Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Frjósemisvarðveisla á að vera sjálfsögð réttindi en ekki lúxus

Rann­sóknir sýna að ófrjó­semi og afleið­ingar hennar eru á meðal stærstu áhyggju­efna ungs fólks eftir krabba­meins­með­ferð

Frjósemisvarðveisla á að vera sjálfsögð réttindi en ekki lúxus
Hvað verður um fram­tíð­ar­mögu­leik­ana á að eign­ast börn? Mynd: Unsplash/Suhyeon Choi

Kraftur, stuðn­ings­fé­lag fyrir ungt fólk með krabba­mein, krefst þess að stjórn­völd tryggi fulla nið­ur­greiðslu á frjó­sem­is­varð­veislu til að jafna aðgengi óháð efna­hag í grein sem Ragn­hildur Þóra Haf­steins­dóttir, hags­muna- og fræðslu­stjóri Krafts, tók saman. Félagið bendir á að ófrjó­semi vegna með­ferðar sé stórt áhyggju­efni um 90 ungra ein­stak­linga sem grein­ast árlega og hefur Kraftur stofnað sér­stakan frjó­sem­is­sjóð til bráða­birgða.

Hvað verður um framtíðarmöguleikana á að eignast börn?

Á hverju ári grein­ast um það bil 90 ungir ein­stak­lingar með krabba­mein á Íslandi. Þetta er fólk sem er á við­kvæmum stað í líf­inu að stíga sín fyrstu skref í námi, á vinnu­mark­aði, við hús­næð­is­kaup eða að stofna fjöl­skyldu. Ofan á þau gríð­ar­legu áföll og óvissu sem fylgja krabba­meins­grein­ingu bæt­ist fljót­lega við önnur erfið spurn­ing: Hvað verður um fram­tíð­ar­mögu­leik­ana á að eign­ast börn?

Rann­sóknir sýna að ófrjó­semi og afleið­ingar hennar eru á meðal stærstu áhyggju­efna ungs fólks eftir krabba­meins­með­ferð, næst á eftir ótt­anum við að sjúk­dóm­ur­inn taki sig upp á ný. Fyrstu nið­ur­stöður úr lífs­gæða­rann­sókn Krabba­meins­fé­lags­ins stað­festa að þörfum þessa hóps er ekki nægi­lega mætt í núver­andi kerfi.

Fjárhagslegur þröskuldur á viðkvæmum tíma

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin skil­greinir það sem mann­rétt­indi að fólk geti ákveðið hvort, hvenær og hversu mörg börn það eign­ast. Hvað frjó­sem­is­varð­veislu varðar er raun­veru­leik­inn á Íslandi því miður sá að með­ferð­irnar eru dýrar. Þrátt fyrir að Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafi aukið greiðslu­þátt­töku sína árið 2024 þarf ungt fólk enn að leggja út háar fjár­hæðir á sama tíma og það glímir við alvar­leg veik­indi.

Það er óásætt­an­legt að sjúk­lingar þurfi undir mik­illi tíma­pressu og álagi að velja á milli fjár­hags­legs öryggis og mögu­leik­ans á að stofna fjöl­skyldu í fram­tíð­inni. Upp­lýs­ingar og aðgengi að þess­ari þjón­ustu eiga ekki að ráð­ast af efna­hag eða per­sónu­legu bak­landi ein­stak­linga.

Viðbrögð samfélagsins og kröfur um breytingar

Vegna þess að ákalli um fulla nið­ur­greiðslu rík­is­ins hefur ekki enn verið svarað, hefur stuðn­ings­fé­lagið Kraftur gripið til eigin ráð­staf­ana og stofnað sér­stakan frjó­sem­is­sjóð til að styðja við þá sem þurfa að standa straum af þessum kostn­aði. Jafn­framt hefur nýtt sam­starf við Sjóvá leitt til þess að trygg­inga­fé­lagið býður nú upp á vernd í sjúk­dóma­trygg­ingu sinni sem end­ur­greiðir útlagðan kostnað vegna frjó­sem­is­varð­veislu fyrir krabba­meins­með­ferð.

Þótt þessi einka­fram­tök og stuðn­ingur séu dýr­mæt breyta þau ekki þeirri stað­reynd að bata­rekstur eftir krabba­mein verður að vera heild­rænn. Frjó­sem­is­varð­veisla á ekki að vera til­vilj­ana­kennd eða háð vel­vild sjóða, heldur staðl­aður og sjálf­sagður hluti af opin­berri heil­brigð­is­þjón­ustu. Stjórn­völd verða að stíga fastar til jarðar, sam­ræma verk­ferla innan heil­brigð­is­kerf­is­ins og tryggja fulla nið­ur­greiðslu svo allir ungir krabba­meins­sjúk­lingar sitji við sama borð þegar kemur að fram­tíð þeirra og stofnun fjöl­skyldu, segir í grein Krafts.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una