Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Palestínumaður spyr hver hafi fjármagnað nýja menningarmiðstöð gyðinga

„Ég er ekki að tala hér um rétt nokk­urs manns til að iðka trú sína eða byggja bæna­hús.“

Palestínumaður spyr hver hafi fjármagnað nýja menningarmiðstöð gyðinga
Menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga Jenin vill vita hver stendur að baki mið­stöðv­ar­innar Mynd: Beit Shvidler Jewish Center of Iceland

Ahmed Jenin, Palest­ínu­maður búsettur á Íslandi, kallar eftir auknu gagn­sæi um fjár­mögnun nýrrar gyð­inga­menn­ing­ar­mið­stöðvar við Hverf­is­götu í Reykja­vík. Þetta kemur fram í Facebook-færslu þar sem hann seg­ist ekki vera að efast um rétt fólks til að iðka trú sína heldur vilji fá svör um hvaðan fjár­magnið komi og hvaða hags­munir kunni að liggja þar að baki.

Í færsl­unni tengir Jenin opnun mið­stöðv­ar­innar við stöðu mála á hernumdum palest­ínskum svæðum.

„Frá land­nema­byggð­unum á Vest­ur­bakk­anum og í Austur-Jer­úsalem ... til nýrrar mið­stöðvar í hjarta Íslands. Spurn­ingin sem ég spyr sjálfan mig aftur og aftur er: Hver stendur á bak við þetta fé?“

Hann segir að á sama tíma og Palest­ínu­menn búi við land­nám, ofbeldi og brott­rekstur af heim­ilum sínum sé ný mið­stöð reist á Íslandi með stuðn­ingi ein­stak­linga sem teng­ist stofn­unum sem starfi á þessum svæðum.

Jenin tekur fram að hann sé ekki að gagn­rýna trú­ar­iðkun.

„Ég er ekki að tala hér um rétt nokk­urs manns til að iðka trú sína eða byggja bæna­hús. Það er réttur sem ber að virða. En ég hef spurn­ingar um fjár­muni, áhrif, ábyrgð og gagn­sæi.“

Í færsl­unni nefnir hann hina nýju mið­stöð, Beit Shvidler Jewish Center, sem ber nafn kaup­sýslu­manns­ins Eugene Shvidler, sem hann segir einn helsta stuðn­ings­mann verk­efn­is­ins. Jenin heldur því fram að Shvidler hafi stutt ísra­elsk sam­tök, þar á meðal Elad (Ir David Foundation), sem starfi í Austur-Jer­úsalem.

Hann segir þau sam­tök hafa komið að land­nema­verk­efnum sem hafi leitt til þess að palest­ínskar fjöl­skyldur hafi verið hraktar af heim­ilum sínum og palest­ínskt land tekið undir nýjar land­nema­byggðir.

Í lok færsl­unnar setur Jenin fram nokkrar spurn­ingar sem hann telur mik­il­vægt að svara.

„Getur þessi fjár­mögnun í raun verið aðskilin frá þeim veru­leika sem sum þeirra sam­taka sem henni tengj­ast hjálpa til við að skapa? Á íslenskt sam­fé­lag aðeins að fá að vita nafn nýrrar bygg­ingar, eða einnig bak­grunn þeirra sem fjár­mögn­uðu hana? Er hægt að horfa fram hjá her­námi, land­nema­byggðum og mann­rétt­inda­brotum þegar fjár­mun­irnir ber­ast undir merkjum trúar- eða menn­ing­ar­verk­efna?“

Jenin hafnar jafn­framt því að slíkar spurn­ingar jafn­gildi gyð­inga­hatri.

„Gagnsæi er ekki hatur á neinni trú eða sam­fé­lags­hópi. Gagnsæi felur í sér að spyrja: Hver fjár­magn­aði? Hvað fjár­magn­aði hann? Og hvaða áhrif hefur það á líf ann­arra? ... Og áður en ein­hver dregur fram til­búna ásökun um gyð­inga­hatur ... þá virkar það spil ekki í þetta skiptið. Ég er ein­fald­lega að spyrja mjög ein­faldra spurn­inga: Hver borg­aði? Hvert fóru pen­ing­arnir? Og hvaða áhrif hafa þeir á líf ann­arra?“

Að lokum segir hann með léttum tón:

„Í stuttu máli ... ég er ekki að biðja um hern­að­ar­leynd­ar­mál. Ég er bara að spyrja: Hver borg­aði fyrir kaffið?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina