Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík

„Þetta má ekki verða eðli­legt á Íslandi“

Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík
Lava Sweets & Cafe palest­ínskt kaffi­húsi í Keflavík Ógnandi til­burðir og netárás á kaffi­hús í Keflavík Mynd: Skjáskot

Mannlíf hefur fengið áreið­an­legar heim­ildir um að hópur ísra­el­skra ferða­manna, sem full­yrt er að séu her­menn, hafi sýnt ógn­andi til­burði, haft í hót­unum og skemmt muni á palest­ínsku kaffi­húsi í Keflavík.

Atvikið átti sér stað í dag, laug­ar­dag­inn 15. ágúst 2026, á veit­inga­staðnum Lava Sweets & Cafe við Hafn­ar­götu. Samhliða ógn­andi til­burðum er kaffi­húsið sagt standa frammi fyrir skipu­lagðri netárás sem miðar að því að eyði­leggja orð­spor þess.

Málið komst í hámæli rétt í þessu eftir að Ahmed Jenin birti opin­bera færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann lýsir atburða­rásinni og kallar eftir taf­ar­lausum við­brögðum frá íslenskum yfir­völdum og lög­reglu.

Hótanir og skemmdarverk á staðnum

Samkvæmt frá­sögn Ahmeds Jenin mætti hóp­ur­inn inn á Lava Sweets & Cafe, sem er í eigu palest­ínskra hjóna sem flúðu stríðs­á­tök og hófu rekstur í Reykja­nesbæ.

„Í dag, 15. ágúst, fór hópur ísra­el­skra her­manna sem ferða­menn inn í fyr­ir­tæki í eigu Palest­ínu­manns í Keflavík, Lava Sweets & Cafe. Þeir hót­uðu starfs­mann­inum sem vinnur þar, tóku mynd niður af veggnum og beindu að honum móðg­andi og sær­andi orð­bragði,“ skrifar Ahmed.

Hann bætir því við að fram­koma hóps­ins hafi verið skýr og mark­viss til­raun til þess að hræða starfs­fólkið: „Það sem gerð­ist virt­ist vera ekk­ert minna en hótun og skýr ógn.“

Auk atviks­ins inni á sjálfu kaffi­hús­inu segir Ahmed að hóp­ur­inn hafi fært her­ferð sína yfir á netið í því skyni að valda rekstr­inum fjár­hags­legu og sam­fé­lags­legu tjóni. Lava Sweets & Cafe hefur hingað til notið mik­illa vin­sælda og fengið fram­úr­skar­andi dóma á net­inu.

Ahmed skorar á almenn­ing á Íslandi að sýna sam­stöðu og bregð­ast við áreit­inu: „Ég vona að allir muni styðja þetta fyr­ir­tæki með því að fara á Google og skilja eftir jákvæða umsögn, svo að þetta áreiti nái ekki að skaða fyr­ir­tækið eða við­veru þess á net­inu.“

Kallað eftir viðbrögðum lögreglu og stjórnvalda

Ahmed lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun mála á Íslandi og segir þetta atvik ekki vera eins­dæmi. Hann full­yrðir að fjöl­margir ein­stak­lingar af palest­ínskum upp­runa eða stuðn­ings­menn þeirra hafi mátt þola skipu­lagðar hót­anir und­an­farið.

„Spurn­ingin núna er ein­föld: Munu íslenska lög­reglan og rík­is­stjórnin taka þessar hót­anir alvar­lega? Margir á Íslandi hafa nýlega fengið hót­anir frá Ísraelum og hafa hund­ruð hót­un­ar­skila­boða borist mis­mun­andi fólki hér á Íslandi. Hversu margar við­var­anir þarf áður en yfir­völd átta sig á því að þetta er gengið of langt?“

Hann lýsir þó enn yfir trausti á íslensk lög­reglu­yf­ir­völd en brýnir fyrir þeim að grípa inn í áður en ástandið stig­magn­ast enn frekar: „Við treystum íslensku lög­regl­unni og vonum inni­lega að hún muni taka þessum hót­unum gegn svona mörgu fólki mun alvar­legar áður en ein­hver slasast og áður en það verður of seint. Vegna þess að þetta má ekki verða eðli­legt á Íslandi.“

Undir lok færsl­unnar gagn­rýnir Ahmed einnig áherslur í umræð­unni um landamæra­eft­ir­lit hér á landi og spyr hvers vegna ekki sé fylgst betur með þeim sem hingað koma í þeim til­gangi einum að áreita aðra.

„Ábyrgðin á því að vernda fólk og koma í veg fyrir hót­anir og ógn­anir liggur hjá yfir­völdum [...] Hvar er allt fólkið sem kallar alltaf eftir hertu landamæra­eft­ir­liti?! Eða á það bara við þegar kemur að inn­flytj­endum og flótta­fólki?! Takið þessum hót­unum alvar­lega. Grípið til aðgerða núna, áður en eitt­hvað ger­ist sem ekki verður aftur tekið.“

Ekki liggur fyrir á þess­ari stundu hvort lög­reglan á Suð­ur­nesjum hafi verið kölluð til vegna máls­ins eða hvort form­leg kæra hafi verið lögð fram en Mannlíf fylgist náið með fram­vindu mála.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við