Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Krefjast þess að leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi

Átta alþjóð­leg dýra­vernd­ar­sam­tök skrifa undir yfir­lýs­ingu tveggja íslenskra dýra­vernd­ar­sam­taka.

Krefjast þess að leyfi til blóðmerahalds verði fellt úr gildi
Blóð­merar Krafist er að leyfi til blóð­mera­halds verði fellt úr gildi Mynd: © Animal Welfare Foundation.

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands og Samtök um dýra­vel­ferð á Íslandi hafa, ásamt átta alþjóð­legum dýra­vernd­ar­sam­tökum, sent atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu form­lega kvörtun þar sem þess er kraf­ist að leyfi Mat­væla­stofn­unar (MAST) til blóð­mera­halds verði fellt úr gildi.

Meðal þeirra erlendu sam­taka sem standa að kvörtun­inni eru Eurogroup for Animals, Animal Welfare Foundation, Animal Justice, Italian Horse Protection og Welfarm.

Samtökin krefj­ast þess að ákvörðun MAST um að veita skil­yrt tveggja ára starfs­leyfi fyrir blóð­töku úr fyl­fullum hryssum verði felld úr gildi. Til vara fara þau fram á að umsóknin verði tekin til með­ferðar á ný í sam­ræmi við reglu­gerð um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni, sem byggir á Evr­óputil­skipun sem Ísland ber að fylgja sam­kvæmt EES-samn­ingnum.

Leyfið heim­ilar blóð­töku úr allt að 4.900 fyl­fullum hryssum árlega til fram­leiðslu á PMSG- eða eCG-horm­óni sem notað er í frjó­sem­is­lyf fyrir búfé, einkum gyltur í verk­smiðju­bú­skap.

Í yfir­lýs­ing­unni halda sam­tökin því fram að horm­ónið geti haft nei­kvæð áhrif á vel­ferð dýra þar sem notkun þess geti leitt til stærri og veik­byggð­ari grísa­gota, sem auki líkur á dauða grísa.

Þá telja sam­tökin að blóð­takan gangi langt umfram alþjóð­leg við­mið og hafi veru­leg áhrif á heilsu og vel­ferð hryss­anna. Einnig sé með­ferð þeirra við blóð­töku óvið­un­andi þar sem um sé að ræða lítið tamin eða hálf­villt hross sem verði fyrir mik­illi streitu og ótta.

Samtökin benda á að fagráð um vel­ferð dýra hafi veitt umsókn­inni nei­kvæða umsögn í febr­úar en að MAST hafi engu að síður veitt starf­sem­inni skil­yrt leyfi í maí. Jafn­framt gagn­rýna þau að leyfið hafi verið veitt á meðan áhættu­mat Mat­væla­ör­ygg­is­stofn­unar Evrópu (EFSA) á vel­ferð blóð­mera sé enn ólokið.

Í kvörtun­inni er einnig bent á að sam­kvæmt reglu­gerð um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni skuli nota aðrar aðferðir en lif­andi dýr þegar það er mögu­legt. Samtökin segja að bæði séu til lyfja­legir val­kostir sem skili sam­bæri­legum árangri og PMSG-horm­ónið og að hægt sé að auka frjó­semi búfjár með öðrum aðferðum í búfjár­rækt án horm­óna­notk­unar.

Að mati sam­tak­anna er því óásætt­an­legt að MAST hafi veitt leyfi fyrir starf­sem­inni þegar notkun lif­andi dýra sé hvorki nauð­syn­leg né ómissandi sam­kvæmt þeim reglum sem gilda.

Samtökin fara fram á að ákvörðun MAST verði felld úr gildi í heild sinni eða end­ur­skoðuð í sam­ræmi við lög um vel­ferð dýra og reglu­gerð um vernd dýra sem notuð eru í vís­inda­skyni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina