Dyravörður var handtekinn í borginni Carlsbad í Kaliforníu á miðvikudagskvöld eftir að hafa að sögn skotið rafbyssu í andlit gests á skemmtistaðnum Park 101. Maðurinn hefur verið ákærður fyrir tvö alvarleg ofbeldisbrot.
Atvikið náðist á myndband sem vitni tók upp á vettvangi. Myndskeiðið hefur farið hratt í dreifingu á samfélagsmiðlum og sýnir þegar barsgestur ræðir við tvo dyrðaverði áður en annar þeirra dregur skyndilega upp rafbyssu og skýtur rafoddi í andlit mannsins af mjög stuttu færi. Í kjölfarið fellur maðurinn til jarðar augljóslega sárþjáður og vegfarandi kemur honum til aðstoðar.
Lögreglumenn sem voru við eftirlit í nágrenninu voru stöðvaðir af vitnum og fóru þegar á vettvang. Að sögn lögreglu var dyravörðurinn, David Marquez, handtekinn eftir að lögreglumenn höfðu skoðað myndbandsupptöku af atvikinu. Marquez var í kjölfarið færður í fangageymslu.
Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á áfallamiðstöð sjúkrahúss til meðferðar. Ekki hefur verið greint frá umfangi meiðsla hans.
Lögreglan í Carlsbad rannsakar nú málið og hefur ekki upplýst hvað hafi legið að baki átökunum eða hvort frekari ákærur kunni að verða lagðar fram.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir