjór­anum.

„Bíl­stjór­inn náði að fara út og þau réð­ust þá bæði á hann,“ segir Sindija í sam­tali við Mannlíf. Í fyrstu hafi hún verið hik­andi við að sker­ast í leik­inn vegna frétta af hnífstungu­árásum en hafi síðan ákveðið að hjálpa bíl­stjór­anum. „Ég hafði nýlega heyrt af hnífa­árásum, og var því nokkuð hrædd, því mig langar ekki að deyja,“ segir hún glað­leg en heldur svo áfram: „En síðan sá ég að eng­inn, ekki nokkur skap­aður maður ætl­aði að hjálpa bíl­stjór­anum, þannig að ég ákvað að hjálpa. Í mynd­band­inu get­urðu heyrt mig segja í sím­ann við vin minn, á mínu tungu­máli, að ég ætli að fara út að hjálpa. Þannig að ég hljóp út og á því augna­bliki ætl­aði mað­ur­inn að slá bíl­stjór­ann en ég byrj­aði að öskra á þau bæði „Hvað í and­skot­anum eruð þið að gera? Þetta er opin­ber staður og það eru börn í stræt­is­vagn­inum. Hvað eruð þið að spá?“.“

Það var þá sem parið gekk í burtu og bíl­stjór­inn gat haldið áfram ferð sinni. Aðspurð um líðan bíl­stjór­ans segir Sindija að hann hafi virkað afar skelk­aður enda hafi tveir ein­stak­linga ráð­ist á hann í einu.

Þegar blaða­maður Mannlífs spurði hvort parið hafi veist að henni neitar hún því og bætir við:

„Ef þau hefðu reynt það, hefðu þau endað á sjúkra­húsi.“ Útskýrði hún að fyrr á árum hefði hún verið svo­lít­ill slags­mála­hundur og kunni því að slást.

Þá gagn­rýnir Sindija harð­lega að eng­inn hafi komið bíl­stjór­anum til hjálpar.

„Mér finnst að fleiri eigi að gera það sem ég gerði, stíga inn í svona árásir. Ég var mjög sorg­mædd því að þegar ég hljóp út komu tveir gaurar út úr vagn­inum og annar fór að taka upp á sím­ann sinn og hinn var bara að fylgj­ast með. En ég myndi gera þetta aftur ef ég þyrfti. Í byrjun var ég að bíða eftir að ein­hver karl­maður myndi stíga inn í því vagn­inn var fullur af karl­mönnum. Ég er bara 166 cm á hæð þannig að ég er frekar smá­vaxin. En nokkuð rugluð,“ bætti hún við að lokum og hló.

Mannlíf heyrði í fram­kvæmd­ar­stjóra Strætó, Jóhann Svavar Rún­ars­son, vegna máls­ins en svar hans var stutt.

„Kannaði hjá mínu folki og eng­inn heyrt um þetta.
Svona atvik mjög sjald­gæf en nokkur til­vik í gegnum tíð­ina“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Heimur

Hundruð skóla rýmdir vegna sprengju­hót­ana í Skotlandi og á Norður-Írlandi

Minning

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heimur

Bretland hvatt til að hraða und­ir­bún­ingi fyrir hugs­an­legt stríð

Innlent

Innlent

Inn­köllun vegna eld­hættu í þremur teg­undum Volkswagen-raf­bíla

Eigendur hvattir til að hlaða bifreiðar sínar ekki umfram 80 prósent.
Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir