Á aðalfundi Dýraverndarsamband Íslands sem fram fór 20. maí voru samþykktar nokkrar ályktanir þar sem meðal annars er gagnrýnt leyfi fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum, fyrirhugaðar hvalveiðar og eitrun dýra með frostlegi.
Í einni ályktun fundarins er harðlega gagnrýnt að Matvælastofnun hafi veitt Ísteka skilyrt tveggja ára starfsleyfi fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum til framleiðslu á PMSG-hormóni.
Dýraverndarsambandið segir starfsemina ekki samræmast Evróputilskipun um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni og bendir á að aðrar aðferðir og lyf séu til staðar sem geti þjónað sama tilgangi.
Í ályktuninni segir einnig að ávinningur starfseminnar sé fyrst og fremst fjárhagslegur en ekki samfélagslegur eða til hagsbóta fyrir dýravelferð.
Þá vekur sambandið athygli á því að Fagráð um velferð dýra hafi veitt umsókninni neikvæða umsögn.
Sambandið skorar á stjórnvöld að afturkalla leyfið og tryggja að framkvæmd leyfisveitinga samræmist skuldbindingum Íslands samkvæmt Evróputilskipun 2010/63/ESB.
Í annarri ályktun hvetur Dýraverndarsambandið stjórnvöld til að koma í veg fyrir að hvalveiðar hefjist á ný í sumar.
Tilefnið eru fyrirætlanir Hvalur hf. um langreyðaveiðar og áform NORA Seafood á Ísafirði um að hefja hrefnuveiðar í Ísafjarðardjúp eftir níu ára hlé.
Dýraverndarsambandið telur veiðiaðferðirnar „einstaklega harðneskjulegar og ómannúðlegar“ og segir ekki hægt að réttlæta veiðar á hvölum með gildum rökum.
Samtökin kalla einnig eftir því að núgildandi lög um hvalveiðar verði felld úr gildi eða ný lög sett sem komi alfarið í veg fyrir slíkar veiðar í framtíðinni.
Í þriðju ályktuninni er varað við síendurteknum eitrunum dýra með frostlegi víða um land.
Samtökin segja frostlög sem innihalda etýlenglýkól sérstaklega hættulegan þar sem efnið hafi sætt bragð sem laði dýr að sér og geti valdið alvarlegum nýrnaskaða og kvalafullum dauðdaga. Í ályktuninni kemur fram að slíkt eitur sé viljandi settur í mat til að gefa dýrum.
Vísað er til nýlegra dauðsfalla gæludýra í Kjós og Sandgerði vegna slíkrar eitrunar.
Dýraverndarsambandið, ásamt Villikettir og Dýrfinna, skorar á stjórnvöld að draga úr innflutningi og sölu á frostlegi sem inniheldur etýlenglýkól og setja skýrari reglur um öryggi slíkra vara.
Hér fyrir neðan má sjá ályktanir aðalfundarins í heild sinni.































Athugasemdir