Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Segir rabbínann forðast spurningarnar um Gaza og Ísrael

„Þarna er engu svarað.“

Segir rabbínann forðast spurningarnar um Gaza og Ísrael
Kristinn Hrafns­son Rit­stjór­inn er ekki ánægður með svör rabbín­ans Mynd: HENRY NICHOLLS / AFP

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri WikiLeaks, gagn­rýnir nýopn­aða gyð­inga­menn­ing­ar­mið­stöð við Hverf­is­götu harð­lega í Facebook-færslu sem hann birti í kjöl­far umfjöll­unar Heim­ild­ar­innar um fjár­mögnun mið­stöðv­ar­innar. Kristinn hafði í síð­ustu viku óskað eftir svörum hvað varð­aði hina nýju menn­ing­ar­mið­stöð gyð­inga á Hverf­is­göt­unni.

Í færsl­unni gerir Kristinn meðal ann­ars athuga­semdir við að einn helsti styrkt­ar­að­ili mið­stöðv­ar­innar sé rúss­neski auð­mað­ur­inn Eugene Shvidler, sem sætt hefur refsi­að­gerðum í Bret­landi.

„Mikil er guðs­bless­unin fyrir land og þjóð að fá loks gyð­ing­lega ,,menn­ing­ar­mið­stöð” sem aðal­lega er fjár­mögnuð af manni á svart­lista russ­nesskra ólig­arka í Bret­landi hvar lúx­us­fast­eignir, einka­þota og aðrar eigur hafa verið frystar. Shvidler fann samt aur til að styrkja mið­stöð­ina með slíkum rausn­ar­skap að hún er nefnd eftir honum.“

Kristinn gagn­rýnir einnig Chabad-Lubavitch-hreyf­ing­una, sem rekur mið­stöð­ina, og tengir hana við afstöðu til land­náms Ísraela á hernumdum svæðum.

„Mið­stöðin er svo rekin af sér­trú­ar­hreyf­ingu innan gyð­ing­dóms en and­legur guð­faðir hennar til ára­tuga var alltaf gall­harður á því að her­teknum svæðum Ísraela 1967 yrði aldrei skilað. Ekki að undra þó að kollegi íslenska rabbín­ans, sá sem leiðir syst­ur­stofn­un­ina í Hebron, hafi verið í fylgd­ar­liði Ben-Gvir í heim­sókn hans til New York fyrir ári (þar sem hann vísiter­aði höf­uð­stöðvar Chabad-Lubavitch hreyf­ing­ar­innar í Brooklyn).“

Þá gerir hann einnig athuga­semdir við við­tökur sem mið­stöðin fékk við opnun hennar og nefnir sér­stak­lega íslenska ráða­menn sem sendu árn­að­ar­óskir eða voru við­staddir.

„Árn­að­ar­óskum ringdi yfir mið­stöð­ina við opnun frá Jóni Gnarr (sem mætti), Þórunni for­seta þings, Kristrúnu for­sæt­is­ráð­herra og Hildi borg­ar­stýru. Þess er getið að starf­andi sendi­herra Banda­ríkj­anna hafi mætt við opn­un­ina en aðrir diplómatar virð­ast ekki hafa mætt, ekki einu sinni danski sendi­herr­ann sem þó er nú næsti nágranni rúss­nesku ólig­ar­ka­mið­stöðv­ar­innar.“

Færslan kemur í kjöl­far fréttar Heim­ild­ar­innar þar sem fjallað var um fjár­mögnun og tengsl nýju gyð­inga­menn­ing­ar­mið­stöðv­ar­innar, sem hefur vakið nokkra umræðu und­an­farna daga.

Svör rabbínans

Mannlíf heyrði í Kristni og spurði hann sér­stak­lega út í svör rabbín­ans Avraham Feldman, sem fer fyrir menn­ing­ar­mið­stöð­inni, við spurn­ingum Heim­ild­ar­innar, um afstöðu hans til Gaza og tengsl við Ísrael en spurn­ing­arnar hljóð­uðu á eft­ir­far­andi máta:

Hefur mið­stöðin ein­hver bein eða óbein tengsl við Ísrael? Hefur Chabad-Lubavitch hreyf­ingin ein­hver bein eða óbein tengsl við Ísrael? Hver er afstaða rabbín­ans til stríðs­ins í Palest­ínu?

Svör rabbín­ans voru:

„Til­gang­ur­inn með menn­ing­ar­húsi gyð­inga er að þjóna sam­fé­lag­inu á staðnum. Við erum ekki hér til að vera full­trúar ann­arra landa. Markmið okkar er að vera hluti af sam­fé­lag­inu og leggja okkar af mörkum á hvaða jákvæðan hátt sem við getum. Sem aðalrabbíni á Íslandi er hlut­verk mitt að þjóna sam­fé­lag­inu á staðnum. Ég er ekki full­trúi Ísraels né tala fyrir neina rík­is­stjórn. Ég ein­beiti mér að mennta-, menn­ingar- og sam­fé­lags­starfi. Við biðjum dag­lega fyrir var­an­legum friði og fyrir öryggi og vel­ferð allra sak­lausra ein­stak­linga. Markmið Chabad Lubavitch er að gefa öllum tæki­færi til að kanna og fagna gyð­ing­legri arf­leifð sinni og tengj­ast gyð­ing­legri sjálfs­mynd sinni. Þetta var það sem Lubavitcher-rabbín­inn (rabbín­inn Menachem Schneerson 1902-1994) barð­ist fyrir og við erum inn­blásin af þeirri sýn og umhyggju sem hann sýndi hverjum ein­stak­lingi, bæði gyð­ingum og öðrum. Við leggjum áherslu á að þjóna stað­bundnu gyð­inga­sam­fé­lagi, sem og að miðla gyð­ing­legri menn­ingu og menntun til almenn­ings. Í hús­inu opnum við brátt „Safn um líf gyð­inga á Íslandi“, sem verður fasta­sýn­ing á sögu­legum ljós­myndum, skjölum og sögum sem spanna meira en 100 ára gyð­inga­líf. Þetta verður frá­bær leið fyrir Íslend­inga til að læra um hvernig íslensk saga og gyð­inga saga skar­ast á ein­stakan hátt, sem og að læra um líf gyð­inga á Íslandi í dag.“

Kristinn gaf Mannlífi stutt en hnit­miðað svar, um svör rabbín­ans:

„Þarna er engu svarað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina