Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dæmdur ofbeldismaður kærði Morgunblaðið

Kristinn var ósáttur við að vera nafn­greindur

Dæmdur ofbeldismaður kærði Morgunblaðið
Höf­uð­stöðvar Morg­un­blaðs­ins Mynd: Víkingur

Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands hefur vísað frá kæru en það var Kristinn Fjeld­sted Guðnason sem lagði hana fram á hendur mbl.is vegna fréttar sem birt­ist á miðl­inum í apríl árið 2023. Nefndin taldi kæruna ekki upp­fylla skil­yrði máls­með­ferð­ar­reglna.

Kæran laut að frétt mbl.is frá 13. apríl 2023 sem bar fyr­ir­sögn­ina „Dæmdir fyrir ofbeldi og að neyða mann ofan í Elliðaár“. Kristinn taldi umfjöll­un­ina fela í sér brot gegn 3. grein siða­reglna blaða­manna þar sem ekki hefði verið orðið við beiðni hans um leið­rétt­ingu.

Kristinn hélt því fram að rang­færsla væri í frétt­inni sem ekki hefði feng­ist leið­rétt. Þá gerði hann athuga­semd við nafn­birt­ingu og sagði nafn sitt ekki koma fram í þeim dómi sem fréttin byggð­ist á.

Í tölvu­pósti sem hann sendi rit­stjórn mbl.is óskaði hann eftir því að nafn hans yrði fjar­lægt úr frétt­inni. Vísaði hann meðal ann­ars til þess að hvorki DV né RÚV hefðu birt nöfn þeirra sem dæmdir voru í mál­inu.

Kæran barst skrif­stofu Blaða­manna­fé­lags­ins 13. júlí síð­ast­lið­inn. Kristni var degi síðar bent á að ann­markar væru á kærunni með hlið­sjón af máls­með­ferð­ar­reglum siða­nefndar. Hann óskaði engu að síður eftir því að nefndin úrskurð­aði um málið án þess að kæran yrði lag­færð.

Kristinn hélt því fram að hið meinta brot væri við­var­andi þar sem frétt­ina væri enn að finna á net­inu. Þá sagði hann ástæðu þess hversu seint kæran hefði verið lögð fram vera að hann hefði ekki vitað fyrr að honum væri unnt að gera athuga­semd við birt­ing­una.

Siða­nefnd benti hins vegar á að kærur þyrftu að ber­ast innan tveggja mán­aða frá birt­ingu þess efnis sem kvartað væri undan. Fréttin hefði birst í apríl 2023 og væri kæru­frest­ur­inn því löngu lið­inn. Þá hefði hvorki afrit af frétt­inni né vefslóð hennar fylgt kærunni.

Nefndin komst því að þeirri nið­ur­stöðu að kæran full­nægði ekki máls­með­ferð­ar­reglum vegna meintra brota á siða­reglum Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Málinu var því vísað frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina