Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fimm handteknir eftir ofbeldisfull mótmæli gegn hælisleitendum

Fimm handteknir eftir ofbeldisfull mótmæli gegn hælisleitendum
Thetford í England Mynd: Tanya Dedyukhina/Wikipedia

Breska lög­reglan hefur hand­tekið fimm ein­stak­linga í bænum Thetford í aust­ur­hluta Englands eftir þrjú kvöld í röð þar sem mót­mæl­endur beindu sjónum sínum að hús­næði sem þeir töldu hýsa hæl­is­leit­endur. Lögregla þurfti í nokkrum til­fellum að flytja íbúa hús­anna á brott til að tryggja öryggi þeirra.

Mótmælin stóðu yfir frá þriðju­degi til fimmtu­dags og tengj­ast fyr­ir­ætl­unum um að nýta yfir­gefna her­stöð í nágrenni Thetford sem hús­næði fyrir hæl­is­leit­endur.

Paul Sanford, lög­reglu­stjóri Norfolk, sagði í sam­tali við BBC Radio 4 að mót­mæl­endur hefðu beint aðgerðum sínum að bygg­ingum sem þeir töldu tengj­ast gist­ingu hæl­is­leit­enda. Í að minnsta kosti tveimur til­fellum hefði lög­regla þurft að fylgja íbúum hús­anna á öruggan stað. Sumir þeirra hefðu verið hæl­is­leit­endur.

Samkvæmt The Guardian tóku meira en hund­rað manns þátt í mót­mæl­unum á þriðju­dag og mið­viku­dag eftir að listi yfir heim­il­is­föng, sem sögð voru tengj­ast hús­næði hæl­is­leit­enda, fór í dreif­ingu á net­inu.

Lögregla greindi jafn­framt frá því að lög­reglu­maður hefði orðið fyrir grjót­kasti, annar verið bit­inn og hrækt hafi verið á þriðja.

Mynd­skeið sem birt hafa verið á sam­fé­lags­miðlum sýna lög­reglu fylgja fólki frá húsum á meðan tugir mót­mæl­enda hrópa meðal ann­ars að það eigi að fara og að flótta­fólk sé ekki vel­komið.

Sanford sagði miklar líkur á því að mót­mæl­endur hefðu kom­ist inn í eitt hús­anna og stofnað öryggi íbúa þess í hættu ef lög­regla hefði ekki gripið inn í.

Bresk stjórn­völd hafa und­an­farin miss­eri leitað leiða til að draga úr notkun hót­ela sem hús­næðis fyrir hæl­is­leit­endur á meðan umsóknir þeirra eru afgreiddar. Fyr­ir­ætl­anir um nýtt hús­næði hafa ítrekað leitt til mót­mæla.

Sam­bæri­leg ólga varð í Belfast á Norður-Írlandi í júní, þar sem ráð­ist var gegn fólki af erlendum upp­runa og hús­næði sem talið var tengj­ast inn­flytj­endum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco